Birtingur - 01.12.1967, Page 5

Birtingur - 01.12.1967, Page 5
Þessi hætta er alltaf, þess vegna er ekkert brýnna en aldrei slakni á endurskoðuninni. Kolakowski stríðir hart á hinn stalinistíska óskeikulleika, þrælkun manna undir forystu sem hugsar allt fyrir þá, svarar öllum spurn- ingum fyrir þá, þar sem hverjum vanda er svarað með því að vitna í Helgakver tímans, hvort sem guðdómurinn sólu fegri er Jósep Djúgasvílí eða Maó. Kolakowski vil! ekki að liinn siðferðilegi grundvöllur gleymist. í bók sinni: Maðurinn án úrkosta lætur hann fulltrúa hins intelektúela marxisma sem er hans eigin talsmaður segja: aldrei mun ég trúa því að hægt sé að stjórna siðferðis- og vitsmunalífi mannkynisins eftir sömu megin- reglum og fjárfestingum: maður sparar í dag til að hagnast fremur á morgun; sem sagt: í dag leyfist manni að nota sér lygina til þess að sannleikurinn sigri á morgun, og nú getur maður framið glæpi til þess að ryðja brautina fyrir göfug mið sem stefnt er að í framtíð. Kolakowski telur sitt hlutverk að gagnrýna og véfengja og beita vísindalegri lmgsun til að hindra stöðnun sem alltaf vofir yfir, hann lítur svo á að hugsjónin verði ætíð að vera ríkjandi en hún verði að hafa aðhald skynseminnar. Hann heldur því frarn að heil- l^rigð skynsemi sé ekki bara æskileg heldur lífsnauðsynleg; en geta menn orðið frægir á að halda því fram? Hvað sýnir sagan okkur? Kannski við ættum að lesa nokkur sólarljóð ort til Stalíns og Maó. Okkur finnst þetta geti varla verið nein byltingarkenning. Höf- um við ekki heilbrigða skynsemi að leiðar- ljósi í okkar lífi? Óbrenglaða frá bernsku þrátt fyrir ýmiskonar suðu í eyrunum. En ef við förum að hyggja að því hver skyldi þá vera óháður hópsefjunum og arfteknum eða aðfengnum hégiljum. Og sumir þeir sem mest tala um heilbrigða skynsemi gera engan grein- armun á þjóðfélagsvísindum og hugsjónum eða ídeólógíu, goðsögn eða mytu og hinni miklu draumsjón stefnunnar eða útópíu held- ur þvæla þessu öllu saman. Hvursu margir eru ekki rígfastir í félagskröfum hinna pólitísku flokka sinna jafnvel þótt sumsstaðar fari lítið fyrir hugsjónum líkt og knattspyrnuunnend- ur sem fella froðu þegar fjendurnir leika grátt þá sem eiga þeirra hug og hjarta á íþrótta- vanginum. Allir þekkja þetta úr okkar stjórn- málalífi. Þar er enginn skortur á móðursýki og ofstæki. AHt er dregið í dilka eftir lágkúru- legum forsendum dægurpólitíkur. Kolakowski fjallar um þá hættu að í sósíal- istísku þjóðfélagi myndist sektarismi eða ofsa- full sértrúarstefna af því tagi sem til hægðar- auka er farið að kalla stalínisma. Þá er kenn- ingin afmörkuð kyrfilega oghinminnstufrávik jafngilda drottinssvikum og hinum örgustu glæpum. Gagnrýni var fordæmd sem skortur á birtingur 3

x

Birtingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.