Freyr

Árgangur

Freyr - 15.10.1998, Blaðsíða 24

Freyr - 15.10.1998, Blaðsíða 24
Samband lífdýradóms og skinnaeiginleika svartminks Arfgengi, erfda- / Iloðdýrabúskap er það feldurinn sem skapar verðmætin og eru höf- uðþættir ræktunarstarfsins frjósemi, feldgæði, stærð skinnsins og litur þess. Lokaritgerð til B.Sc. prófs frá Búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri, unnin af Einari E. Ein- arssyni, fjallaði um þessa höfuð- þætti ræktunarstarfsins. Hér á eftir fylgir útdráttur úr ritgerðinni en leiðbeinandi við skrif og úrvinnslu gagna var dr. Agúst Sigurðsson. 1. Svolítil upprifjun um ræktunarstarfið Til að ná árangri í kynbótastarfinu skiptir höfuðmáli að meta eigin- leikann með sem mestri nákvæmni þannig að sá erfðabreytileiki sem raunverulega er fyrir hendi í stofnin- um greinist. Allir þeir eiginleikar sem dæmdir eru hjá dýrinu lifandi samanstanda af erfðum og um- hverfi. Svipfar = erfðir + umhverfi (P = G + E). Svipfar (P) einstaklings er í raun hvernig einstaklingurinn kemur fyr- ir, þ.e.a.s. það sem við sjáum og get- um mælt eða metið. Breytileikann milli einstaklinga sjáum við í mis- mun í svipfari milli einstaklinga sem þýðir í raun að hluti breytileik- ans er háður umhverfisþáttum. Sá hluti af breytileikanum milli ein- staklinga sem eingöngu stafar af mismun í aðbúnaði gagnast okkur ekkert í kynbótastarfinu, heldur ein- göngu sá hluti sem stafar af mismun í erfðaeðli (arfgerð). Arfgengi eig- inleika er því sá hluti breytileikans sem við sjáum í svipfari einstak- linga en stafar af mismun í arfgerð. Arfgengið er síðan sett fram sem og svipfarsfylgni, eiginleikanna eftir Einar Eðvald Einarsson brúfræðikandidat tala á milli 0,0 og 1,0. Sé arfgengi einstaklings 0,0 stafar allur breyti- leikinn í svipfari einstaklingsins af umhverfisþáttum, þ.e. mismun í að- búnaði, en sé arfgengið 1,0 þá er all- ur breytileikinn í svipfarinu tilkom- inn vegna mismunar í arfgengi. Því hærra sem arfgengi ákveðins eigin- leika er þess stærri hluti svipfars- breytileikans stafar af erfðabreyti- leika og þess meiri árangurs er að vænta af úrvali eftir eiginleikanum. Erfðafylgni milli eiginleika lýsir síðan erfðalegu sambandi tveggja eiginleika. Hún liggur á bilinu -1 til +1. Ef fylgnin á milli eiginleikanna er yfir 0 þá er um jákvæða fylgni að ræða og því hærri sem hún er því meira styrkjast báðir eiginleikarnir við skipulega ræktun ef valið er fyrir öðrum. Svipfarsfylgnin lýsir tengsl- um eiginleikanna svipfarslega. Markmiðið með rannsókninni var þrenns konar: • Kanna fylgni á milli lífdýra- og skinnadóms. • Reikna út erfða- og svipfars- stuðla fyrir helstu eiginleika skinnsins, bæði út frá lífdýra- og skinnadómi. • Kanna hvaða eiginleikar það eru sem mestu ráða um söluverð- mæti skinnsins. 7. 7.7. Grunnupplýsingar Gagnasafnið, sem unnið var með, var frá loðdýrabúinu á Hvanneyri og eingöngu var notaður Svartminkur ásamt verðmæti (Scanblack). Hvolpamir eru frá framleiðslu árunum 1987-1990 en ættartengsl ná aftur til fyrstu dýr- anna sem keypt voru þegar búinu var komið á fót árið 1985. Heildar- fjöldi dýra í rannsókninni var 4118 dýr. Þar af var 2421 með lífdýradóm og 1399 með skinnadóm sem hægt var að tengja við lífdýradóminn. Af- gangurinn, 1697 dýr, voru með vegna ættemistengsla. Við lífdýradóm dæmdi sami aðil- inn öll dýrin þau ár sem gögnin ná yfir. Dómsskalinn sem notaður var náði frá 1-5, þar sem 5 var besta einkunnin. Öll skinn vom seld hjá DPA í Danmörku og þar voru þau flokkuð og meðhöndluð eins og skinn frá öðrum framleiðendum. Dreifing einkunna við lífdýra- flokkunina var nokkuð jöfn á öllum liðum nema stærðinni en þar fengu bæði högnar og læður greinilega oftar 4 en 3 fyrir stærð. Skinnaflokkunin á uppboðshús- inu sýndi einungis þokkalega dreif- ingu á gæðum en um 40% af bæði högna- og læðuskinnunum fóm í sama gæðaflokkinn. Dreifingin á stærðinni var heldur ekki mjög mik- ii en skýringin á því er að einungis er notaður einn skali sem skinnin eru flokkuð á eftir lengd. Læðumar eru alltaf minni en högnamir þannig að þær lenda í styttri flokkum. Dreifing einkunna hjá högnum og læðum var hin sama í lit skinnanna. 7. 2. Fylgni lífdýradóms og skinnadóms Athugunin á fylgni milli dóms á dýrinu lifandi og skinnadómsins sýndi að mjög misjafnlega gekk að dæma hina ýmsu eiginleika. 24 - Freyr 1 3/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.