Vera - 01.11.1982, Blaðsíða 16

Vera - 01.11.1982, Blaðsíða 16
& í síðustu VERU var sagt frá því að fulltrúi okkar í félags- málaráði hefði flutt tillögu í ráðinu um að kannaður yrði sá orðrómur, að unglingsstúlkum á leið heim úr miðbænum að nóttu til væri nauðgað. Starfsmenn Útideildar Félagsmála- stofnunar hafa staðfest að þessi orðrómur á við rök að styðj- ast, en þeim var falið að gera tillögur um úrbætur og aðgerðir. Á fundi félagsmálaráðs 4. nóvember var lögð fram könnun útideildarinnar, sem beindist einkum að því að fá yfirlit yfir fjölda unglinga í miðbænum tiltekiö föstudagskvöld, aldur þeirra, búsetu og hvernig þeir færu heim. Einnig hvort þeir myndu nota strætisvagna, ef þeir gengju fram yfir miðnætti um helgar. Helstu niðurstöður könnunarinnar eru að umrætt kvöld voru um 12—1400 unglingar í miðbænum þegar flest var. GÖMUL FÖT Á GÓÐU VERÐI Langflestir voru á aldrinum 15—16 ára. Áberandi er að fjöl- mennasti aldurshópurinn er 15 ára stelpur og að stelpur eru fjölmennari í yngri aldurshópum, strákar hins vegar í eldri hópnum. Um helmingur krakkanna var úr Reykjavík en hinn helmingurinn úr nágrannasveitarfélögunum. Flestir krakkanna segjast fara heim í leigubílum (38%), næststærsti kveðst taka strætó (27%). Átta af hundraði segj- ast ferðast á puttanum og í þeim hópi eru stelpur í meirihluta og flestar á aldrinum 13—16 ára. Þeir sem eftir eru segjast ýmist fara í eigin bíl, fá far með kunningjum eða labba heim. Tæplega 90% sögðusl mundu taka strætó ef hann væri í ferðum til kl. 3. Könnunin sem slík segir okkur ekkert um það, hvort stelp- um sé nauðgað þegar þær ,,húkka“ sér far á nóttunni. Hins vegar hefur sú umræða, sem hefur nú skapast um það mál, Ieitt til þess að fleiri stelpur segja frá sinni reynslu í þessu efni. Það virðist liggja alveg ljóst fyrir að það gerist. Starfsfólk útideildar hel'ur nú lagt fram tillögur um hvernig mæta skuli þessum vanda. Þær felast einkum í því að komið verði á næturferðum strætisvagna um helgar og að hafin verði samvinna við sveitarfélögin um sams konar þjónustu á þeirra vegum. Jafnframt er lagt til, að starfsmenn Útideildar haldi áfram að ræða þessi mál viö unglingana og aðstoði þá viö að leita réttar síns. Rétt er að geta þess að unglingsstúlkur hafa ekki snúið sér til lögreglu með kærureða umkvartanir. Bendirþað til þess að lögreglan þurfi að gera sér far um að vinna traust unglinganna fram yfir það sem nú er. Loks er stungið upp á því að leitað verði eftir samstarfi við nágrannasveitarfélögin um að þau gerist aðilar að kostnaði við Útideild, en slík samvinna mundi verða til þess að efla starf deildarinnar. Félagsmálaráð hefur ekki tekið afstöðu til þessara tillagna þegar þetta er skrifað. SVARTI TÚLIPANINN VESTURGÖTU 5, REYKJAVÍK Við teljum að hœgt hefði verið að koma með tillögur á borð við þessar strax og málinu var hreyft ífélagsmálaráði. I’aó þarf ekki mikið hugmyndaflug til að segja sér að strœtó-ferðir fram eftir nóttu um helgar fœkka þeim sem þurfa að fara á puttun- um heim. Slík tillaga ersjálfsögð. Sama má segja um tillöguna, sem lýtur að því að starfsmenn Útideildar ræði þessi mál við krakkana og gerist málsvarar þeirra. Það er jú Iþeirra verka- hring. Sjálfsagt er einnig að nágrannasveitarfélögin bregðist við þessum vanda. Allt hefði þetta þess vegna getað verið komið í gang núna. Ráðstafanir gegn því að nauðganir og annað ofbeldi gegn konum eigi sér stað þola enga bið. Pessi mál leysast ekki hversu oft sem fundað er um þau eða þau könnuð í bak og fyrir. Pað verður að bregðast við með öllum tiltœkum ráiðum. Nuuðganir og ofbeldi eru ekki persónuleg vandamál þeirra, sem fyrir þeim verða. Pað eru mál sem koma okkur öllum við og sem við erum samábyrg í að leysa. Nú er mál að ráð borgarinnar fari að láta til sín taka. GJ/Ms

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.