Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 9

Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 9
Fyrir skömmu var greint frá því í danska blaðinu Information að laganefnd Evrópuþingsins hafi lagt fram skýrslu og tillögur varðandi rannsóknir og til- raunir með fóstur. Nefndin hvetur lönd Evrópu til að standa að sam- faemdri löggjöf um þessi mál, en í allflestum Evr- ópuríkjum er ekki um að ræða víðtæk lög sem taka til notkunar eða tilrauna með fóstur eða fósturvísa. Búast má við að umræður verði á Ráðgjafarþingi Evrópuráðsins áður en langt um líður. Á Ráðgjafar- þinginu sem skipað er þingmönnum frá Evrópu- nkjum, eiga sæti þrír íslenskir þingmenn, þeir Þor- valdur Garðar Kristjánsson, Ingvar Gíslason og Garðar Sigurðsson. Yfirskrift skýrslu laganefndarinnar er hvorki meira né minna en ’-Skýrsla um notkun fósturvísa og fóstra í greiningar-, lækninga-, visinda-, iðnaðar- og verslunarskyni". Hvatinn að gerð þessarar skýrslu og þeim tillögum sem laga- ^efnd Evrópuráðsins leggur fram er sá að grunur leikur á að snyrtivöruframleiðendur noti efni unnin úr fóstrum í yngingar- ^rem. í tillögunum er hvatt til þess að kannað sé hvað hæft sé í Þessum orðrómi og ennfremur að aðildarríki banni notkun fóstur- vísa og fóstra í verslunar- og iðnaðarskyni. Rétt er aö taka fram áður en lengra er haldiö að laganefndin 9erir skýran greinarmun á fósturvísi, annars vegar og fóstri, hins- vegar. Skilin þar á milli eru miðuð viö þriggja mánaða meðgöngu. En snúum okkur nú að tillögunum sjálfum. Nefndin telur að nota megi fóstur og fósturvísa í vísindaskyni og leggur til að heim- 'Þðar verði rannsóknir og tilraunir á lifandi fóstrum og fósturvís- uni hvort heldur er í móðurkviði eða í tilraunaglasi ef tilgangurinn er að auka lífslíkur þeirra eða þroska möguleika, en í öðrum tilfell- unt skuli tilraunir ekki vera leyfilegar. Þá segir í tillögunum að rennsóknir eða tilraunir með fósturvísa í tilraunaglösum skuli heimilaðar sé ákveðnum skilyrðum fullnægt, en þó því aðeins að ekki eigi síðar að koma þeim fyrir í móðurlífi konu. Skilyrðin eru eftirfarandi: □ Að markmið rannsóknanna sé að lækna eða greina alvarlega sjúkdóma eða bæta þá tækni sem notuð er við tæknifrjóvganir. Skilyrði er þó að ekki sé hægt að ná sama árangri með annars konar tilraunum, s.s. með tilraunum á dýrum. □ Tilraunir með fósturvísinn verða að eiga sér stað áður en 14 dagar eru liðnir frá frjóvgun. □ Rannsóknin/tilraunin verður að eiga sér stað á sjúkrahúsi eða tilraunastofu sem er undir opinberu eftirliti og stjórnun. □ Þegar þess er kostur er æskilegt að nefnd skipuð ólíkum aðil- um fylgist með rannsóknarverkefninu. Einnig er lagt til að bannað verði að halda lífi í fóstrum I þeim tilgangi að nota þau eða hluta þeirra síðar. Hvað varðar fósturvísa og fóstur er lagt til að því aðeins megi tilraunir eiga sér stað að þær þjóni mikilvægum tilgangi læknisfræðilega séð og ef ekki er hægt að ná sama árangri með tilraunum á dýrum. Rík áhersla er lögð á nauðsyn þess að engin tengsl séu á milli þeirra aðila (lækna) sem framkvæma fóstureyðingu og þeirra sem síðar koma til með að rannsakaeða gera tilraunir með fóstur- vísinn, og að slíkar rannsóknir/tilraunir séu gerðar með samþykki móður eða sæðisgjafa. Ennfremur að ekki megi undir nokkrum kringumstæðum nota lífvana fóstur eða fósturvísi í ágóðaskyni. Stærstur hluti tillagna laganefndarinnar fjallar um á hvern hátt ekki skuli vera leyfilegt að nota fósturvísa og fóstur. Lagt er til að bannað verði að framleiða einstaklinga með til- raunaglasaaðferðinni ef tilgangurinn er sá einn að gera tilraunir eða rannsóknir á fósturvísum hvort heldur er lifandi eða lífvana. Tilraunir með kynlausa æxlun eru einnig bannaðar og einrækt þ.e. að rækta á fram fleiri einstaklinga sem komnir eru af einu foreldri og hafa sömu arfgerð. Lagt er til að bannað veröi að mannlegum fósturvísum verði komið fyrir í móðurlífi annarra tegunda, og sömuleiðis það gagn- stæða, að t.d. apafóstri verði komið fyrir í móðurlífi konu. Loks er lagt til að bannað verði með lögum frjóvganir á milli teg- unda, og nefnt sem dæmi að egg geitar sé frjóvgað með sæði karlmanns, en slíkt myndi leiða til sköpunar einhverskonar skrímslis. Að lokum er lagt til að þung viðurlög liggi við brotum á þessum lögum. kaá. (Byggt á Information 18. sept. 1986) 9

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.