Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 24

Vera - 01.12.1985, Blaðsíða 24
Spjallað við Sigrúnu Guðmundsdóttur % Föt er manneskjunni nauðsynleg, allavega okkur sem búum á norðurhveli jarðar. En fötin eru mismunandi og margbreytileg. Ég mælti mér þessvegna mót við Sigrúnu Guðmundsdóttur fatahönnuð á kaffihúsi og bað hana að segja mér undan og ofan af högum sínum. Við fáum okkur hressingu og ég byrja að spyrja hana. ,,Að hanna föt 'veitir mér r í útrás Sigrún, hvenær fékkst þú áhuga á fatahönnun? „Áhugann hef ég haft frá því ég man eftir mér. Þegar ég var lítil var ég sísaumandi á dúkkurnar mínar, og ég haföi ávallt greiðan aögang aö saumavélinni hennar mömmu. Ég klippti alltaf eftir dúkkunum og saumaöi síöan saman. Siðar notaöi ég líkama minn til aö sauma eftir frekar en sniö. Á unglingsárunum sat ég oft heima um helgar aö sauma úr alls konar tuskum og teiknaöi skyssur. Þetta hefur sem sagt veriö aöal áhugamálið mitt síðan ég man eftir mér og ég ætlaöi alltaf að verða fatahönnuður.“ Hvaö gefur þér hugmyndir að fötunum þínum? „Ja, það er nú svo margt. Oft læt ég efnið ráöa því hvernig fötin verðaog kaupi sjaldan efni í einhver fyrirfram ákveðin föt. Stund- um hanna ég föt út frá einhverjum hlut t.d. fallegri tölu, húsi eöa tónlist. Meira aö segja þá dreymir mig hugmyndir að fötum, hvað sem er gefur mér hugmyndir. Föt eru í þrívídd, þau eru síbreytileg á manneskjunni. Mér þykir ekki nóg að teikna fötin, teikningin sýnir bara eina hlið. Föt eru eitthvað sem líf er í, þess vegna þykir mér nauðsynlegt aö máta flíkina á sjálfri mér og öðrum á meðan ég er að hanna hana.“ Hvaða möguleika hafa fatahönnuðir á íslandi að koma fötunum sínum á framfæri? „Það eru til ýmsar leiðir. Nokkrir hönnuðir eru fastráðnir hjá verksmiðjum og aðrir vinna „freelans“. Ef hönnuður vinnur fyrir verksmiðju, sem fjöldaframleiðir föt vinnur hann á allt annan hátt en ef hann hannar eingöngu módelföt. Aðalatriðið fyrir verksmiðj- una er auðvitað það að flíkin seljist.“ En aðrar leiðir til að koma fötum á framfæri? „Gallerí Langbrók var stofnað til að koma ýmsum listvarningi á framfæri. Gallerí Skrydda býður eingöngu upp á íslenska hönn- un, einnig Maríurnar, og Tískuhús Stellu.“ Hvernig er það I sambandi við fataframleiðendur, notfæra þeir sér fatahönnuði sem skyldi? „Mér finnst skilningur vera að aukast á nauösyn fatahönnuða. Samt vantar mikið á ennþá. Það þykir t.d. sjálfsagt að ráða fram- kvæmdastjóra og sölustjóra, en að ráða fatahönnuð þykir oft bara bruðl. Samband á milli framleiðenda og hönnuða er oft of lítið. 24

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.