Nýi tíminn - 21.06.1956, Blaðsíða 9
í
Orðsendingar
Orðsendingar.
Halldóra Þórdís. Svör-
in þín voru rétt. Það hef-
ur dregizt heldur lengi;
að senda þér orð um
það. Við reynum að
verða við ósk þinni.
Þorbjörg Sveinbjörns-
dóttir (9 ára) Miðfirði.
Ráðningin þín á þraut-
inni kom í tæka tíð og
var hárrétt.
Kortasamkeppninni er
lokið. Tekin verða til
greina þau kort, sem
hafa verið komin í póst
17 júní.
Guðrún Friðbjörnsdótt-
Ir, 12 ára, Reykjavík,
skrifar blaðinu okkar og'
segir m. a.: — „Mig lang-
ar til að komast í bréfa-
samband við stúlku í
Danmörku eða Noregi,
og ætla að biðja þig að
vera mér hjálplega í
því.“ — Já, þessi orð-
sending hefði með réttu
lagi átt að fara í póst-
hólfið okkar, en það
myndi naumast ná til-
gangi. Okkur datt því í
h.ug að ræða um þetta
við Ingu í Lyngási, hún
skrifast nefinilega á við
4 danska krakka. Frá
því var skýrt í síðasta
blaði. Hvað segir þú um
það, Inga, að koma Guð-
rúnu Friðbjörnsdóttur í
samband við danska
stúlku, sem þú hefur
kynnzt bréflega? Guðrún
á heima á Nesvegi 10,
Reykjavík. Er. vitanlega
þyrfti Óskastundin að
vita, hvort þú sinnir
þessu, Inga í Lyngási.
Steindór Björnsson frá
i Gröf. skrautritari í
j Reykjavík, hefur skrifað
j ritstjóra Óskastundarinn-
; ar ágætt bréf um birt-
ingu sönglaga í blaðinu
okkar. Er hann með góð-
ar tillögur, sem ættu að
koma okkur að notum.
En Steindór var þotinn
norður á Akureyri um
það bil sem þetta blað
var að fara í prentun,
svo að við gátum ekki
náð tali af honum. Vænt-
anlega verðum við búin
Pósthólfið
Ég óska eftir að kom-
ast í bréfasamband við
stráka eða stelpur á aldr-
inum 13—15 ára.
Sólrún B. Jóliannesdóttir
Háteigsvegi 23. Reykjavík
Óska eftir að komast í
fcréfasamband við stráka
eða stelpur á aldrinum
13—15 ára.
Marsý D. Jónsdóttir,
Múla, Hvammstanga.
V.-Hún.
Mig langar til þess að
komast í bréfasamband
við pilt eða stúlku á
aldrinum 12—14 ára,
helzt á suðurströndinni,
mynd fylgi.
Eiríkur H. Sigurðsson,
Fjarðarstræti 17. Póst-
hólf 152. ísafirði.
Mig langar til að kom-
ast í bréfasamband við
pilta eða stúlkur á aldr-
inum 11—12 ára.
Jólianna M. Sigurðard.
Svartagili, Þingvallasveit
Árnessýslu.
að ná sambandi við hann
fyrir útkomu næsta
: blaðs.
Gnðrún Guðbergs,
Þökk fyrir bréfið og
teikningarnar, sem eru
sérlega vel og vandvirkn-
islega gerðar. Þetta kem-
ur til tals bráðum. Þú
mátt vonast eftir bréfi í
pósti innan fárra daga.
Tvö vögguljóð
Þið kunnið sennilega
lögin við þessar vöggu-
vísur, sem oft eru sungn-
ar í útvarpið.
Ljóðið er eftir B. Þ.
Gröndal. Lagið eftir Sig-
urð Þórðarson.
Sofðu, sofðu litla bamið
blíða,
bjartir englar vaki þér
við hlið.
móðurhöndin milda,
milda, þýða
mjúkt þér vaggar imi í
himinfrið.
2.
Ljóðið eftir G. Geir-
dal við lag eftir Mozart.
Sonur minn, sofðu í ró.
Söngfuglar blunda í mó.
Vorkvöldið hreimþýðum
hljóm
hjalar við dreymandi
blóm.
Kvöldbjannans liimneska
hönd
heillar í drauinfögur
lönd.
Sveíninn þér sígur á brá,
sofðu, ég vaki þér lijá.
Málshættir
Vex vilji þá vel gengur.
Það sjá augun sízt sem
nefinu er næst.
Yið síyttu Héðins
Við birtum að þessu
sinni mynd af styttu
Héðins Valdimarssonar,
en hún stendur við
barnagarð hjá Verka-
mann^iústöðunum í
Vesturbæ Reykjavíkur.
Eins og þið sjáið, stend-
ur lítil stúlka við fót-
stallinn. Hún er ekki há
í loftinu, enda segir ljós-
mjmdarinn, Ingólfur
Guðjónsson, að hún sé
að æfa sig að þekkja
stafina og teygir sig upp
að leturlínunni, en þar
stendur stórum stöfum
skráð: Héðinn Valdi-
marsson.
Stytta Héðins sýnir
þrekinn mann, sem horf-
ir fram, og virðist sem
hann standi áveðurs og
vindgustur lyfti kiæðum
hans. Þannig finnst lista-
manninum, Sigurjóni Ól-
afssyni myndhöggvara,
fara bezt að sýna Héð-
in.
Héðinn Valdimarsson
var umsvifamikill maður
i íslenzku þjóðlífi, skap-
ríkur maður og atorku-
samur og gáfaður hug-
sjónamaður. Á unga
aldri gerðist hann mál-
svari þeirra stétta í
þjóðfélaginu, sem áttu
við erfiðust kjör að búa,
og stóð síðan í fremstu
röð sem baráttumaður
fyrir bættum kjörum
vinnandi fólks. Má með
sanni segja að oft hafi
staðið gustur um þann
svipmikla mann í barátt-
unni, hvort sem var á
hafnarbakkanum, á al-
mennum mannfundum
eða í sölum Alþingis.
Héðinn fæddist árið
1892. Hann var sonur
Valdimars Ásmundsson-
ar ritstjóra og Bríetar
Bjarnhéðinsdóttur. Voru
þau hjón bæði þjóðkunn.
Briet gaf út fyrsta
kvennablað á fslandi og
stjórnaði því lengi og
stóð alla daga fremst í
baráttu fyrir réttinda-
málurn kvenna. Héðinn
tók stúdentspróf í Rvík
1 og síðan hagfræðipróf í
K.höfn. Hann stofn-
aði Olíuverzlun íslands
og var forstjóri hennar
til dauðadags. Hann var
formaður Verkamannafé-
| lagsins Dagsbrúnar í
Reykjavík í 13 ár. Þá
var hann alþingismaður
Reykvíkinga frá 1926—
1942. Mörgum málum
beitti hann sér fyrir, sem
miðuðu að bættum hag
alþýðunnar. Má í þessu
sambandi minnast á lög
um verkamannabústaði.
Að mestu fyrir hans at-
beina voru fyrstu verka-
Framhald á 3. síðu.
Lýðveldið
Íslítnd
Tólf ár eru liðin frá
stofnun lýðveldis á fs-
landi. Það var stofnað
17. júní 1944. Minnizt
þess 17. júní að sífellt
þarf að standa á verði
um málstað íslands.
--------------—--------------------- Fimmtudagur 20. júní 1956 — NÝI TÍMINN — (9
Vinstri Framséknarmenn í bæjunum
fylfja nú Alþýðubandalaginu
Ekki verður vikið af leið hækkaðra tolla, óbeimia skatta
og milliliðagróða nema Alþýðubandalagið verði sterkt
Hæi! við Baldur Svanlaugsson, einn af forustumönnum
Bílsijórafélags Akureyrar
Hvað gerist ef umbóta-
gríman fellur af
Hræðslubandalaginu ?
Vinnandi fólk til sjávar og
sveita, sem þjakað hefur ver-
ið af Eysteinstollum og Ólafs-
sköttum, yfirgefur það. Enn
reyna Hræðslubandalagsflokk-
arnir að hylja sig balcvið sýnd-
arbaráttu gegn fhaldinu. Og
máske væri ekki rétt að segja
að gríman sé fallin af þeim,
hitt er staðreynd að sívax-
andi fjöldi fólks sér í gegn
um hana, gerir sér ljóst að
við stjórn landsins undanfar-
in ár hefur ekki gengið hníf-
1 nrinn á milli foringja Fram-
sóknar (sem nú þykist allt i
einu vera orðinn róttækur
flokkur!) og íhaldsins, er
Framsókn þykist nú vera á
móti. Báðir voru þessir flokk-
ar hjartanlega sammála um
þær 240 millj. kr. álögur sem
‘Alþingi samþykkti rétt áður
en því var slitið, álögurnar
sem nú birtast almenningi
daglega í hækkuðu vöruverði,
— með kærri kveðju frá þeim
Gregorybræðrum, Eysteini og
Ölafi Thórs.
• Égf hef aldrei fyigt
Sóslalisfaflokknum
Við erum stödd á Akureyri
og hittum þar Baldur Svan-
laugsson bifreiðasmið. Hann
var um langt skeið einn af
forustumönnum Bílstjórafé-
lags Akureyrar. Ekki spurði
ég hann hvaða flokki hann
hefði fylgt að málum undan-
farin ár (máske gætu Fram-
sóknarmenn gefið einhverjar
upplýsingar um það), en nú
er hann einn af forustumönn-
um Alþýðubandalagsins á Ak-
ureyri, og eitt af því fyrsta
sem hann sagði við mig var:
— Ég hef aldrei fylgt Sós-
ialistaflokknum að málum, en
það er mín skoðun að sam-
eina eigi vinstri öflin og
vinstri flokkana um þau mál
sem alþýðan þarf að berjast
fyrir og verður að fram-
kvæma í náinni framtíð, —
slík sameining er Alþýðu-
bandalagið.
• Kosningar eru hags-
nmnabarátta þar
sem kjörin eru ráðin
— Það sem mér hefur fund-
izt einna mest á skorta und-
anfarið, heldur Baldur áfram,
er að fólkið geri sér nógu al-
mennt ljóst að í kosningum er
> erið að berjast um liagsmuna-
mál jiess, og að stjórnmál
eru livorki trúarbrögð, skrípa-
leikur né fólkinu óviðkom-
andi, heldur bláköld alvara,
þar sem örlög fólksins og
kjör þess eru ráðin, að stjórn-
mál eru bein hagsmunabar-
Baldur Svanlaugsson.
átta, kjarabarátta, þar sem
fólkið ákvarðar kjör sín um
leið og það greiðir atkvæði.
• Fáir kysu
Framsókn ef —
— Ég er hræddur um, held-
ur Baldur áfram, að fáirkysu
Framsókn nú ef menn gerðu
sér almennt fyllilega ljóst
hve mikið er tekið af þeim
óbeint, en enginn hefur verið
eins iðinn við að leggja á ó-
beina skatta og Eysteinn,
eins og t. d. söluskattinn, er
á var lagður sem tímabundin
ráðstöfun í eitt skipti, í sér-
stöku augnamiöi, en er nú
orðinn fastur skattur.4' Það
hefur vantað mikið á að
menn gerðu sér grein fyrir
hve mikið er á þá lagt óbeint,
menn hafa einblínt á beinu
skattana, en gleymt hinum.
En þetta er að breytast, og
þá jafnframt afstaða manna
til flokkanna.
• Sjá ekki út fyrir
Iíringbrautiaa
í Reykjavík
— Sjóndeildarhringur for-
ingja stjórnarflokkanna er
furðu þröngur, þeir sjá ekki
mikið út fyrir gömlu Hring-
brautina í Reykjavík. Þannig
kom Hermann Jónasson s
fund hingað norður fyrir um
tveim árum og vissi elcki að
hér og víða á Norðurlandi
var atvinnuleysi!
-
• Alþýðuflokkurirnn
yfirbreiðsla
-— Hér á Akureyri ætlar
Framsókn að nota Alþýðu-
flokkinn sem yfirbreiðslu yfir
minnkandi fylgi. Það vantar
ekki að Framsókn reyni a3
liæla sér af ýmsum málum,
eins og rafvæðingunni, — sem
við hefðum getað framkvæmt
miklu betur, því á sama tíma
og Framsókn hælir sér sýknt
og lieilagt af rafvæðingu legg-
ur hún nýja tolla og skatta
á rafmagnstæki og efni sein
fólkið þarf að kaupa til að
rafmagnið komi að notum, og
gerir því þannig erfitt eða
illfært að nota rafmagnið.
i
© Láta 6—7 millj.
renna í sjójnn
— Rafmagnsverðinu, sem
þeir, ákveða sjálfir, halda þeir
svo dýru að það borgi sig að
nota olíu. Á sama tíma og
Framsókn hælir sér af raf-
væðingu rær SÍS að því öllum
árum að menn noti olíu, smbr.
heilsíðuauglýsingarnar um
hin ódýru nýendurbættu oliu-
kyndingartæki frá Essó!
Það sýnir þjóðhollustu þess-
ara manna, að ár eftir ár láta
þeir renna 6-7 millj. kr. af ó-
notaðri orku Laxárvirkjunai^
Framhald á 11. síðu t