Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2006, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2006, Blaðsíða 16
7 6 MÁNUDAGUR 13. MARS2006 Sport DV Frábærbyrjun Harðar Hörður Sveinsson markaði upphaf sitt í dönsku úrvalsdeild- inni í knattspymu með tveimur mörkum auk stoðsendingarinnar sem gaf þriðja og sigurmark Silkeborg í 3-2 sigri á Viborg á útivelli í gær. Hörður kom sínum mönnum tvívegis yfir snemma í báðum hálf- leikjum og var reyndar hársbreidd frá því að skora þrennu sjálfur. Þess í stað lagði hann upp sigur- mark leiksins fyrir Dennis Flinta er tvær mínútur vom liðnar af uppbótartíma. Sjö mörkólafs Ólafur Stef- ánsson átti góð- an leik fyrir Ciu- dad Real sem vann lið Cangas í spænsku úrvals- deiidinni á laug- ardag, 30-25. Sem fyrr er Barcelona með forystu í deildinni en Ciudad Real er í þriðja sæti. Það var svo íslendingaslagur í frönsku deildinni en án þess þó að íslendingamir kæmust á blað í leiknum. Ivry, lið Ragnars Óskarssonar, vann 27-26 sigur á Creteil sem Bjarni Fritzson leikur með. Ragnar spilaði en skoraði ekki en Bjami var ekki í liði Creteil. Andersen í Evr- ópubann Danski handboltaþjálfar- inn Anja Andersen var í gær sett í bann frá allri þátttöku í mótum á vegum evrópska handknattleikssambandsins (EFH) eftir að beiðni barst frá danska sambandinu á föstu- dag en hún hafði þá verið dæmd í bann þar í landi vegna uppákomu sem varð í leik með liði hennar, Slagel- se, fyrir skömmu. Hótaði hún að draga lið sitt úr leik ge’gn Álaborg eftir að hafa fengið rauða spjaldið í leiknum. Yf- irgaf lið hennar völlinn í nokkrar mínútur vegna þessa. Bann EHF næryfir all- ar alþjóðlegar keppnir til 30. júní næstkomandi. Valsstúlkur eru komnar áfram í undanúrslit í Áskorendakeppni Evrópu og er það aðeins í annað skipti sem íslenskt kvennalið í handbolta nær þeim árangri. Hitt lið- ið var ÍBV árið 2004. Valur vann FC Brúhl frá Sviss um helgina en báðir leikirnir fóru fram hér heima. Svifu í undanúrslit Arna Grímsdóttir er sloppin ein inn fyrir vörn svissneska liðsins um helgina. DV-mynd Heiða Kvennalið Vals í handbolta er komið í undanúrslit Áskorenda- keppni Evrdpu eftir að hafa borið sigur úr býtum í tveimur viðureignum gegn svissneska liðinu FC Bruhl um helgina. Sam- anlagt vann Valur með níu marka mun en ekki verður dregið í undanúrslit fyrr en í næstu viku. „Við erum í skýjunum eftir þessi úrslit," sagði Ágúst Þór Jó- hannsson, þjálfari Vals, eftir sigur sinna stúlkna. „Og í raun gekk þetta betur en maður átti von á í upphafi. Það er frábær tilfinning að vera komin í undanúrslit." Eins og er oftast raunin í keppnum sem þessum renna lið nokkuð blint í sjóinn hvað varðar andstæðing sinn en Ágúst segir að hann hafi engu að síður verið ágætlega bjartsýnn fyrir leiki helg- arinnar. „Eg mat möguleika okkar til helmings en við nutum góðs af því að leika báða leiki okkar á heimavelli. Það var vitað mál að ef við ættum góða leiki gætum við klárað dæmið og var síðari leikur- inn sérstaklega góður," sagði Ágúst. Klaufar í fyrri leiknum Valsstúlkur voru í raun klaufar að fara ekki í síðari leikinn með meira forskot en fimm mörk en Valur hafði mikla yfirburði í leikn- um á föstudaginn. Svissneska liðið komst svo snemma yfir á laugar- daginn en Valsstúlkur héldu ró sinni og sigu hægt og róiega fram úr. í hálfleik gat aðeins stórslys komið í veg fyrir að Valur tryggði sér sæti í undanúrslitum. „Við lærðum mikið af fyrri leiknum og náðum til dæmis að lesa markvörð þeirra vel þannig að hún varði nánast ekkert í síðari leiknum. Við breyttum einnig NÍU LEIKIR Á 35 DÖGUM Dagsetn. Keppni Andstæðingur Úrslit 11. mars Evr. Bruhl (h) sigur (32-27) 10. mars Evr. Bruhl (h) sigur (25-21) 7. mars DHL HK (h) sigur (41-28) 4. mars DHL IBV (ú) tap (22-18) 15. feb. DHL FH (h) sigur (27-26) 11. feb. Evr. HC Aþena (ú) sigur (37-29) 10. feb. Evr. HC Aþena (ú) tap (26-24) 7. feb. DHL KA/Þór (ú) sigur (30-23) 5. feb. SS (BV (ú) tap (27-15) áherslum í varnarleiknum til að stöðva þeirra hættulegustu leik- menn og gekk það vel. Við vorum að vísu að fá á okkur klaufaleg mörk í upphafi leiksins en náðum að laga það fljótt." Ótrúlegt leikjaálag Mikið leikjaálag hefur verið á Valsstelpum undanfarnar vikur og mánuði og hafa þær á síðustu 35 dögum leikið níu leiki sem þykir mikið í hvaða íþrótt sem er, sér- staklega þegar um áhugamenn er að ræða. Þær fá nú vikufrí en fram undan er lokáspretturinn í DHL- deildinni þar sem Valur er eitt þeirra þriggja liða sem kljást um titilinn. En þrátt fyrir að álagið sé mikið á Valsstúlkum hafa þær ekki misst dampinn og aðeins tapað á mjög erfiðum útivöllum - í Vest- mannaeyjum og á Grikklandi. „Við höfum verið að spila virki- lega vel undanfarið og er það helst að þakka breyttum áherslum í varnarleik. Við höfum verið grimmari í vörninni og hefur það skilað sér þannig að við fáum tækifæri til að spila hraðari leik sem hentar okkur mjög vel," sagði Ágúst. Hann segir mikla og góða stemningu vera í hópnum en hann er óánægður með stuðning áhorf- enda. „Það var döpur mæting um helgina, sérstaklega á föstudag- inn.“ Spennandi verkefni Berglind Hansdóttir markvörð- ur Vals fór á kostum í leikjum helg- arinnar, sem svo oft áður. Hún seg- ir þátttöku í Evrópukeppninni gefa sér mikið. „Þetta er spennandi verkefni og það er virkilega gaman af fá að taka þátt í þessu," sagði hún við DV Sport. Auk Vals verða í undanúrslitum annars vegar tvö lið frá Rúmenfu og/eða Króatíu og hins vegar lið frá Frakklandi eða Ítalíu. Ágúst vill helst sleppa því að mæta liði frá Austur-Evrópu og er því óska- mótherji hans sigurvegari leiks Merignac Handball frá Frakklandi og ítalska liðsins HC Teramo 2002. Dregið verður á þriðjudaginn eftir rúma viku þar sem síðari leikir annarra viðureigna klárast ekki fyrr en um næstu helgi. eirikurst@dv.is BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Huröir til á lager ♦ Smíðað eftir máli * Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir OLÖFAXIHF. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 HÆLLUR .. i einum an G. Tómasson eht • Sótowgf 6 _ __________________ • simi: 577 6400 • www.hvellur.com etnum grænum • hvellur@hveliur.com Fjórir leikir í DHL-deild kvenna um helgina Stjörnustúlkur úr leik? Haukar imnu um helgina þriggja marka sigur á Stjömunni í toppslag DHL-deildarinnar í handbolta. Sig- urinn var öruggur, þó svo að Haukar hafi einungis skorað þremur mörk- um meira en Stjörnustúlkur. ís- landsmeistararnir voru með forystu allan tímann og leiddu í hálfleik, 16-11. Þar með er nokkuð öruggt að möguleikar Stjörnunnar á íslands- meistaratitlinum em foknir út í veð- ur og vind en jöfn og spennandi bar- átta hefur verið við topp deildarinn- ar í allan vetur. Eftir standa ÍBV, sem vann sex marka sigur á KA/Þór á Akureyri á laugardag og Vaiur sem sat hjá um helgina vegna þátttöku liðsins í Evrópúkeþpninni. Víkingar lyftu sér úr botnsætinu með 29-25 sigri á Fram og þá vann Grótta lið FH á útivelli í eina leik gærdagsins í deildinni, 26-25. ' • . . A undan markverðinum Hanna G. Stef- ánsdóttir var á undan markverðinum Jelenu Jovanovic I þessari skyndisókn Hauka gegn Stjörnunni á laugardag. DV-mynd Anton Brink DHL-DEILD KVENNA ÚrslH helgarinnar; Stjarnan-Haukar 26-29 KA/Þór-(BV 19-25 Vikingur-Fram 29-25 FH-Grótta 25-26 Haukar 15 13 0 2 466-391 26 Ibv 15 12 1 2 390-327 25 Valur 15 12 0 3 417-348 24 Stjarnan 15 10 1 4 399-348 21 HBÍÉÍ 15 9 ' 0 6 401-364 18 Grótta 15 6 0 9 351-374 12 HK 15 M.- u§ 10 401-448 9 Fram 15 3 0 12 363-418 6 Víkihgur 15 2 )r 12 328-405 5 KA/Þór 15 2 0 13 351-444 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.