Íslenskt mál og almenn málfræði


Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1985, Page 193

Íslenskt mál og almenn málfræði - 01.01.1985, Page 193
Ritdómar 191 hins vegar að tryggja að lesandinn rati milliliðalaust að því orði sem hann hefur hug á að athuga hverju sinni. Skipan samsetningarunu í samfelldan bálk er og að því leyti eðlileg að sumar samsetningar þarfnast lítilla sem engra skýringa þar sem þær skýrast af merkingu orðliðanna. En það vegur á móti að slíkar samsetningar eiga minnst erindi í orðabækur og fjölmörg samsett orð þarfnast skýringa umfram það sem skýringar á orð- liðunum geta látið í ljós. Hvernig sem á þetta er litið fer ekki hjá því að talsvert er þrengt að lýsingu samsettra orða með þessu fyrirkomulagi. En hér með er ekki öll sagan sögð um það hvernig samsettum orðum er fyrir komið í bókinni. í lýsingu margra feit- letraðra uppflettiorða (stofnorða og samsetninga) eru tilgreindar samsetningar af við- komandi orði, ýmist með eða án merkingarskýringar. Þessar samsetningar eru hafðar með skáletri, þ.e. sama letri og haft er á orðasamböndum sem greint er frá inni í orð- bálkum, enda gegna þær því hlutverki að sýna notkunartilbrigði þess stofnorðs sem þær heyra undir. Aðeins sum þessara orða koma jafnframt fram sem feitletruð uppflettiorð. Önnur, einkum þau sem hafa uppflettiorðið að fyrri lið, eru aðeins tilgreind á þennan hátt og þannig gerður skilsmunur á þeim og hinum eiginlegu uppflettiorðum. En þegar á það er litið að margar hinna skáletruðu samsetninga fá skýringar, jafnvel merkingar- lega sundurliðun, að hætti eiginlegra uppflettiorða (sjá t.d. áburðardreifir undir áburð- ur, bensingjöf undir bensin, traniaralýður undir trantari), er í rauninni komið til nýtt stig uppflettiorða til hliðar við þau sem beinlínis eru auðkennd sem slík. Það er svo undir hælinn lagt hvort nokkurra samsetninga er getið í Iýsingu stofnorðanna og erfítt að sjá á því nokkra reglu hvenær einstakra orða er fremur getið þannig en sem eigin- legra uppflettiorða. Þannig ræður orðgerðin mestu um það hvort orð birtast sem uppflettiorð eða ekki. Því fleiri sem samsetningarliðirnir eru því minna er um þau hirt að þessu leyti, eins og tekið er fram í formála OM-1: „Margsamsett orð eru yfirleitt því aðeins skýrð í bók- inni, að merking þeirra sé önnur en beinlínis verður séð af hverjum (hvorum) samsetn- ingarlið um sig“. Að öðru jöfnu er þetta í sjálfu sér eðlileg viðmiðun. En það er ákaflega varasamt að fela orðgerðinni óskoruð völd í þessu efni. Hér þarf einnig að taka fullt til- lit til þess hversu áberandi og fyrirferðarmiklar samsetningar eru í íslensku. Sé litið til nútímamáls sérstaklega er ekki um það að villast að með sífelldri nýmyndun orða af ís- lenskum stofnum þar sem leitast er við að ná sem mestu merkingarlegu gagnsæi fer mikilvægi samsetninga vaxandi um leið og fjöldi stofnorða sem vísa til liðins tíma fyrn- ist. Orðaforða nútímamáls verður ekki lýst á trúverðugan hátt nema tillit sé tekið til þessa. Þrátt fyrir allt verður auðvitað ekki hjá því komist að takmarka Qölda samsetninga, og þar með hlýtur lengi að vera hægt að benda á samsetningar sem ástæða hefði verið til að veita rúm í bókinni. Það er því ekki alls kostar sanngjarnt að gera mikið úr ágöllum af því tagi og velta vöngum yfir einstökum orðum sem lesandi kann að sakna. En til frekari glöggvunar á því sem áðan var sagt um fleirsamsett orð er freistandi að benda á nokkur dæmi um samsetningar af þeirri gerð sem frá merkingar- og notkunarsjónar- miði eiga rétt á sér til jafns við ýmis orð með einfaldari orðgerð en ekki er að finna í OM. Meðal slíkra orða eru t.d. frjálsíþróllamaður (sem að sínu leyti er jafningi orða eins og skytta, kylftngur og skákmaður), heilsugaslustöð, ellilífeyrisþegi, endurskins- merki, mótmalasvelti, framhjóladrif flóttamannahúðir, flugumferðarsljóri, hryðju- verkamaður, vöruskiplajöfnuður.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Íslenskt mál og almenn málfræði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenskt mál og almenn málfræði
https://timarit.is/publication/832

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.