Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2005, Blaðsíða 3
! DV Fyrst og fremst MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 2005 3 Skemmdarverk á Hallveigarstíg! Spurning dagsins Hvað finnst þér um lækkun sekta á olíufélögin? Ábyrgð einstaklinganna forvitnileg „Það er stórfurðulegt hvernig þessir menn gátu hikstalaust logið því að fólki að sam- keppni á þeirra markaði væri trygg og hörð. Mér finnst forvitniiegt að sjá hvað gerist í framhaldinu, hvort einstaklingarnir sem leiddu samráðið veröi sóttir til saka.“ Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags íslands. „Samráðið er staðfest en ég geld nú samt varhug við of háum sektum, þærgetakom- ið í bak neyt- enda með hærra olíuverði. Þetta sýnir þó að Samkeppnisstofnun virkar en staðfestir um leið að hana þarfað efla margfalt." Gunnar Örlygsson, alþingis- maður Frjálslyndra. Skyndimyndin Þegar gengið er framhjá höfuðstöðvum Samfylkingarinnar á Hallveigarstíg í Reykjavík sést það sem sumir myndu kalla „skemmdarverk" á merkingu flokksins ffaman á húsinu. Þar hefur einhver breytt nafni Samfylkingarinnar í það sem virðist vera Samfuking! Þeir sem til þekkja telja lidar líkur á að þama sé um að ræða skemmdarverk af hálfu sjálfstæðismanna og Karl Th. Birgis- son, sem er enn framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, segist ekki hafa rekið augun í þetta. „Nei, ég geng aiitaf inn bakdyramegin og hef því ekki tekið eftir þessu," segir hann og bætir við: „Er þetta ekki bara eitt- hvert ungt fólk sem þarf að fá útrás fyrir sköpunargleði sína sem hefur gert þetta?" Og svo virðist sem sköpunargleðin sé mikil. Víðs vegar í Þingholtinu má líta krot á veggjum og slagorð að hætti unga fólksins. Varðandi skemmdarverkið á Hallveigarstíg höfðu nokkrir vegfarendur á orði að þetta væri afar listrænt og dæmi um hvemig breyta megi venjulegum hlutum í eitthvað sem vekur athygli og umhugsun. „I sjálfu sér er ekki aðalatrið- ið hversu há þessi fjárhæð erheidursú staðfesting sem fram kem- ur í áliti áfrýj- unarnefndar og að þar með geti viðskiptavinir oiíuféiaganna sótt sínar bætur út frá því. “ Friðirk J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ. „Það hefði verið eðlilegt að menn greiddu það sem upp var sett í fyrstu, sér- stakiega þar sem neytendur hafa borgað brúsann. En von- andi verður þetta til þess að stofnunin fer að skoða sam- keppnismál í öðrum geirum, eins og tryggingamarkaðinn." Katrín Jakobsdóttir, varafor- maður Vinstri-grænna. „Eg þarfað fá að vita hvers vegna þetta var lækkað áður en ég get fallist á það. Annars fær maður aldrei svör við spurning- um sem skipta máli, hvort sem það er íraksmálið eða þetta ol- íusamráð. “ Steinunn Helga Jakobsdótt- ir, ritstjóri Orðlauss. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála lækkaði sektir olíufélaganna þriggja vegna verðsamráðs um rúman milljarð króna. Nefndin staðfesti þó umfangsmikið samráð um níu ára skeið. Stjúpsystur skemmta í Þórscafé 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 13 14 ' I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I Gamla myndin að þessu sinni er frá 1985. Þar má sjá skemmti- flokkinn Stjúpsystur syngja og dansa i Þórscafé. Stjúpsystur voru Guðrún Alfreðsdóttir, G uð- rún Þórðardóttir ogSaga Jóns- dóttir. Guðrún Þórðardóttir segir 4 þetta tímabil sér í fersku minni. „Þarna erum við að gera Þórscabarett svokallaðan. Við Stjúpsystur vorum allar leikkonur og skemmtum þarna í Þórscafé og einnig á árshátiöum og öðru. Við sungum Andrewssisters-lög og gerðum grin." Guðrún segir ástæðu fyrir því að þær stöllursettu upp þessa sýningu hafa verið að mynda mótvægi við kariana sem áttu skemmtibransann á þess- um tima.„Við vorum með i revlu sem Gfsli Rúnar setti upp ásamt Ladda, ErniÁrna og fleirum. Svo voru þeir strákarnir ráðnir á Hótel Sögu „Best vær/ náttúrlega ao þingmannslaunin fekkuðu . niöur itiuþúsund krónur þviþá hefði enginn efni áJv!°*£yl - þingi nema ég og þá réö\ ég ó lu. Pétur Blöndal alþmgismaöur, i viötali viö DV ímai 1999. - með skemmtidagskrá en ekki við. Við vorum ekkert hressar meðþað og buðum þvi fram þetta prógramm. Þannig vorum við orðnar fyrstu konurnar sem voru saman Ihóp að skemmta og grfna,"segir Guðrún. Guðrún segir tfmann sem þær vin- konur voru með sýninguna hafa verið skemmtilegan og fjölbreyttan.„Við enduðum svo ferilinn á að gera sjónvarpsþátt sem hét Gletturog varsýndur fSjónvarpinu 1989." Stjúpsystur eru enn miklar vinkonur f dag þó þær séu allar að gera sitt hvern hlutinn. Saga Jónsdóttir vinnur í leikhúsinu á Akur- eyri, Guðrún Aifreðsdóttir setti á stofn eigin fótaaðgerðarstofu og Guðrún Þórðar vinnur nú sem verkefnastjóri við gerð gagnvirks barna- efnis fyrir DVD Kids. „Þaðerægilega spennandi starf," segirhún. NTTE veno Gron the med artiskok \ Málið Orðtakiö að falla í kaldakol (til kaldra kola) þýöir að eitthvað verði að engu, deyi út. Orðtakið er kunnugt frá 20. öld og frá 18. öld eru dæmi um notk- un á þvi í tengslum við að eitthvað fer í eyði. I fornum norskum lögum er títt orðasambandið að gera kaldakol á jörðu manns og táknar að láta eldinn brenna út á arni heimilisins. Iorðtök- unum merkja kaldakol og köld kol þvl í rauninni útbrunnin kol. ÞEIR ERU SYSTKINABORN Rokkarinn & rithöfundurinn Guömundur Rúnar Júlíusson, eða Rúni Júl, og Árni Bergmann rithöf- undur og blaðamaður eru náskyldir. Þeir eru afhinni al-keflvlsku Berg- mann-ætt, en móöir Rokkarans var Guðrún Bergmann, systir Jóhanns Bergmann föður Árna. Frændurnir eru bornir og barnfæddir Kefivíkingar en rithöfundurinn flutti ungur úr bænum til að sigra heiminn á meðan Rúnar sigraði hann heima. Það eru fáir meiri Keflvlkingar en Rúni Júl og Árna er tíðrætt um heimahagana. Eflir orku og úthald Eykur fitubrennslu • Styrkir ónæmiskerfið Örvar efnaskiptin • Stuðlar að jafnvægi blóðsykurs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.