Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1999, Blaðsíða 9

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1999, Blaðsíða 9
Fyrirspurn til fréttabréfs Ættfræðifélagsins. Ein langamma mín hét Guðfmna Jónsdóttir og var frá Læk í Dýrafirði. Hún var fædd 4. júlí 1856 og hún lést 12. september 1919. Fyrri maður hennar hét Þorkell Árnason sem ég tel víst að hafí verið sá Þorkell sem segir frá í Önfirðingum að hafi flust 10 ára árið 1865 úr Eyrarsókn í Seyðisfírði vestra að Kirkjubólshúsum með foreldrum sínum og hafi flust 1866 út á Sand, að Hálsi. Hann var vinnumaður í Lambadal 1882 til 1884 en 16. júní það ár lést hann af slysförum. Faðir Þorkels hét Ami Jónsson og var fæddur 2. september 1825 að Veðrará ytri í Önundafirði, en hann lést árið 1888. Hann var tómthúsmaður á þurrabúðinni Kolbeinseyri í Eyrarsókn manntalsárið 1860. Sagður lifa af fiskveiðum. í því manntali er hann sagður vera fæddur í Gufudalssókn en í manntalinu 1855 er hann á Fæti og þá sagður fæddur í Holtssókn og tel ég það vera rétt, sbr. það sem að framan er getið. Hann var tekinn í fóstur af Jóni Jónssyni og Kristínu Jónsdóttur á Kirkjubóli eftir að faðir hann lést og heimilið að Veðrará ytri leystist upp. Var hann á Kirkjubóli í það minnsta frá 1838 til 1844, ýmist skráður sem tökubam, léttadrengur eða vinnumaður. Fermdur 1838 með vitnisburðinum „daufiir og meinlítill“. Hann giftist Elínu Jónsdóttur og vom þau vinnuhjú í Vigri þegar þau giftu sig. Hún var móðir Þorkels og því langalangamma mín. Eg tel að hún hafi verið fædd um 1825. í manntalinu 1860 er hún sögð vera fædd í Gufudalssókn en í Eyrarsókn í Seyðisfirði í manntalinu 1855. Ég þekki nokkuð til framætta Áma en veit ekkert meira um þessa langömmu mína. Bón mín er því sú að þeir sem til þekkja geti nú veitt mér einhverjar upplýsingar um Elínu Jónsdóttur og sömuleiðis hvort menn viti um heimildir um slys það sem batt enda á líf föðurafa míns. Getur verið að Elín þessi sé sama Elín og skráð er í manntali 1845 að Svarthamri? Þá væru vel þegnar upplýsingar hvar fínna megi sagnir af Guðmundi „sterka“ Sigurðssyni, bónda á Kleifum en hann er einn forfeðra minna í móðurætt. Allar upplýsingar, stórar sem smáar eru vel þegnar. Með fyrirfram þökk. Reykjavík, 24. nóvember 1998 Ragnar Á. Ragnarsson, ættffæðifélagi. rar@isholf.is. Fyrirspurn varðandi Austur - Barðastrandarsýslu: Mig langar til að vita hvort að einhver veit meira en ég um mann sem hét Jónatan Jónsson. Jónatan þessi var fæddur 27. 7. 1802 í Gufudalssókn. Kirkjubækur úr þessari sókn eru ekki til fyrr en 1816, fæðingardagur hans er þekktur vegna þess að hans er getið við fermingu 1816, þá var Jónatan á Múla í Gufiidalssveit, hjá húsbændum þar Jóni Sigurðssyni og konu hans Guðrúnu Snjólfsdóttur. Næst segir af Jónatan þegar hann er vinnumaður hjá Hjalta Thorberg presti á Stað í Grunnuvík og síðar Kirkjubólsþingi í Langadal. Hann kvæntist Helgu 21.9.1831 en hún var fædd 18. 5. 1795 á ísafirði, d. 9. 3. 1877, dóttir þeirra Guðrún Jónatansdóttir f. 21.11.1835 var langamma mín. Jónatan bjó allan sinn búskap í Önundarfirði, á Vöðlum 1838, á Veðrará-innri 1848-1853, hann dó 31.8.1853. Ég væri þakklátur fyrir allar upplýsingar sem varpað gætu ljósi á forfeður Jónatans. Hallgrímur Markússon Hlíðarhvammi 2 Kóp. s. 554 - 3426. 9

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.