Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Side 33

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1961, Side 33
ALDARMINNING HANNESAR HAFSTEINS SKÁLDS 15 Hinn 1. febrúar 1904, er Hannes Hafstein tók við embætti sínu sem fyrsti íslenzki ráðherrann, mun jafn- an verða talinn merkisdagur í ís- lenzkri stjórnmálasögu. Samtímis var ísenzka ráðuneytið í Kaup- mannhöfn afnumið og landshöfð- ingjadæmið lagt niður, en sett á stofn stjórnarráð í Reykjavík. Stjórnin var nú, með öðrum orðum, flutt inn í landið, draumurinn um heimastjórn orðinn að veruleika. Kom iþað einnig fljótt á daginn, að naeð þeirri réttarbót þjóðinni til handa hafði hið farsælasta og áhrifa- ríkasta spor stigið verið í menning- armálum hennar og verklegum framkvæmdum. Valdist einnig fyrstur íslendinga í ráðherrasessinn óvenjulegur hæfi- leika- og forustumaður, þar sem Hannes Hafstein var frábært glæsi- naenni og gæddur fágætu andans at- gervi, eitt af fremstu og vinsælustu skáldum þjóðarinnar og jafnframt langsýnn hugsjónamaður og aðsóps- niikill athafnamaður. Aldamótaárið var hann kosinn á þing fyrir ísfirðinga og sat fyrst á þingi næsta ár; hneigðist hugur kans nú stöðugt meir að stjórnmál- Um, en skáldskapurinn laut að sama skapi í lægra haldi; samt orti hann einmitt á þessum árum, meðal ann- arra ágætiskvæða, hin snjöllu og margdáðu aldamótaljóð sín, þar sem hann sér spámannlegar sýnir, en undir ólgar heitur straumur ætt- jarðarástar: Sú kemur tíð, er upp af alda hvarfi UPP ris þú, Frón, og gengur frjálst að . . arfi, oflin þín huldu geysast sterk að starfi, reinurðir skreytir aftur gróðrar farfi. Sú kemur tíð, er sárin foldar gróa, sveitirnar fyllast, akrar hylja móa, brauð veitir sonum móðurmoldin frjoa menningin vex í lundi nýrra skóga. Sé ég í anda knör og vagna knúða _ krafti, sem vannst úr fossa þinna skrúða, stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða, stjórnfrjálsa þjóð, með verzlun eigin búða. I fyrrnefndri ritgerð sinni túlkar Vilhj. Þ. Gíslason þetta afbragðs- kvæði skáldsins laukrétt í þessum orðum: „Það kvæði er merkissteinn í sögunni. Það er eggjun og stefnu- skrá. Það er tímamótakvæði á borð við ísland farsælda frón og Vor- hvöt. Það flytur boðskap nýs anda 0g nýrra athafna. Það ber einnig vott um nýja afstöðu Hannesar Haf- stein, nýjan tón. Frjálslyndi, frelsis- ást og framfarahugur er þar enn. En þessi einkenni hafa slípazt og þrosk- azt, orðið dýpri og rólegri en áður. Nú kemur fram nýr skilningur hans á sögu, þjóðerni og trú. En fyrst og fremst er kvæðið boðskapur nýs aldaranda, nýrrar hagnýtrar ætt- jarðarástar." Enn fremur falla Vil- hjálmi þannig orð um þessa and- ríku lögeggjan skáldsins til dáða: „Það mætti segja, að aldamótakvæð- ið væri skáldleg stefnuskrá heima- stjórnartímans." Eigi þarf nema að stikla á stærstu steinunum í margþættum fram- kvaémdum á því mikla framfara- tímabili til þess að sannfærast um það, að ofangreind staðhæfing um aldamótakvæðið hefir við rök að styðjast. Jónas Jónsson frá Hriflu, fyrrv. ráðherra, tók einnig í sama streng í hinni greinagóðu og gagn- fróðlegu yfirlitsgrein sinni „Valda- menn á íslandi 1874-1940 í Almanaki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.