Neytendablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 23
UR BARATTUNNI
Um leiö og kjúklingabændur telja þetta eina af ástæöum þess,
aö hér á landi eru líklega dýrustu kjúklingar í heimi, telja þeir
ófært aö hefja innflutning á ódýrum kjúklingum. Ástæðan er auð-
vitaö sú, aö þessir útlensku kjúklingar eru fullir af alls kyns lyfjum
og eiturefnum. Þaö er mesta furða, hvað Hollendingum og Dön-
um tekst að lifa af, þessa ódýru og stórhættulegu kjúklinga.
Þegar innflutningur á kjúklingum ber á góma, ber svo viö aö
kjúklingabændur og landbúnaðarfrömuðir haldast í hendur,
enda hagsmunir beggja í húfi. Innflutningur mundi reka enda-
hnútinn á stríð kjúklingabænda og stela sigrinum af landbúnað-
arfrömuöunum. Innflutningurinn mundi líka hafa óheillavænleg
áhrif á rándýra fjallalambið, sem líklega yrði aðeins á jólaborð-
um landsmanna.
Megum ekki spara í umhverfismálum
Þau ánægjulegu tíðindi hafa borist, að plastpokanotkun
landsmanna hafi minnkað til muna, með tilkomu plastpoka-
gjaldsins. Það standa varla margir í svipuðum sporum og Land-
græðsla Ríkisins, sem getur fagnað því, aö arðsemin eykst eftir
því sem tekjurnar minnka.
Við megum ekki gleyma því, að arðsemi er meira en það, sem
við teljum í krónum og aurum. Við getum ekki lengur haldið að
okkur höndum varðandi fjárveitingu til hollustu- og umhverf-
isverndar.
Það er nauðsynlegt að efla matvælaeftirlit, hvort sem er með
innfluttum eða innlendum vörum. Ekki síst þarf að efla eftirlit
með innlendum vinnslulínum og er nýlegt kjötfarsdæmi góð
áminning þar um. Sorp og úrgangur er ógnun við umhverfið, sé
því ekki fyrirkomið með ábyrgum hætti.
Sparnaður og andvaraleysi í umhverfismálum skaðar ekki
aðeins okkur sem lifum í dag, heldur hefur jafnvel óbætanleg
áhrif á framtíðarumhverfi barna okkar og barnabarna.
Höfum við efni á því? Hefur umhverfið efni á okkur?
w
Eftir að plastpokagjaldið var tekið upp hefur plastpokanotkun
minnkað til muna. Út frá umhverfissjónarmiði telst það mjög
jákvœtt.
Aðlögunartími að renna út
Hollustuvernd ríkisins hefur óskað eftir því að heilbrigðiseftirlit sveitar-
félaganna gæti þess að matvörur sem eru í ósamræmi við reglugerð um
aukefni og merkingar verði ekki á boðstólum í verslunum eftir 1. júlí næst-
komandi.
Matvælaframleiðendur og innflytjendur eru hvattir til að hraða úrbótum,
þannig að vörur þeirra séu í samræmi við reglugerðir.
Hollustuvernd ríkisins
Síðumúla 13, sími 681844
108 Reykjavík
Hollustuvernd ríkisins erætlað að stuðla að sem heilnæmustumlífsskilyrðum í landinu meðþví aðtryggjasem best
eftirlit með umhverfi, húsnæði, almennri hollustu matvæla og annarra neyslu- og nauðsynjavara og vernda þau lífs-
skilyrði sem felast í ómenguðu umhverfi, lofti og vatni.
23