Vera


Vera - 01.02.1997, Blaðsíða 12

Vera - 01.02.1997, Blaðsíða 12
E R U LÁGU LAUNIN NÁTTÚRULÖGMÁL’ stéttarfélögum. Hér má t.d. nefna stjórnend- ur stórra og smárra stofnana, prófessora, héraðshjúkrunarfræðinga og nánast alla dýralækna. Bandalag háskólamanna reyndi svo sannariega að koma í veg fyrir að þetta yrði að veruleika en frumvarpið var barið í gegnum þingið," segir Martha og auðséð er að hún er enginn nýgræðingur í umræðum um kjaramál. Um fæðingarorlofsmálin segir hún: „Þarna var vegið að rétti þeirra félaga okkar sem verst standa, þ.e. rétti ungra kvenna, en okkur tókst að koma í veg fyrir þreyting- una sem hefði skert rétt okkar. Ríkisstarfs- menn hafa því enn sama rétt og áðurtil fæð- ingarorlofs þar sem ekki hefur verið samiö um annað. Við viljum líka samræma rétt for- eldra og semja um að feður geti tekið fæð- ingarorlof á launum." Veruleg atlaga var gerð aö lífeyrismálum opinberra starfsmanna en þar tókst að vinna varnarsigur til að koma í veg fyrir að gengið yrði á eignarrétt ríkisstarfsmanna. „í þessu máli voru vinnubrögð rikisins mjög slæm en þegar viðspyrnan var svona mikil rönkuðu menn við sér. Við lögðum á okkur mikla vinnu, ásamt starfsmönnum fjármála- ráðuneytisins, og tókst að búa til nýtt kerfi sem gefur jafnan rétt og við höfðum áður. Þetta sýnir að starfsmenn fjármálaráðuneyt- isins geta verið færir um rökhugsun!” segir Martha glettin og ánægð með þennan árangur. Fjármagnseigendur stærsti þrýstihópurinnn Þegar Martha er spurð um horfurnar í samn- ingamálunum segir hún að láglaunastefnan sé ein skæðasta meinsemd þjóðfélagsins og valdi því að launakerfið hér á landi sé miklu lægra en á Norðurlöndunum. Þó vita allir að víða eru hærri laun greidd enda efast Martha ekki um að hið opinbera og einka- aðilar geti greitt hærri laun. „Það er ekkert nýtt að samið sé úti T fyrirtækjunum og kom t.d. vel í Ijós þegartölur um raunveruleg laun VR-félaga voru þirtar. Launafólk hefur tekið fullan þáttí hagræðingu í rekstri undanfariö og á að njóta þeirrar hagræðingar. Það virðist hins vegar enginn vilji til að viðurkenna það sjónarmið og víðs fjarri að það hafi veriö gert. Mér virðist einn stór þrýstihópur ráða mestu í þjóðfélaginu. Það eru prmagnseig- endur sem setja kröfu um stöðugt meiri arð og hagræðingu. Þessi hópur fékk verulega lækkun skatta á arðgreiðslum á síðasta ári og tap ríkisins í þeim efnum kemur auövitað beint á kostnað launafólks. Að sjálfsögðu á að fara eins með tekjur, skattalega séð, hvaðan sem þær koma - hvort sem það er af vinnu eða ávöxtun fjármagns, í stað þess að skattleggja fjármagnstekjur með 10% skatti en launatekjur 42%. Það verður að rétta hlut heimilanna í landinu sem hafa safnað skuldum um leið og atvinnufyrirtæk- in hafa verið að lækka skuldir sínar," segir Martha með þunga. Veruleg hækkun dagvinnulauna En hverjar eru helstu kröfur aðildarfélaga Bandalags háskólamanna? „Veruleg hækk- un dagvinnulauna er helsta krafa allra félag- anna og þau félög þar sem yfirborganir tíðkast miða að því að þær geti færst inn T kjarasamninga,” segir Martha og bætir við að ekkert geti leiðrétt betur mismun á laun- um karla og kvenna eða þeirra sem hafa markaðsviðmiðun og hinna sem ekki njóta hennar. „Dagvinnulaun veröa einfaldlega að duga til framfærslu," heldur hún áfram og segir að krafan sé að viðmiðun launa byggi á fjórum þáttum: menntun, ábyrgð, hæfni og álagi. „Háskólamenn koma seint til starfa og þurfa því að ná ævitekjunum inn á styttri tíma en aðrir. Námslánaskuldir gera það einnig að verkum að þeir standa verr að vígi við öflun eigin húsnæðis. Það er því eðli- leg krafa að lágmarkslaun háskólamennt- aðs fólks séu nokkuð hærri en annarra og þvl er það skammarlegt að nýútskrifuðum háskólamönnum skuli greidd 75 þúsund krónur í byrjunarlaun. Flest félögin gera kröfu um að byrjunarlaun fari vel yfir 100 þúsund krónur og um stíganda í launum á starfsferlinum. Um þá röksemd launagreiðenda að ekki megi hækka laun hér meira en í nágranna- löndunum segir Martha að markmiðið sé einmitt að ná sambærileg- um launum og í þeim lönd- um en til þess verði að taka stærri skref hér. „Ef laun hér hækka um 10% yrði það sambærilegt við aö þau hækkuðu um 5% á Norður- löndunum,” segir hún og bætir við aö íslenskt launa- fólk telji sig eiga töluvert inni hjá atvinnurekendum. „Hér þarf fólk að leggja á sig óheyrilega yfirvinnu til þess að ná þvT sama og sambærilegar stétt- ir á Norðurlöndum fá fyrir dagvinnu.” Siöferöilegar gildrur lagöar fyrir forstööumenn Aö lokum lýsir Martha áhyggjum sínum yfir þeirri stefnu rikisins að færa vald í hendur forstöðumanna rikisfýrirtækja með því að veita þeim heimild til að greiða viðbótar- laun. Hún telur afar brýnt að um slíkt verði samið í kjarasamningum. „Atvinnurekendur miða að því að semja í auknum mæli beint við starfsfólkið og minnka afskipti stéttarfé- laganna af samningum. Þetta heitir á máli þeirra „að draga úr miðstýringu” en ég sé enga valddreifingu T þvt að forstöðumenn fái slíkt geðþóttavald. Þetta er auðvitað yfirlýs- ing um að stéttarfélögin hafi staðið sig vel!" segir hún á léttu nótunum en verður svo aft- ur alvarleg. „Þessi nýja stefna hefur ekkert fengist rædd; t.d. hvort, hvenær og fyrir hvað slík viðbótarlaun skuli greidd. Mér sýn- ist að forstöðumenn stofnana muni fá ákveðna upphæð, sem þeir eiga að standa skil á gagnvart Ijármálaráðuneytinu, og ef þeir hafa fé aflögu innan þess ramma megi þeir borga starfsfólki eftir eigin geðþótta. Áfram á að greiða lágmarkslaun en sTðan mega forstöðumenn ráða hverjum þeir borga meira eða geta jafnvel notað afgangs- féð í reksturinn. Það eru margar siðferðilega vafasamar gildrur lagðar fyrir forstöðumenn með þessu og eitt er vTst að þetta fýrirkomu- lag felur í sér margar hættur fyrir konur. Því ógagnsærra sem launakerfið er þess óhag- stæðara er það fyrir konur. Þetta gæti líka komið illa út fyrir fólk sem hefur haft afskipti af kjaramálum á vinnustað. Forstöðumaður- inn hefur launahækkanir T hendi sér því stefna ríkisins er að takmarka sjálfkrafa hækkanir eftir aldri og menntun. Almennt séð hafa aðildarfélög Bandalags háskóla- manna það að markmiði að það sé á hreinu hver launin eru. Við viljum ekki innleiða þá stefnu að fólk megi ekki vita hvað næsti maður fær í laun, eins og ttðkast í einkafýr- irtækjum.” Á sl. ári kom til tals að leggja fram sameiginlegar kröfur um laun fyrir konur. Um það segir Martha: „Hjá Bandalagi háskóla- manna var sú stefna tekin að leggja til grundvallar sömu viðmiöun og gert er T kynhlutlausu starfsmati, þ.e. menntun, aldur, ábyrgð og álag. Viö getum ekki sætt okkur við neitt minna en að fá sömu laun og karl- menn. Við vorum ekki sendar til mennta nema til þess að hafa nákvæmlega sömu möguleika og strákarnir,” segir Martha með krafti og í kaupbæti fylgir hressilegt bros. E.Þ. Því ógagnsærra sem launakerfið er þess óhag- stæðara er það fyrir konur.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.