Húsfreyjan - 01.10.1962, Blaðsíða 7

Húsfreyjan - 01.10.1962, Blaðsíða 7
má söngvana. Enn í dag er grunntónn hins góða í þjóðfélaginu sprottinn frá kærleiks- ríku brjósti hinnar þrautseigu, trúuðu, ís- lenzku móður. Varhugavert er, að leggja trúnað á þann orðróm, að sumar mæður telji það ekki leng- ur „móðins" að kenna börnum bænir. Móð- urbænin hefur mörgum manninum vísað út úr villunni. Oftast er hún með fyrstu orðum barnsins og síðustu orð hæruhvíta öldungs- ins, þegar hann lokar augunum í hinsta sinn. Hún er líka oft leiðarljós villta drengs- ins eða unga mannsins í þokunni eða kafalds- muggunni á snjóþungri heiðinni. Móðurbæn- in er líka oftast bjargvættur og huggun sjó- mannsins í öldurótinu. „O, þá náð að eiga Jesúm". Þannig hljóð- ar upphafið á einum fegursta lofsöng okk- ar. Ung að árum lærði ég þennan lofsöng við brjóst móður minnar. Með honum var kveiktur varanlegur neisti guðstrúar í brjósti mínu. Þessi lofsöngur hefur síðan á alvöru- og gleðistundum hljómað í sál minni sem huggunar og líknar boðskapur, sem bjarg- vættur og bænarorð á skuggakvöldum lífs míns og hefur auðveldað mér að hrinda af herðum mér þunga þess, sem köldu hefur andað. Stórskáldið, sem lét okkur eftir þenn- an lofsöng, átti móður, sem gaf honum „guðlegar myndir". Flestir foreldrar, sem rækja uppeldi barna sinna með alúð, skyldurækni og þolinmæði, uppskera oftast ríkulega gleði og hamingju af verkum sínum. Þeir, sem taka við hinni andlegu fræðslu og uppbyggingu ungmenn- isins af foreldrunum og heimilunum mega ekki bregðast skyldu sinni. Presturinn minn, sem fermdi mig, hafði þann góða sið, að spyrja fermingarbörnin úr kverinu við altarið á fermingardaginn í áheyrn safnaðarins. Minnisstæð er mér sú stund, þegar hann spurði mig: „Hvernig hljóðar fjórða boðorðið?" — Heiðra skaltu föður þinn og móður o. s. frv. Eg hef frá bernsku reynt að varðveita þessa játningu, sem ég gerði við altari Drotf- ins og ekkert hefur verið mér meiri stoð á lífsgöngu minni, yfir hina hrjúfu veröld. Engin játning hefur haft djúptækari áhrif á líf mitt og gjörðir. Æska allra tíma þarfnast þess, að henni sé sinnt og hug hennar beint inn á hollar og kristilegar brautir. Eg gat þess í upphafi máls míns, að margir teldu, að sú kynslóð, sem nú er að vaxa upp, væri trúvana, sið- spillt og svallgefin. Af kynnum mínum af heilbrigðu æskufólki álít ég það skyldu- rækið og mjög kristilegt og ákallar það guð sinn á sama hátt og við, sem nú erum fulltíða fólk, gerðum í æsku okkar. Hinum ungu íslenzku mæðraefnum er vel treystandi til þess að byggja upp holl heimili í kristi- legum anda og kærleika. Eg álít, að ekki sé með öllu lagt rétt mat á þann ungdóm, sem nú er að vaxa upp og ekki heldur á þá, sem hafa annazt uppeldi þeirra. Þúsundir góðra og hollra heimila eru dæmd og vanmetin fyrir misfellur í fari nokkurra unglinga. Mörg ung hjón og hjónaefni, sem stofna til heimilis, leggja á sig langa vinnudaga og mikið erfiði, því að fá hjónaefni reisa heimili sín á grónum arfi forfeðranna. Til þess hefur þjóðin verið of fátæk fram til þessa. Unga konan í dag má ekki láta ytri ramma heimilisins trufla sig frá ábyrgðar- miklu uppeldisstarfi. Hún má heldur ekki láta hversdagslegar annir og amstur verða til þess að „gleyma þeim guði, sem gaf okkur líf og getuna til þess að elska". Hver ungur maður og ung kona, sem stofna til hjúskapar og heimilis, þyrftu að hafa það markmið, að byggja heimilið fyrst og fremst upp á bjargi trúar og einlægrar elsku. Það er gimsteinn hvers manns til æviloka að hafa átt í upp- vextinum fagurt heimili, þar sem hann hef- ur notið hollra uppeldisáhrifa, — gimsteinn í sjóði hjartans, sem ekkert mannlegt get- ur tekið burtu eða afmáð. Til er helgisögn um Elísabet frá Ungverja- landi. Hún varði mestallri ævi sinni til þess Húsfreyjan 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.