Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.2005, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 12. MARS 2005 Helgarblað DV Ólafur Darri Ólafsson hefur ekki setið auðum höndum frá því að hann útskrifaðist úr Leiklistarskóla ís- lands árið 1998. Hann sló eftirminnilega í gegn sem fóstran í Rómeó og Júlíu og hlaut leiklistaverðlaun- in Grímuna fyrir leik sinn í Kvetch en þetta tvennt er bara brot af því. Hann stendur í ströngu þessa dagana við að æfa leikrit sem byggt er á töfrabrögðum Houdini en að hans sögn er það einsdæmi að töfrar og leiklist séu sameinuð á þennan hátt. „í sýningunni koma saman trúðar, hverfilistamenn sem er ný- yrði af enska orðinu escape artist og leikarar svo þetta er ótrú- lega fjölbreytt og umfram allt skemmtileg sýning," segir Darri en sýning af þessum toga hefur aldrei verið sett upp hérlendis en hún sameinar leikhús, sirkús og töfrabrögð. „Sá sem á veg og vanda að sýning- unni er Wayne Harrisson sem er leik- stjórinn okkar. Hann á í rauninni heimili á þremur stöðum því hann starfar út um allan heim, það er á Bret- landseyjum, Astrah'u og Suður- Afr- íku," segir Darri og tekur fram að Wayne sé alger sniilingur á sínu sviði. Alltaf gaman í vinnunni „Mér flnnst alltaf gaman í vinnunni og þannig á það að vera. Ég er oft eins og lítill krakki á æfingum því það er svo gaman að fylgjast með þessu ótrú- lega fólki við vinnu sína, þetta er auð- vitað algerlega stórbrotið, þessir töfrar em náttúrulega magnaðir, það er ótrúlegt að sjá þessar sjónhverfingar eiga sér stað,“ segir Darri. „Mitt hlut- verk í sýningunni er ótrúlega skemmtilegt, ég leik sirkússtjóra svo ég fæ að hafa góða yfirsýn yfir allt. Ég er í rauninni að stjóma öllu heUa klabbinu. Þetta er alveg sérstaklega skemmtílegur karakter," segir Darri en hann fer án efa á kostum í þessu hlut- verki en Houdini snýr aftur verður frumsýnt þann 23. mars og verður bara sýnt um páskana svo það er um að gera fyrir aUa að verða sér út um miða sem allra fyrst. Það sem er næst á döfinni hjá Darra er leikritið Rambo VII eftir Jón Atla Jónasson sem sýnt verður í ÞjóðleUchúsinu, kvikmyndin Kvikyndi sem Vesturport gerir í leUc- stjóm Ragnars Bragasonar og leikritið Glæpur gegn diskóinu í leikstjórn Agn- ars Jóns EgUssonar svo það má segja að dagskráin sé fuUhlaðin hjá Darra um þessar mundir. Houdini var frumkvöðull Sýningin er að byggð á töfrabrögð- um Harry Houdini en hann er talinn mesti töffamaður fyrr og síðar. „Hverfilistamaðurinn Dean Gunnar- son er stór hluti sýningarinnar en hon- um hefur verið lýst sem einum mesta hverfilistamanni heims, í raun arftaki Houdini," segir Darri en margir muna eflaust eftir Dean þegar honum tókst að losa sig úr spennitreyju hangandi í 242 metra krana yfir Hoover-stíflunni um árið. Það uppátæki hefur verið kaUað frægasta flóttaatriði heims. Darri talar um að það sé frábært að fá að vera með í sýningu um þennan fr á- bæra töframann. „Harry Houdini var frumkvöðuU á sviði hverffiistarinnar og það er gaman frá því að segja að hann var einmitt Iíka einn ffumkvöðla þess að nýta sér fjölmiðla tíl ffam- dráttar. Hann var aUtaf duglegur við Glæsileg Ástin I lífi Darra, dansarinn Lovlsa Ósk Gunnarsdóttir. „Mér firmst alltaf gaman i vinnunni og þannig á það að vera. Ég er oft eins og lítill krakki á æfingum því það er svo gaman að fylgjast með þessu ótrúiega fólki við vinnu sína. að tilkynna fjölmiðlum uppátæki sín og fá þá tíl að fylgjast með sér," segir Darri og bætir við að það séu alger for- réttindi að fá að starfa með öUu þessu listafólki sem kemur að sýningunni sem kemur hvaðanæva úr heiminum. Sjaldan verið í betra formi Darri er stór og mikiU maður og það var óumflýjanlegt að spytja hann að því hvort vaxtarlag hans hafi ein- hver áhrif á það hvaða hlutverk hann fái. „Ja, vissulega hefur það einhver áhrif en ekkert óeðlUega samt. Ég hef verið svo heppinn að fá samt sem áður alveg ótrúlega fjölbreytt hlutverk þó að ég fái nú samt oft svona bangsastimp- U. En sem betur fer eru ekki allir leikar- ar eins. Hver ætti tíl dæmis að leika OUver Twist ef allir væru eins og ég?" segir Darri hlæjandi. Það er þó ekki úr vegi að taka fram að þegar sýningar á Rómeó og Júh'u stóðu yfir í London voru átta sýningar á vUcu og eðU máls- ins samkvæmt komst Darri í gríðargott form, hefur að eigin sögn sjaldan verið í betra formi. Brúðkaup á döfinni Hin guUfaUega og hæfileikaríka Lovísa Ósk Gunnarsdóttir dansari er unnusta Darra en þau hafa verið sam- an í hartnær tvö ár. Lovísu er margt tíl lista lagt en hún mun verða tíður gest- ur á skjám landsmanna von bráðar þar sem hún þreytir frumraun sína í leikUst í þáttunum KaUakaffi sem sýndir verða á RÚV. Hún er einnig danshöfundur í Moulan Rouge sem Fjölbrautaskólinn í Garðabæ ffurn- Harry Houdini fæddist þann 24. mars 1874 í Ungverjalandi. Hann laug því til að hann hefði fæðst I Bandarikjun- um en á þessum tíma vildu allir vera Ameríkanar. Hann vakti fljótlega athygli fyrir listina að hverfa en allir siðari tima töfra-og sjónhverfingamenn fóru að bera sig við hann og báru fyrir honum ótakmark- aða virðingu. Meðal bragðanna sem Houdini varð frægur fyrir var að losa sig úralls kyns fjötrum, til sýndi í vikunni. „Það er vor í loftinu og ástin er efdr því," segir þessi stór- skemmtUegi leikari og bætir við að lokum að hver viti nema það sé brúð- kaup á næsta leiti. dæmis handjárnum og spenni- treyju, hann lokaði sig í kassa mað vatni í lengri tíma og var grafinn í mold. Árið 1926 gaf áhorfandi honum bylm- ingshögg í magann og tveim- ur vikum seinna hneig hann niður á sýningu og lést. Talið var að höggið sem hann fékk hefði orsakað innvortis blæðing- ar. Houdini skildi eftir sig feril sem allir sjónhverf- inga- og töfra- menn allttildags- ins í dag hafa haft að leiðarljósi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.