Neytendablaðið - 01.06.1953, Blaðsíða 3

Neytendablaðið - 01.06.1953, Blaðsíða 3
NEYTENDABLAÐIÐ — 3 er alltaf jafnsjálfsagt, að neyt- andinn greiði fullt verð. „Þetta er ekki tilbúið, þér verðið að koma seinna.“ Hver kannast ekki við þessa setningu. En hvaða mannasiðir eru það að skipa ó- kunnugu fólki, sem ekki er ráðið í vinnu hjá skijianda, að vera áð sendasl fram og aftur upp á von og óvon til að endurheimta sínar eigin eigur? Hvernig væri til dæmis að gera verktakann skaða- bótaskyldan, svo að kaupandinn þyrfti ekki greiða nema lielming verðs, sé hann svikinn einu sinni, fjórðung þar næst o.s.frv. Ætli menn yrðu ekki orðheldnari und- ir slíkum lögum? Og er það ekki eðlilegast, að sönnunarbyrðin hvíli á þeim, sem ekki stendur við orð sín, þannig að verktak- inn verði að leggja fram læknis- vottorð eða vottorð frá löggiltum viðgerðarmönnum, — sem Neyt- endasamtökin viðurkenna — um, að vélar hafi bilað? Þjóðfélaginu er lífsnauðsyn að ábyrgðartilfinn- ingu þegnanna, og lögin eiga að stuðla að henni, en ekki vinna gegn henni. Ábyrgð er þroskandi, en það er spillandi fyrir menn að vera losaðir við ábyrgð í dagleg- um störfum og í viðskiptum við samborgara sína. Opinber þjónusta — þjónustan við almenning. Snúum okkur svo að opinberri þjónustu. Hana borga neytendur vissulega líka, það er ekkert gef- ið. Þar af leiðandi kemur þeim eins við, hvernig hún er unn- in, engu síður en vörurnar. sem hann kaupir fullu verði. Það fer fjarri því, að sú meg- inregla hafi gilt um hina opin- beru þjónustu, að það bæri að auðvelda borgurunum lífið eins og hægt væri, fara að óskum þeirra, spara þeim sporin og firra þá óþarfa fvrirhöfn. Það er eðlilegt, að gengið sé hart að þeim, sem greiða ekki lögboðin gjöld til hins sameiginlega bú- skapar, en eiga að geta það eins vel og hinir. Þegar einstaklingar eiga viðskipli sín á milli, býður sá, sem tekur við fimmhundruð- köllunum, gjarnan upp á vindil eða sígarettu, þægilegt sæti og alúðlegt viðmót, síðan þétt liand- tak og þakkar kaírlega fyrir. Geti kaupandinn ekki komið að degi til, er jafnv§l hægt að hitta selj- andann urn kvöldið og ganga frá málunum. Því miður er ekki hægt að koma þessum háttum við, þegar skattgreiðandinn afhendir sína fimmhundruókalla, en á hinn skilvísi skattgreiðandi ekki siðferðilega kriifu á því, að hon- um sé gert eins auðvelt og hugs- anlegt er að greiða skattinn? Þú skalt, — og þaS er enginn miskunn. En honum er gert að mæta, eins og fyrir rétti, milli klukkan þetta og hilt, og það er lokað á mínútunni, — engin miskunn. Það skiptir engu máli, hviersu erfitt er fyrir skattgreiðandann að koma á þessum tíma, enda aldrei valinn hans vegna. og eng- ar undantekningar gerðar. Það er þarna sem j'afnréttinu er minnst misboðið. Og það er hæg- ara sagt en gert að senda frúna, því að hún yrði þá að taka roll- ingana með. Það er ekki von, að það sé nein vinnukona á heimil- inu. Skattgreiðandinn fær sér frí frá vinnunni — eða tekur sér það. Hann er aldeilis heppinn, ef liann þarf ekkert að bíða, þeg- ar á skrifstofna kemur. Þar eru fáir bekkir, og þeir ekki þægi- legir. Það er líka eins gott að standa í röðinni eða troða sér á- fram, ef allt er í einni kös, sem er eins sennilegt, því að skipulag á því sviði þekkist ekki hér, þótt það væri einfalt mál. Fólkið er látið um það sjálft. Hver er næst- ur? Það er um að gera að setja vel á sig andlit þeirra, sem á eft- ir koma. Mig minnti, að þessi liefði komið á eftir mér. En hvað um það, það borgar sig ekki að gerða veður út af því. Stundum er myndaður liálfhringur utan um gjaldkeragrindina, og þegar einn hefur fengið afgreiðslu, snýr liann sér við og brýtur sér leið gegnum þröngina. Þegar hann er kominn í gegn ,snúa sumir bak- inu í gjaldkerann, hinn síðasti er ef til vill orðinn fremstur eða næstfremstur og hinn fyrsti síð- astur. — Hugsa sér, ef einhver krislilegur skrifstofustjóri hefði einhvern tíma sett eitthvert smá- grindverk, t.d. færanlega stólpa með bandi á milli, svo að röðin kæmi af sjálfu sér, ekkert þýddi að troðast og aldrei þvrfti að spyrja, hver væri næstur. Og auk þess yrði sá tekinn, sem virkilega var næstur. ■—- Hvernig væri svo að borga sjúkrasamlagsiðgjöldin á eflir, svo að maður verði ekki sviptur réttindum í 6 mánuði? Þar er fullt út að dyrum, allt í einum graut. Það er ekki einu sinni hægt fyrir þegninn að geta sér þess til, í hvaða átt hann á að reyna að þoka sér fyrst. „Nú! Er það hinum megin, jæja.“ Skattþegninn skuldar 5 mánuði bæði fyrir sig og frúna. Fyrst er að borga það. En svo er þegn- inn með heilmikið af endur- greiðslukvittunum, og á eftir verður hann að stilla sér í röð uppi á lofti til að fá þær áritað- ar, og síðan niður aftur til að fá þær greiddar. Og svo var það fæðjngarstyrkurinn. Ekki’ veitiíi' af eftir allar greiðslurnar. En til þess að fá hann þarf hann að fara aftur upp í tollstjóraskrif- stofu og ná í tryggingarskírteini. í röðina þar aftur og svo í röð- ina hér aftur, og svo má hann vitja um styrkinn eftir viku. — Hann þarf að koma bréfi í póst fyrir klukkan 6. Þar eru tveir hálfbringshó|)ar af fólki. Hann stillir sér í annan, það getur varla tekið langan tíma. Og þó -— ef allir eru eins lengi og þessi, sem verið er að afgreiða núna. Hann er nefnilega frá stórfyrir- tæki með póst dagsins þaðan. Það er hart að vera næstur og vera bara með eitt bréf. Og þegn- inn ásakar sjálfan sig fyrir að hafa ekki farið í hinn hópinn, því að þar gekk allt fljótar. Hví ekki að klippa lengur og raka meira? Og það er ekki úr vegi að minn- ast á rakarastofurnar. Þær eru glöggt dæmi um þetta vandræða ástand. Rakararnir loka bókstaf- lega stofunum fyrir sjálfum sér, því að engum blandast hugur um það, að atvinna þeirra og tekjur tnyndu stórum aukást, ef þeir mættu hagræða starfstíma sínum með tilliti til þess, hvenær fólk má vera að því að láta klippa -sig og raka. En hverjir banna þetta? Þeir mega það fyrir þeim. sem borga allar kli])pingarnar og alla rakstrana. Og fjöldi fólks myndi láta klippa sig oft- ar og raka, ef þeim aðeins væri Það vantar eina stofnun, þar sem hœgt er að greiða öll sín gjöld. Það myndi spara þjóðarbú- skapnum óteljandi vinnustundir og borgurumnn geysilega fyrir- höfn, óþægindi og áhyggjur, ef þeir mættu greiða öll þau gjöld, sem tiltækilegt væri, á einum stað. Sú innheimtustofnun myndi hafa opið á þeim tímum, sem fólki hentar bezt, og þyrfti að hafa útibú víðsvegar um bæinn. Eins og nú er, heimtir hvert gjald sitt ferðalag og sína bið, því að liver stofnun tekur aðeins við sínum gjöldum og engum öðrum. Það er því lagt á herðar allra borgaranna að gæta þess, að þessar stofnanir rugli ekki saman peningunum, og það er mikið erfiði samanlagt. Þessi hugsaða innheitmustofnun tákn- ar ekki aukið skrifstofuhald í bænum, heldur hið gagnstæða. því að starfsliðinu ætti að safna frá öllum þeim stöðum, sem nú taka við greiðslum, hver í sínu lagi, af borgurunum, sem eru á sífelldum hlaupum á milli þeirra. Jóhann Scémundsson: Vevkefnin eru óþrjóíandi Framh. af 1 .síftu. viðskiptahættir, sem tor- að hátt vöruverð hefur hátt kaupgjald í för með sér, ef lífs- kjörin eiga að haldast óbreytt. Það verður ekki hlutverk neyt- endasamtaka að glíma við þetta hápólitíska vandamál, sem er flókið og fræðilegt^og nær langt út fyrir landsteinana. En neytendasamtök geta hasl- að sér völl og unnið raungott starf á hvaða tíma sem er og hvað sem líður hinu pólitíska ölduróti hverju sinni. Tilgangi samtakanna hefur verið lýst í blöðum og útvarpi í þeirri grein- argerð, sem þeim var send, er boðað var til þessa fundar. Þar segir, að höfuðtilgangur sámtakanna ælti að vera að vinna að því: 1. Að fyllsta tillit sé tekið til neytenda almennt þegar 'sett ar eru reglur eða teknar ákvarðanir, sem snerta dag- legt líf þeirra. 2. Að öryggi neytenda í við- skiptum sé gert eins mikið og unnt er með því að koma á gæðamati, veita neytend- um hvers konar leiðbein- ingar og upplýsingar, gefa þeim kost á ódýrri réttar- þjónustu o.s.frv. 3. Að allar þær reglur og þeir velda fólki hið daglega líf þess, séu teknir til endur- skoðunar með lausn í þágu neytendanna almennt að markmiði. Mér þykir einsætt, að þessi samtök, ef stofnuð verða, þurfi að gefa út málgagn, nevtenda- blað, er geti veitt neytendum margvíslega vilneskju og fræðslu. Það er á allra vitorði, að verð- lag á sömu vöru er ærið mis- jafnt, og hefur nýlega verið á- kveðið af opinberrrS hálfu iað birta lægsta verð, meðalverð og hæsta verð nokkurra vörutegunda mánaðarlega. En neytendur eru litlu nær, fyrst þeir vita eftir sem áður ekkert um, hvar þeir geta gert beztu kaupin. Or þessu gætu neytendasamtök bætt, með því að birta i málgagni sínu nöfn þeirra verzlana og fyrirtækja, sem bjóða vörurnar á lægsta verði. Mætti þá gera ráð fyrir, að straumur viðskiptavinanna stefndi þangað, en afleiðingin yrði vafalaust sú, að þeir, sem selja vörurnar á hærra verði, myndu lækka þær, eða verða af viðskiptunum ella, og hvgg ég að alger óþarfi sé að heimta birt- ingu á nöfnum þeirra, sem dýr- seldir eru. Hagsmunir þeirra sjálfra mundu knýja þá til að lækka verðið. í sambandi við þetta, er nauðsynlegt, að komið sé á fót gæðamati, bæði í þeim tilgangi að forðast að beita selj- endur órétti, ef misjafnt verð stafar af ólíkum vörugæðum, en einnig til þess að tryggja neyt- endum góða vöru. Gæðamalið þyrfti að taka jafnt til innlendra sem erlendrar vöru,hvort sem um væri að ræða matvæli eða iðnað- arvörur. Mörgum þykir kvnlegt, hversu erfitt getur verið að fá ferskar og nýjar vörur hér, t. d. egg, svo að dæmi sé nefnl.í ekki heitara landi, og stafar þetta sennilega af ófullkomnum geymsluaðferðum, sem ætla má að hægt sé að bæta úr. Neytendasamtök láta sig að sjálfsögðu miklu skipta, hvers konar þjónusta er í té látin. hvorl sem heldur er hjá einka- fyrirtækjum eða öpinberum að- ilum, þ.e. bæ og ríki. Þau láta sig varða og spyrja hvort rétt- mætt sé, að greiða t.d. talsvert fé fyrir það, ef flík eyðileggst í hreinsun, eða hvort réttara væri. að skaðabætur kæmu fyrir. Þeg- ar eitthvað hliðstætt á sér stað, er vitanlega nauðsynlegt að vör- urnar séu gæðamerktar og þá augljóst, hvaða meðferð þær þoli eða þoli ekki, en einnig hitt, að einstaklingar úr nevtenda hópi eigi greiðan aðgang að lög- fræðilegri aðstoð til að reka réttar síns, ef þörf krefur. Þá er ekki síður nauðsynlegt, að neytendur hafi vakandi auga á hinum stóru bræðrum: ríki og bæ. Það skiptir vissulega miklu máli. hvað gert er við þær fjár- hæðir, sem neytendur greiða í skatta og útsvör. Við getum velt því fyrir okk- ur, hvort það sé heppileg og rétt lausn, að Reykjavíkurbyggð dreifist út um holt og liæðir, meðan hjarta bæjarins má heita óbyggt. Þar eru þó götur, raf- magn, vatnsveita og önnur nauð- svnleg þægindi þegar til. en öll- um er ljóst, hvílíkan kostnað út- þensla bæjarins liefur í för með sér, þar sem leggja þarf götur, sorpræsi, rafmagns- og vatns- leiðslur, sjá fyrir götulýsingu, sor|)hreinsun, strætisvagnarferð- um og svo framvegis. Við getum Hka velt því fyrir okkur, hvort það lækki vöruverðið, ef verzl- unarlóðir í miðbænum kosta 2— 3000 krónur hver fermetri eða jafnvel meira fyrir þá sök eina, að Reykjavík er lífvænleg borg og vaxandi, en á ekki sjálf sitt eigið hjarta. nema að sára litlu leyti. Sést hefur í blöðum, að bær- inn hafi þurft að kaupa gamalt hús á lítilli lóð, af því að húsið skagaði dálítið út í Vesturgötuna, og greitt fyrir rúmlega 900 þús- und krónur. Dýr mundi Hafliði allur og líklega er liann óborgan- legur, eti samt sem áður kemur þetta okkur öllum við. Þótt Reykjavík telji nú um 60 þúsund íbúa, eru göturnar hér ekki í þjóðvega tölu. Aðrir landsmenn bera ekki kostnað af þeim með okkur. Á þessu ári mun ætlunin að verja um 12 milljón- um króna til gatnagerðar hér í bænum, en ríkið varði 41 millj- án króna til vegamála á árinu sem leið. Síðasta alþingi sam- þykkti að lengja þjóðvegina um 790 kílómetra, eða 15.6% í einu stökki. Þótt aðrir landsmenn styrki okkur Reykvíkinga ekki til vegagerðar, gerum við betur til þeirra og berum okkar liluta kostnaðar við þjóðvegina, sem sjálfsagt er. En er þetta ekki fulllrífleg aukning, 790 km. í einu eða næstum 4 sinnum meiri vegalengd en austur að Vík í Mýrdal. Einnig þetta kemur okkur við. Ég hef gripið niður hér og þar og tekið dæmi af hreinu handa- hófi til að sýna, hversu víða neyt- endasamtök geta Iátið til sín taka. Það má segja að ekkert sé þeim með öllu óviðkomandi, jafnvel þótt fjarlægt virðist við fyrstu sýn. Meginhlutverkið er þó í því fólgið að bæta samskipti manna og skaj)a nauðsynlegt aðhald bæði í einkaviðskiptum og í skiptum einstaklinganna við op- inbera aðila. Ef unnið er að þess- um málum með gætni, festu og um fram allt af sanngirni, er ég viss um, að árangurinn verður góður.

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.