Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2006, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 2006 Menning UV Sjallinn tekinn með trompi. Typpatal í Sjailanum Sýningar hafa staðið við Austurvöll um nokkurt skeið. Þá hefur Auddi sótt til Vestmannaejja og norður á Sauðárkrók. Nú leggur hann norður með Typpatal og verð- ur með tvær sýningar á Akure>'ri í Sjailan- um. Fá Akureyringar tækifæri tÓ að kynnast Typpatalinu fimmtudaginn og föstudaginn. Húsið opnar kl. 21 bæði kvöldin og hefst sýningin kl. 21.30. Forsala er hafin í verslun BT á Glerárgötu og hafa nú allmargir Akur- eyringar tryggt sér miða. Auddi hlakkar mikið til að skemmta á Akureyri og vonar að Akureyringar fjölmenni í Sjallann. Miðaverð er 2.0Ó0 krónur. Umsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb.adv.is Umræða um hátækmsjukrahusið er með þvl merkilegasta sem fram hef- ur komið í þætti Egils um langt skeið Jón Páll, Arndís, Elma og Þorsteinn. Flugur UMRÆÐAN um hátæknisjúkrahús- ið varð engin. Það lenti bara þarna nánast eins og fyrir tilviljun, þvert ofan I ráðgjafa og jafnvel þó ítar- legar úttektir samdar af fínni blaða- konu birtust f blaði allra lands- manna. Það dugði bara ekki til. Af himnum ofan hrundu nfutíu þús- und fermetrar sem kosta formúgu fjár - eru ef að líkum lætur gamal- dags hugsunarháttur f sjúkrahús- rekstri og móta borgarmiðjuna al- veg upp á nýtt - verða hér á sjón- arhóli en allar á lengdina með gamla spftalann að baki sér á sfn- um gamla sjónarhóli. PÓLITlSKIR fulltrúar f borgarstjórn samþykkja þetta. Dagur B.segir þetta hina bestu lausn.Hvað þing- menn Reykjavíkur varðar eru þeir, eins og venjulega, þegjandi úti í horni og eru ekki beint spenntir að starta umræðu sem átti að fara í gang fyrir löngu síðan. Það er með endemum hvað kjörnir fulltrúar okkar eru eitthvað daufir. LOKSINS dreif Egill Helgason f því að hóa (eitthvert samtal um stað- setningu nýs spftala. Hann kallaði til Sigurborgu Sigurgeirsdóttur og Ólaf Örn Arn- arsson í Silfrið á sunnudag. Sá part- ur var gott dæmi hvernig þáttur hans getur verið bestur.Og myndin sem dróst upp í huga áhorfandans er hrollvekja:spítalabygging á þessum stað er glórulaust rugl. Sig- urborg greindi afar skilmerkilega hvernig stjórnvöld hefðu verið upptekin af allt öðru þegar um- ræðan átti að fara fram. UMRÆÐAN leiddi (Ijós hvernig röð mistaka er greinileg f skipu- lagshugsun borgarinnar. Hún leiðir það f Ijós að kjörnir fulltrúar borg- arinnar láta embættismenn ríkis- valdsins draga sig á asnaeyrum fram og til baka, og er þá sama hvort um er að ræða flugvöll eða sjúkrahús.Hún leiðir það líka f Ijós að kjörnir fulltrúar borgarbúa eru algerlega úti að aka f skipulagsmál- um og hafa verið um langa, langa hrfð. ÞEIR sem vilja kynna sér samtalið um sjúkrahúsið ættu að líta inn á vísir.is og þaðan f Silfur Egils. NÚ er bara spurningin hvað áfram- haldið verður: Hringbrautin, nýi spftalinn, Háskólinn f Reykjavík og Samgöngumiðstöðin:allt hrannast þetta upp og verður ef vel tekst til að stóru málunum f kosningum f vor,enda löngu kominn tími til - núna þegar það er orðið löngu of seint. Frumsýning í Hafnarfjarðar- leikhúsinu á sunnudagskvöldið. MindOamp. Litlum hvítum kössum hefur verið raðað upp eins og sykur- molum í þrjá veggi. Þessi hvfti múr er bakgrunnur ijögurra persóna sem í fyrstu standa á nærbuxunum og flissa, ræskja sig og segja jæja í nokkuð langan tíma. Áhorfendur fara líka að flissa og ræskja sig. Þessar fjórar persónur taka svo á sig nútímagerfi í íþrótta- göllum hverjum með sínum grunn- lit. Rauður, gulur, grænn og blár. Persónumar eru strikamerktar á bijóstinu og bakinu. Allir litlu kass- amir sem þau handijatla sem er einnig hluti af múrnum þeirra em strikamerktir. Ég kaupi þess vegna er ég! Mikil guðs blessun em þessar strikamerkingar. Með tilkomu strikamerkinganna hófst nýr og betri kapítuli í verslunarhefðum okkar. Varan liggur fyrir framan af- greiðslumenneskjuna og hún lyftir henni og lætur geisla lesa af þessu strikamerki og allt sem vöruna varð- jg ar er komið inn í móðurheila pen- ingakassans. Þetta orsakar ekki slit á fingurgómum afgreiðslumanneskj- unnar og hraðinn i afgreiðslunni eykst og eykst og þar með er hægt að kaupa meira og meira og oftar og lengur en það verður að vera strika- merkt, því ef það er ekki strika- merkt, þá færðu ekki að kaupa það. En þar sem þú færð að kaupa allt, allt er falt, þá er allt strikamerkt. Hvor skiptir meira máli í nútímasamfé- lagiMarteinn Lúter King eða Burger King? Sorg og gleði í strikamerki Sýningin mind©amp í Hafnar- fjarðarleikliúsinu þar sem talað er um að allt sé falt eða heimssjónar- hornið fallvalt, er strikamerkt í bak og fyrir, og ef einhver ætlar að fara að vera alveg ofurdjúpur er hægt að rýna sig oní þá niðurstöðu að aliar upplýsingamar, sorgin, gleðin, ástin og hatrið rúmist í strikamerkingun- Eigum við að hætta að þýða eða reyna að búa til íslensk orð yfir fyrir- bærin í lífinu? Mind©amp er líklega einhvers konar hugarbústaður en þó skrifað með því c-i sem er tákn höfundarréttar. Hver er þá eiginlega höfundurinn með réttinn að hug- myndum okkar og orðum? Sá texti sem hér liggur til gmnd- vallar er samansúrraður úr ýmsum áttum, er það kannski sá höfundar- réttur sem þau em að leika sér með? Hvað sem hér er verið að leika sér með, þá er það næsta víst að það hefur verið mjög gaman hjá þessum leikhópi í undirbúningsvinnunni þar sem þau tefla saman hugtökum, orðum og setningum frá heilum hópi höfunda og þó svo að textinn fylgi með í prógrammi er ekki aiger- lega sjálfgefið hver á hvaða texta, það er af öllum þeim höfundum sem upp em gefnir. Textinn var í aðaihlutverki í ansi hreint smart mynd. Á vissan hátt er sýningin nær gjöminga- eða uppákomulistinni en því leikliúsi sem við eigum nú að venjast. Hér var ekki verið að sýna fæmi í akróbatik heldur texta í mynd með aðstoð myndbanda- tækninnar. Enginn eiginlegur munur á persónum Fjórir einstaklingar skipta á milli sín öllum streituvaldandi málefn- um, hugmyndum, ismum, fræðum, sögulegum skeiðum, kynlífi, kjána- skap og glettni. Eiginlegur munur á þessum fjómm persónum er í raun enginn. Allur þessi texti öðlast líf í ein- hvers konar opinbemnarstíl eða eft- irhermu hinnar sívinsælu heimild- armyndar og gat hann rúmast jafnt á vömm grænu konunnar eins og rauðu konunnar eða bláa mannsins eins og guia mannsins. Textinn sem slíkur var ekki bundinn við persón- umar þó það væm ákveðnir mónó- lógar sem hver og einn fór með. Tilraunaleikhús? Hvað er tilraun? Það er sjálfsagt og algerlega nauðsynlegt fyrir alla listamenn að gera tilraunir, reyndar fyrir allt fólk. Þeir sem gera aldrei neinar tilraunir komast aldrei að neinni nýrri lausn fyrir sjálfan sig. Mind©amp Texti: Jón Atli Jónasson, Egill Heiðar Anton Pálsson, Samuel Beckett, Georg W. Hegel, Friedrich Nietzsce, Luhman, Philip Ball, Stephan Levitt, Stephen Dubner, Carl Sagan, mind©amp-hópurinn. Leikstjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson. Tónlist: Hallur Ingólfsson. Hreyfingar: Halla Ólafsdóttir. Búningar: íris Eggertsdóttir. Lýsing og sýningarstjóri: Garð- ar Borgþórsson. Leikarar: Elma Lisa Gunnars- dóttir, Jón Páll Eyjólfsson, Þor- steinn Bachman, Arndis Egils- dóttir, Hanna Björk Guðjóns- dóttir. Hátiðarsýning !5. janúar 2006 jckirkir Leiklist Þegar gera á tilraunir aftur á móti í leikhúsi þar sem áhorfendur em ekki aðeins viðstaddir heldur einnig hluti af tilrauninni, verður engu að síður að beygja sig undir ákveðin lögmál sem er tungumál leikhúss- ins. Hér tala allir út og suður en uppsetningin í heild sinni fýlgir ákveðnu mynstri. Persónurnar hverfa af sviðinu og á skjám til beggja hliða fá áhorfendur að fylgj- ast með þeim baksviðs, og kemur það nokkuð skemmtilega á óvart í fyrstu að þau em stödd fyrir utan leikhúsið í reykingapásu, meðan áhorfendur sitja prúðir og stilltir í sínum sætum. Jón Páll Eyjólfsson fer með hlut- verk bláa mannsins og þegar hann stendur gleiðbrosandi fýrir framan áhorfendur með sitt litla „jæja" fær hann mannskapinn til þess að hlæja og verður hver og einn að svara því að hveiju er verið að hlæja. Hvort orðiðrístir dýpra alsælaneða alzheimer? Skipt um föt Ámdís Egilsdóttir er í græna búningnum og má eiginlega segja að hennar hlutverk sé það eina sem nálgast persónugert portrett, það er þegar hún fer með sitt eintal um ótt- ann og bamauppeldi. Elma Lísa Gunnarsdóttir er í rauða búningn- um og hlær að öllu. Líklega fulltrúi þeirra sem hlæja að öllu, staða hennar í hópnum kemur í ljós á myndbandsskeiðum að utan þó það skipti engu máli því eiginleg persónusköpun á sér ekki stað. Þor- steinn Bachman, stór og stæðilegur og sífellt að heilsa áhorfendum kemur fram með firrtar skoðanir sem eiginlega fara í hring, á friði í heiminum. Fjórmenningamir sem að lokum skipta úr jogginggalla í strikamerkt jakkaföt skiluðu öll sín- um gerfum mjög vel. Ekkert pat Hægagangur í upphafs- og loka- kafla var svoh'tið eins og stríðnisleik- ur þar sem týpumar vom að leika á þolrif áhorfenda eins og hljóðfæri. Lýsingin og öll tæknivinnan á sviðinu sem leikarar stjómuðu sjálf- ir var áreynslulaus og smart unnin. Egill Heiðar Anton Pálsson sér um leikstjómina. Það sem einkenn- ir sýninguna í heild sinni er hvað hún er algerlega laus við nokkuð fálm og fát, það vita allir alveg ná- kvæmlega hvað þeir em að gera og af hverju, þó áhorfendur séu stund- um eitt stórt spumingarmerki. Formið aðalhlutverk! Formið og umgjörðin er hið eig- inlega aðalhlutverk og þar sem verkið er ekki í ffamvindu ferils en þó bundið við ákveðið mynstur verður heilladísin eða örlaganomin að koma og frelsa okkur gegnum múrinn hvíta til þess að þetta mynstur haldi ekki áfram. Með syngjandi hlutverk heilla- dísarinnar fer Hanna Björk Guð- jónsdóttir. Það var mikil frelsun að henni, ekki bara að losa fólk úr sæt- um sínum heldur einnig að persón- an var svo kómísk og alveg út úr kú. Með hugljúfri röddu í hlægilegu prímadonnugerfi fékkhún einskon- ar hlutverk guðavélarinnar í hinu klassíska leikhúsi. Það er alveg óhætt að mæla með þessari sýningu þó hún hafi á köfl- um verið svoh'tið langdregin. Hitt er svo annað mál að það er hætta á því að allar þessar vísanir í textanum út og suður fari hreinlega út og suður, þannig að þegar upp er staðið em fræin sem átti að sá skilin eftir í sætunum. EUsabet Brekkan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.