Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Blaðsíða 70

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Blaðsíða 70
70 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 Fréttir DV T ALLAR DRAGTIR FRÁ BRANDTEX Á 30% AFSLÆTTI Opnunartími frá kl. 10 - 22 alla daga fram að jólum. 24. des. frá kl. 10-12 Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Af hverju nýtur stjórnin ekki? Af hverju er fólk svona reitt? spurði staðfastur stuðningsmaður ríkisstjómarinnar mig um daginn. Hann skildi ekki hvers vegna svo ágæt stjórn nytí ekki meiri stuðnings. Bullandi uppgangur alls staðar, al- menn velmegun. Nú kemur enn ein skoðanakönnunin sem staðfestir þessa tilhneigingu. Stjómarflokk- arnir hafa minnihluta kjósenda á bak við sig, Sjálfstæðisflokkur 35 prósent, Framsóknarflokkur ekki nema 11 prósent. Á meðan em vinstri flokk- amir nálægt hámarksfylgi. Samfylk- ing yfir 30 prósentum og Vinstri grænir með hátt í 20 prósent. Önuglyndið gýs upp hvað eft- ir annað Já, hvers vegna er fólk svona reitt? Við þessu em varla nein einföld svör - við erum að ræða um hugarástand sem hefur verið að þróast nokkuð lengi. Það er náttúrlega í hæsta máta óvenjulegt að flokkur sem nýtur ekki nema 11 prósenta fylgis skuli hafa forsætísráðherraembættíð - og að það skuli ekki duga honum til meira fylgis. Það er einhver þreyta í stjóm- málunum. Önuglyndi sem gýs hvað eftir annað upp - síðast í þinginu á mánudaginn þegar rætt var um stuðninginn við íraksstríðið. Tiltrúin á stjómmálamenn er í algjöru lág- marki. Mörgum finnst leiðinlegt að heyra þá tjá sig. Bankarnir búnir að stela glæpnum Samt er verið að efiia kosningalof- orð, nokkuð nákvæmlega. Framsókn á raunar ekki mikið inni vegna lof- orðsins um 90 prósenta húsnæðis- lánin; það var beinlínis erindi Áma Magnússonar inn í félagsmálaráðu- neytíð að koma því í kring. En þama em bankamir búnir að stela glæpn- um - það standa yfir harðvítug og flókin átök mifli þeirra og íbúðarlána- sjóðs. Núna um helgina reynir hann að bjóða betur. En miðað við þróun í viskiptum á undanfömum árum mtm hinn opinberi sjóður tapa þess- ari baráttu. Ruglingsleg afstaða Samfylk- ingar Geir Haarde var sármóðgaður um daginn vegna þess að skattalækkan- imar hans höfðu verið þaggaðar nið- ur og afbakaðar á allan hátt. Sagði hann. Að sumu leytí getur hann sjálf- um sér um kennt. Hann steig mjög seint fram á sviðið tfl að gera sér mat úr málinu - forystumenn ríkisstjóm- arinnar em Svo sem ekki mjög spenntir fyrir að gefa færi á viðtölum - í staðinn fyrir að halda fund á fyrsta degi tfl að boða stórkostlegar skatta- lækkanir, má segja að stjómarand- staðan hafi stolið glæpnum með hrópum sínum um glapræði. Afstaða Samfylkingarinnar var raunar svo mglingsleg að það er ekkert ótrúlegt að símastrákur hafi búið tfl stefriuna - en Steingrímur J. fór víða og talaði af miklum sannfæringarkraftí. Verður Seðlabankinn einn um að berjast gegn verðbólg- unni? Skattalækkanimar vekja náttúr- lega ákveðinn fögnuð. Guðmundur hjá Rafiðnaðarsambandinu var í þættí hjá mér og lýstí því hversu mik- ið ráðstöfunartekjur félagsmanna sinna myndu hækka. En á sama tfrna er verið að hækka alls konar gjöld. Það h'tur allt annað en vel út - gerir ekkert annað en að renna stoðum undir þann málflutning að þetta verði bara rukkað inn með öðm mótí. Að við fáum að borga með einum eða öðrum hættí. Ekki einu sinni Birgir ísleifur í Seðlabankanum trúir því að ekki fari af stað einhver óráðsía í fjár- málum - verður bankinn látínn einn um að berjast gegn verðbólgunni? Tilþrifalitlir og talhlýðnir Foringjaræðið er að sumu leyti styrkur stjómarflokkanna; þeir em óneitanlega miklir foringjar Davíð og Halldór, þeir hafa sterka stjórn á öilu, em lausir við vingulsháttinn sem vfll einkenna Samfylkinguna. En um leið er þetta veikleiki. Einkenni þessara stjómarhátta er geðþóttaræði - það gerist ekki neitt nema leiðtogamir séu í stuði. Ákvarðanir em ekki rædd- ar eða útskýrðar. Inni í ríkisstjóminni er innri ríkisstjóm sem öllu ræður. í þessu ástandi vaxa upp tflþrifalitlir og talhlýðnir stjómmálamenn sem kunna að ganga í takt og taka enga áhættu með því að hafa sjálfstæðar skoðanir. Þessi tegund af mannauðs- stjómim boðar ekki gott fyrir ffam- tíðina - ætti að vera áhyggjuefni fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknar- flokkinn. Samræðustjórn eru skammar- yrði hér í vikunni var frétt í útvarpinu um Kjell Magne Bondevik, forsætísráð- herra Noregs, og Evrópusambandið. Bondevik segist ekki lengur vera ýkja viss í afstöðu sinni tfl ESB - áður barðist hann kröftuglega gegn því. Nú er hann að hugsa málið - telur að eitthvað afdrifaríkt muni gerast inn- an þriggja ára. Svona tala leiðtogamir ekki á lslandi - það væri tahð veik- leikamerki. Líklega hlegið. Samræðu- stjómmál er hálfgert skammaryrði. Algeng viðbrögð við þjóðfélagsum- ræðu er fuss og svei og tuð um hvað þetta sé nú allt vitleysislegt. Af hverju mátti Hjálmar ekki hafa sína skoðun? Ástandið í þinginu á mánudag bar vott um þetta. Einn þingmaður í stjómarliðinu - sem annars er vanur að vera nokkuð staðfastur - hljóp út undan sér og sagði að tfl greina kæmi að hætta við stuðninginn við íraks- sm'ðið. Það gekk allt af göflunum. En kannski hefði verið allt í lagi að láta bara kyrrt hggja. Að leyfa Hjálm- ari Ámasyni að vera ffjálsum skoð- ana sinna - segja tfl dæmis að þetta megi hann nú alveg, flokkamir getí vel rúmað svona skoðanamun, þótt þetta sé kannski misskilningur hjá honum. í Framsókn ti'ðkaðist það í eina tíð að flokksmenn máttu hafa ólíkar skoðanir á herstöðinni í Kefla- vík. Það skaðaði flokkinn ekki vitund. f Sjálfstæðisflokknum hefur mönn- um leyfst að hafa ólíkar skoðanir á sjávarútvegsmálum, þótt nokkuð hafi verið að þrengjast um þær á síð- ustu árum. Afturhaldskommatitts- flokkurinn í staðinn var hin pfriulitla uppreisn Hjálmars barin niður með látum. Það ber fremur vott um að menn vití ekki alveg hvað þeir eigi að gera við afl sitt en alvöru styrk. Davíð sýndi gamal- kunna talcta. Mönnum fannst þeir sjá að hann væri ekkert sérstaklega breyttur þótt hann hefði farið á sjúkra- hús. Orðið „afturhaldskommatitts- flokkur" verður sjálfsagt sígflt - það er ekld oft núorðið sem menn hrópa að andstæðingamir séu kommar. Næst- Egill Helgason Laugardagskj allari um að maður fylhst fortíðarþrá. í þing- fréttum Moggans í gamla daga var alltaf lætt htlu (k)-i í sviga aftan við nöfii þingmanna Alþýðubandalagsins - les: kommúnistar. Pólitískur flóttamaður í Garðabæ í Reykjavík er nýr borgarstjóri tek- inn við. Það birtíst skoðanakönnun um stöðu flokkanna í borginni. Þrátt fyrir skuldasúpu, afleita ffammistöðu í skipulagsmálum, kennaraverkfall og ruglinginn með borgarstjórann, var niðurstaðan næstum alveg sú sama og í síðustu kosningum, 53-41 fyrir R-hstann. Öruggur meirihlutí. Líklega er það satt sem ég hef sagt að R-hstírm getí stfllt upp kókkassa og samt unnið borgina. Borgarbúar hneigjast einfaldlega meira tfl vinstri en áður, íbúasamsetningin hefur breyst - meirihluti þeirra getur seint hugsað sér að kjósa Sjálfstæðisflokk- inn. Mikið af hægri mönnum hefur flutt í útborgimar hér í kring - einn þekktur sjálfstæðismaður hefur lýst því yfir að hann sé póhtískur flótta- maður í Garðabæ. Þá nýtíst atkvæðið hans ekki í borginni. Enginn munur á Vilhjálmi og R-listanum Þetta hlýtur að vera hugraunfyrir Sjálfstæðisflokkinn. Flokksmenn dreymir enn um að endurheimta borgina, gamla höfúðvígið, djásnið í krúnunni. Það er varla hægt nema R- hstínn splundrist í frumparta. Samt er ekki víst að þá yrði flokkurinn neitt sterkari en Samfylldngin í borginni. Sjálfstæðismenn hafa oddvita í Reykjavík sem þeir em að reyna að hafa trú á; þetta er ágætlega traustur maður, vel að sér um innviði kerfis- ins, en ekkert sérlega spennandi. Maður sér hann alveg eins fyrir sér sem embættismann. Það veikir hann í póhti'skri baráttu að hann er for- maður Sambands íslenskra sveitarfé- laga, talsmaður samtakanna út á við - og getur því trauðla gagnrýnt R-hst- ann nema að móðga marga aðra sveitarstjómarmenn í leiðinni. í raun myndi Vilhjálmur sóma sér ágætlega í meirihlutanum með R-hsta hðinu - maður sér nokkum veginn engan mun. Gömlum konum ekið á kjör- stað í bílförmum Maður horfir aftur tfl fortíðar þeg- ar Sjálfstæðisflokkurinn hafði leið- toga í borginni eins og Bjama Ben, Gunnar Thoroddssen, Geir Hall- grímsson og Davíð Oddsson. Þá þurftu sjálfstæðismenn aldrei að ef- ast um sigur. Gömlum konum var ekið á kjörstað í bílförmum; flokkur- inn útdefldi lóðum, leyfum og öhum lífsins gæðum. Vinstri menn hröktust í Kópavog tfl að koma sér upp hús- næði. Þessi tfrni kemur ekki aftur, enda má kannski segja að þetta hafi haft ýmis merki frumbýlingssamfé- lags. ítalir kalla fyrirbærið „chentehs- mo . R-listinn hefur þetta í hendi sér Eins og stendur virðist R-hstí hafa þetta mestaht í hendi sér. Hann getur náttúrlega eyðflagt sjálfan sig í innri baráttu, flokkadráttum og öfund. Svo er líka spuming um ýmis vafasöm mál sem em stöðugt að gerjast kring- um Orkuveitu Reykjavíkur og Alfreð Þorsteinsson. Einhvem veginn kom- ast þau ekki í hámæh. Kannski vegna áhugaleysis fjölmiðla - eða kannski vegna þess að þeir ná ekki alveg utan um máhð. Það hlýtur að teljast af- skaplega óeðlflegt að Alfreð vflji ekki sýna gögn sem eiga að vera opinber. Hann hefur bara sína hentisemi likt og fyrri daginn. Og hinir borgarfrfll- trúamir verða flóttalegir þegar minnst er á þetta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.