Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ2005 Fréttir DV Eiðurfær riddarakross „Ég er alveg í skýjun- um,“ segir AmórGuðjohn- sen, faðir knattspymu- kappans Eiðs Guðjohnsen. Eiður Smári var í gærmorg- un sæmdur riddarakrossi, heiðursmerki hinnar ís- lensku fálkaorðu, fyrir íþróttaafrek sín, við hátíð- lega athöfn á Bessastöðum. Færst hefur í vöxt að íþróttamenn fái þessa eftir- sóttu orðu og skipaði Eiður sér því í hóp afreksmanna eins og Ólafs Stefánssonar handboltakappa sem hlaut orðuna í fyrra. Arnór hafði ekki heyrt í Eiði eftir að at- höfnin fór ftEim. GefurAmnesty bæturnar Þrír menn sem stefndu rikinu vegna ólögmætra af- skipta af mótmælum þeirra, hafa ákveðið að gefa til góðgerðarmála þá upp- hæð sem þeim hefur verið greidd í skaðabætur. Einn mannanna, Jón Þór Ólafs- son, ætlar að gefa þær nítíu þúsund krónur sem honum verða greiddar til Amnesty International. „Grundvall- armannréttindi okkar voru brotin og því finnst mér rétt að þessir peningar renni tÚ samtaka sem standa vörð um mannrétt- indi fólks um allan heim," segir Jón Þór. Rússarvilja minnisvarða Að sögn Halldórs Halldórssonar, bæjar- stjóra á ísafirði íhuga Rússar að setja upp minnismerki vegna stór- slyss sem varð þegar skipalest bandamanna í síðarl heimsstyrjöldinni sigldi inn í hmdurdufla- keðju norðvestur af Straumnesi. Um 300 manns fórust í slysinu. Sendihérra Rússlands á íslandi, Alexander Rannikh, var á ferð um Vestfirði fyrir skemmstu af þessu tilefni ásamt eig- inkonu sinni. Hugmynd- in er að setja upp niinn- ismerki á ísafirði og vígja það í júlí á þessu ári. Nemendur Þorfinns Ómarssonar, kennara í Qölmiðlafræði í Háskóla íslands eru æfir yfir seinagangi Þorfinns við að skila þeim einkunnum. Á póstlista nemend- anna ræða þeir aðgerðir og segjast meðal annars vilja grýta Þorfinn með eggjum. Sjálfur er Þorfinnur kominn í nýja vinnu en lofar einkunnum á næstunni. Nemendur Þorlinns vilja grýta bann meö eggjum „Þetta er bara að klára sig,“ segir Þorfinnur Ómarsson, sem látið hefur af störfum í fjölmiðlafræðiskor Háskóla íslands og vinnur nú að verkefni sem heitir Base Camp. Þorfinnur hefur ekki enn skilað nemendum sínum einkunnum og eru þeir orðnir lang- þreyttir á biðinni. „Jú, ég er byrjaður að vinna að verkefni sem heitir Base Camp sem er mjög spennandi. Svo var ég að skipu- leggja Grímuna þannig að þetta hefur verið mikil törn.“ „Ég veit að ég er seinn en það hefur verið mikið að gera í nýju vinnunni og svo var ég að skipu- leggja Grímuna," segir Þorfinnur sem átti að skila einkunnum 1. júní, en prófmisserinu lauk í lok apríl. Þorfinnur segir þessa tvo áfanga vera próflausa og því stór verkefni sem þurfti að fara yfir. „Svo hittir þetta erfiðan tíma þótt það sé engin afsökun í sjálfu sér." Óánægðir nemendur Ingveldur Geirsdóttir, einn af nemendum Þorfinns í meistaranámi í blaða- og fféttamennsku, segir hópinn afar óánægðan. „Við erum öll búin að senda Þorfinni póst og reyna að hafa samband. Hann virð- ist hins vegar afar upptekinn og á meðan erum við einkunnalaus." Ingveldur segiryfirdráttinn þegar vera byrjaðan að safna vöxtum, enda koma námslánin ekki inn fyrr en allar einkunnir eru komnar. „Ætlar Þorfinnur að borga vext- ina?“ spyr Ingveldur og talar þar fyr- ir munn fjölmargra nemenda við skólann. „Grýtum Þorfinn!" Á póstlista nemendanna má finna harðorð ummæli í garð Þorfinns Ómarssonar og greinilegt að lærling- ar hans eru orðnir langþreyttir á seinaganginum. „Líklega erum við þau einu í skólanum sem eigum eftir að fá okkar einkunnir," segir stúlka sem kallar sig Lellu. Guðrún Heim- isdóttir prófessor hvetur krakkana til að hafa sam- band við fjölmiðla og Ingveldur, sem rætt var við hér að framan, segir Þorfinn eyða of j miklum tíma í kokkteil- boð og of j litlum í | nem- endurna: ..Ég legg til að við mætum á Grímuna í kvöld og grýt- um eggjum og einhverju ógeði í Þorf- inn fyrir fr aman fína fólkið sem hann telur sig part af. Einnig gætum við mætt á tröppumar heima hjá honum og gert hið sama,“ segir hún. simon@dv.is „Ég legg til að við mætum á Grímuna í kvöld og grýtum eggj- um og einhverju ógeði í Þorfinn fyrir framan fína fólkið sem hann telursigpart af. Einnig gætum við mætt á tröppurn- ar heima hjá hon- um oggerthið sama." vegna vmnubragða Þorfinns. Þorfinnur Ómars- son fjöimiðla- maður Skilarekki einkunnum nem- enda sinna. Háskóli íslands Nemendur eru æfir svíkja eitt loforð því hann hefur fært fálkaorðunni nýja vídd. Fært hana yfir dægurmálaþrasið og upp- götvað hver hin sönnu mikilmenni eru. Hvaða barn úti í heimi þekkir til dæmis nafn Davíðs Oddssonar, Ell- erts Eiríkssonar eða Sólveigar Pétursdóttur? Trúlega enginn. Hvaða móðir vill að fyrirmynd barna hennar sé Halldór Ásgríms- son eða Finnur Ingólfsson. Engin. Um Eið Smára er öðru máli að gegna. Hann er stærri en allir póli- tíkusar hér heima til samans. Hann er fyrirmynd barna, þekktur um all- an heim og betri landkynning en Gullfoss og Geysir. Eiður Smári er guð og Svart- höfði vonar að þegar hann skorar næsta mark fyrir Chelsea muni hann kyssa fálkaorðuna á barmin- um. Svaithöföi Til hamingu Eiður! Það hefur færst í vöxt að íþrótta- menn á íslandi fái fálkaorðuna frægu. Eiður Smári Guðjohnsen fékk orðuna í gær og Ólafiir Stef- ánsson handboltakappi í fyrra. Svarthöfða líkar þessi þróun vel. Hann man eftir óbragðinu í munn- inum þegar Ellert Eiríksson, bæjar- stjóri á Suðurnesjum, fékk orðuna fyrir að vera í réttum flokki og von- brigðunum þegar Sólveig Péturs- dóttir var orðuð eftir að hún varð dómsmálaráðherra. Vonlausari ráðherra er trúlega ekki til, því hún kom ekki einu sinni upp um olíuhneykslið þótt hún Svarthöfði næsta leik. Þetta veit Ólafur Ragnar, sem lofaði því þegar hann var kosinn svæfi við hlið aðalglæpamannsins. fyrst, að draga úr orðuveit- íþróttamenn eru ekki eins og f' ingum. Og maður getur pólitíkusar. Þeir eru óspilltir. Þeir sinna sínu hlutverki á vell- inum og öll þjóðin getur dæmt um frammistöðu þeirra. Þeir vita að ef frammistaðan er slæm er sætið í næsta leik ekki öruggt íþróttamenn eru stríðs- menn nútímans skylmingaþrælar sem helga líf sitt betri árangri í svosem fyrir- gefið hon- um að Hvernig hefur þú það? „Ég hefþað stórfínt," segir Þórhallur Sigurðsson leikari, en hann er betur þekktur sem Laddi.„‘Ég get ekki haft það betra, ég er hérna skellihlæjandi að búa til skemmti- þátt, “ segir Laddi, en hann er ímiöjum klíðum við upptökur á útvarpsþættinum Gleði- fréttir frá Gleðistofu lslands.„Við liggjum hérna allir alveg sveittir afhlátri, það er ekki hægt að hafa þaö betra."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.