Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2003, Blaðsíða 138
Tafla 3. Þrýstingur mældur með þrýstivog. \
mælisvið, afstæður þrýstingur hlutfallsleg óvissa
-1 til 0 bar 0,1%
0 til 120 bar 0,01%
V J
Þrýstimælar
Kvörðun þrýstimæla er gerð með því að setja sam-
eiginlegan þrýsting á mæli í kvörðun og á sér-
hannaða vog gegnum stimpla með vel þekktu flatar-
máli. „Þrýstivogin" hefur áður verið kvörðuð með
lóðum þannig að þrýstikvarðanir eru rekjanlegar til
massagrunna Löggildingarstofu. Vogin nemur í
raun kraft og vegna þess að þyngd lóðanna er háð
þyngdarhröðun á kvörðunarstað hefur Orkustofnun
mælt þyngdarhröðunina í kvörðunarstofunni í kjall-
ara Síðumúla 13.
Rafstærðir
1,2 og 5 kg lóð
landsmæligrunns.
Löggildingarstofa býr yfir góðum tækjabúnaði til að kvarða
almennar rafstærðir. Hægt er að kvarða flestar gerðir 4 til 5 stafa
fjölmæla. Eirtnig er hægt að kvarða stök viðnám, spennugjafa og
straumgjafa með umtalsverðri nákvæmni, t.d. 0,1% eða minna
fyrir straum og spennu.
Lengd
Löggildingarstofa býður upp á kvörðun metrastika, rennimála og
míkrómæla. Dæmi um kvörðunarnákvæmni er 0,4 mm, 0,01 mm
og 0,005 mm fyrir ofangreinda mæla.
Rúmmál
Til þess að prófa rennslismæla eru notuð mæliker með vel skil-
greindu rúmmáli og með kvarða er sýnir frávik umhverfis mál-
gildið. Slík mæliker má kvarða með hellingu úr jafnstóru,
kvörðuðu mælikeri, en þótt aðferðin virðist einföld veldur magn
bleytunnar í báðum kerunum þegar þau eru „tóm" allstórri óvissu.
Nákvæmari aðferð, en jafnframt flóknari, er „gravimetrisk". Þá er
vatn sett í kerið, þyngdaraukning vigtuð og rúmmálið reiknað út.
Mæla þarf hitastig vatnsins og kvarða þarf vogina. Löggildingar-
stofa getur kvarðað mæliker allt að 500 lítrum með vigtun og er
óvissan minni en 0,1 %. Kvarða má stærri tanka með endurtekinni
hellingu.
Notendur rekjanlegra mælinga
Það kann að koma einhverjum á óvart að þegar rætt er um kvarðanir og rekjanlegar mæl-
ingar er sjaldnast verið að ræða um rannsóknir og raunvísindi. Venjulega tengjast kvarð-
anir viðskiptum og lögboðnu eftirliti eða þörfum iðnaðarins vegna samkeppni og gæða-
markmiða. Notendur kvarðana eru því annars vegar stjórnvöld og hins vegar atvinnu-
lífið. Reglur sem snerta þetta svið eru því oft flokkaðar í skyldubundnar og frjálsar reglur.
Lögbundnar mælingar með tilheyrandi löggildingum mælitækja voru áður fyrr einkum
á sviði viðskipta með vogum, rúmmáli íláta t.d. fyrir korn, olíu eða síld og stikum eða
öðrum einföldum lengdarmálum t.d. til að mæla vefnaðarvöru. Þannig var það þegar
Löggildingarstofan tók til starfa árið 1919. Nú hefur sviðið víkkað mikið og hafa orðin
„umhverfi, öryggi og heilsa" oft verið notuð til að tákna þetta víða svið samfélagsins sem
reglur ná yfir. Þannig geta reglur náð yfir vog í heilsugæslu, mælitæki til umferðargæslu,
öryggi í viðhaldi flugvéla og er mismunandi milli landa hve margir flokkar mælitækja
lúta löggildingarskyldu eða hvernig réttar mælingar eru tryggðar með öðrum hætti.
1 3 4 | Á r b ó k VFl/TFl 2003