Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Síða 9

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Síða 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 5 barna í hundraSa- og þúsundatali, og telst svo til að ungbarna- dauði sje sjöfalt meiri meðal pelabarna, en þeirra barna, sem lögS eru á brjóst. Mjer þykir trúlegt, aS munurinn sje ekki eins mikill hjer á landi, en mikill mun hann samt áreiðanlega vera. Eins og ljósmæðrum er kunnugt, stendur yfir rannsókn á þessu efni með þeirra hjálp, og vænta læknar þess, að Ijósmæður sýni alúð við að svara með nákvæmni fyrirspurnunum á hinum út- sendu eyðublöðum. pótt ekki sje enn sýnt með tölum fram á hollustu brjóstamjólkunnnar hjer á landi, bendir reynsla íslenskra lækna og ljósmæðra á, að ungbörnunum sje best borgið við móö- urfcrjóstið. Nýlega hefir greinagóð ljósmóðir í Reykjavík tjáð mjer, að sjúkleiki vegna meltingarkvilla sje að sinni reynslu til- tölulega minni meðal íátækra í ljelegum íbúðum hjer í bæ, held- ur en hjá efnuðu fólki, sem hefir holl húsakynni. Ljósmóðirin er ekki í vafa um, hverju þetta sætir. Hún segir að fátæku mæð- urnar leggi að heita má allar börnin sín á brjóst, og hafi ]?au á brjósti þangað til ]?au eru komin hátt á annað misserið. Lífs- kjör þeirra eru þannig, að ]?ær freistast ekki til að hliðra sjer hjá þessari móðurskyldu sinni, að leggja börnin á brjóst. Konur þessar komast ekki að heiman, ]?ótt ]?ær vildu, ]?ví hjálpin er engin; J?ær eru því að heita má ætíð heima, og auk ]?ess er cdýrara og umstangsminna að hafa börnin á brjósti. Oðru máli er að gegna um mæður í betri kringumstæðum. pær freistast ti! að hafa börnin skemur á brjósti. Húsmæðurnar hafa stúlkur og geta ]?ví verið lausari við heimilið, en falið öðrum að útbúa pel- ann handa vöggubarninu. Jeg hygg að skýring ljósmóðurinnar sje laukrjett. Hvers vegna er móðurmjóU(tn hollari en pe\inn? I. Mjólkin kemur frá móðurbrjóstinu án ]?ess að hana ]?urfi að nokkru Ieyti að matreiða eða breyta. Móðir vor, náttúran, heftr sjeð svo um, áð í brjóstamjólkinni eru efnin í ]?eirri blöndu, sem við- ráðanleg eru fyrir meltingarfæri ungbarnsins. Kúamjólkina ]?arf aftur á móti að þynna með vatni og bæta í hana sykri, til ]?ess að gera hana auðmeltari, en vitanlega fer slíkt oft í handa- skolum, og altítt er, að pelabörnum er ýmist gefið á pelann ]?unt

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.