Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 7

Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 7
eru þau flest, þó að barn konunnar belgísku væri það ekki, þá verður að veita þeim alla þá aðstoð af sér- fræðinga hálfu, sem mögulegt er, til eðlilegs þroska. Barn kynnist umhverfi sínu með snertingu, með því að þreyfa hlutina. Ef barn er handleggjalaust og getur ekki tekið á hlutnum, getur það háð andlegum þroska þess. Þegar þessi börn og önnur, sem líkt er ástatt um, eiga í hlut, má aldrei horfa i útgjöld. Við eigum að senda fólk til Þýzkalands og Englands, þar sem mörg örkumla börn hafa fæðst og þar sem strax er farin að fást reynsla af gerfi- limum og þjálfun barnanna að nota þá. Við verðum að verja fé og mannafla til að aðstoða þessi og önnur örkumla börn. Þá skapast eitthvað jákvætt, jafnvel úr harmsögunni í Liége, og engan ber að sakfella. S. Th. þýddi. BreiðifjörOur A heimleið eftir að hafa farið Vestfjarðaleiðina, allar hinar hrikalegu heiðar og kröppu firði, fannst mér eins og fagnaðarbylgja fœri um mig, þegar við komum þar sem Breiðafjörður brosti við sjónum. Þó fœddust þessar Ijóðlinur: BlessaSur Breiðifjörður, baðaður sólarglóS fagur af guSi gjörður, geymist i minjasjóS. Speglaast ó lognsléttum legi litskrúSug fjöll i kring, eyjar i upphyllingum út viS sjóndeildarhring. Fótlúinn ferSamaSur finnur hér hvild og vœrS, ó sama andartaki ómœlis tign og stœrS. HljómkviSa af fognandi fegurS, flœSir um sólu mín. LofgjörS i hrifningar hljómi, hrópa ég guS til þín. 30/7 1962 Sigrún GuSbjörnsdóttir Stykkishólmi Norskur maður, som ritar, auk norskunnar, esperanto, óskar eftir bréfaskiptum við íslend- ing, karl eða konu. Utanáskrift hans er: Sigurd Solás Farstad pr. Molde Noregi Kveðja til Kvenfélags Keldhverfinga á 40 ára afmælinu 23. júní 1962 Með félagslund og fúsar hendur flokkur þrettán kvenna í sveit breytti urð í blómalendur, byggði hlýjan gróðurreit. Þá hugans orka og hendur vinna hugsjón rcetist sérhvert vor, því má sjá og farscel finna fjörutíu ára spor. Var þér móðir, meyja, svanni máske cetluð hlutverk tvö: börnin sjö í búandsranni, bundin þrá af öðrum sjö? Þú varst brjóstvörn barna þinna, barst þau morgunglöð í heim. Bar þér og það verk að vinna, að veröld betri gcefist þeim? Því má konan kalli hlýða krafta leggja á misjafnt starf. Þá takast má er tímar líða að tryggja dcetrum betri arf. Þá lýkur dagsins löngu verki: Ijúf er þreyttum hvtldin hlý lyfti dcetur móður merki, mennng forn, en orka ný. Valborg Bentsdóttir húbfreyjan 7

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.