Bændablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 19

Bændablaðið - 15.07.1997, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 15. júlí 1997 Bœndablaðið 19 Grindiir til dnnburrkunar Æðarvarpi er nú lokið þetta árið og allur dúnn kominn í hús. Æðarvarp og dúntekja gekk víðast mjög vel, varp var þó óvenju seint á ferðinni, enda voraði seint. En þrátt fyrir þetta var tíðarfar æðarvarpi víðast hvar hagstætt nema á Norðausturlandi. Allt bendir því til að dúntekjan í ár verði í góðu meðallagi. Eins og æðarbændur þekkja vel er afar mikilvægt að þurrka allan dún strax eftir að hann hefur verið tekinn úr hreiðri og vanda vel til þannig að ekki verði eftir blautar klessur. Gamla aðferðin er að sólþurrka dúninn á þurrum og hreinum fleti á móti sólu og snúa honum ört og um leið var grófasta ruslið hrist úr og greitt úr klessum og hreiðurbotnum. Þótt vélþurrkun með breytilegum hætti hafi nú víða leyst gömlu sólþurrkunina af hólmi, þá eru Bœndabladsmynd: Árni Snœbjömsson Dúnþurrkunargrindurnar í Lang- eyjarnesi eru á hjólum og því auðvelt að fœra þœr. ennþá margir sem helst vilja sólþurrka dúninn ef þess er nokkur kostur og aðrir búa við þannig aðstæður að sólþurrkun er eina aðferðin sem völ er á. Vegna ótryggrar veðráttu getur reynst tafsamt að sólþurrka dúninn þegar sífellt þarf að færa hann inn eða út. Þetta atriði hefur þó verið leyst með ýmsum hætti, en hér fylgir með mynd af færanlegum dúnþurrkunargrindum sem Kristján Hagalínsson í Langeyjamesi í Dalasýslu hefur komið sér upp. Grindumar em á hjólum þannig að á augabragi má renna þeim út eða inn, en gólf í dúnhúsinu (gömul hlaða) og útiplanið em í sömu hæð. Auðvelt er að hafa hjól grindanna á nk. fótum ef menn vilja hækka þær upp þannig að dúnnin verði í vinnuhæð. Þá getur Kristján breitt plastdúk yfir ef hann þarf að bregða sér frá og órtyggt er með veður. Grindur þessar hefur hann notað í nokkur ár og líkar vel./ÁS Handbúk ráúunauta komin vel á veg Handbók ráðunauta er vel á veg komin og hefur töluvert af efni verið sett í Handbókina okkar. Ábendingar hafa borist um efni, en mættu vera fleiri. Þeir bændur og ráðunautar sem vilja koma með ábending- ar um efni geta haft samband við Maríönnu Helgadóttur í síma 5630353 eða sent ábend- ingar bréfleiðis. Netfang:- bi@bi.bondi.is Það sem þegar er komið og væntanlegt í Handbók ráðunauta: • Handbók Bænda: Árgangar 1990 - 1997 eru komin í kerfið og greinar úr Frey munu fylgja í kjölfarið, árin 1993-1997, ásamt greinum frá Ráðunautafundum og Búvísindum. • Verðlistar:. Verðlistar em komnir í kerfið yfir áburð og fóður hjá nokkmm fyrirtækjum sem eru skráð í Gulu bókina. Stefnt er að því að fá sem mest af verðlistum yfir vömr fyrir landbúnað, þannig að hægt sé gera samanburð á milli fyrirtækja, sé vilji fyrir hendi. Gott væri að fá viðbrögð við þessu og við hvaða fleiri fyrirtæki eigi að hafa sé samband við til að fá verð- lista. Öll fyrirtæki eru að sjálf- sögðu velkominn að senda verð- lista og skal senda á til Maríönnu. • Aburðartöflur: Áburðartöflur em í kerfinu. • Fóðurþarfir: Fóðurþarfir bú- fjár em komnar í kerfið. Næringarþarfir: Næringar- þarfir ýmissa plantna em komnar í kerfið, ásamt eiginleikum ýmissa afbrigða. • Lög og reglugerðir: Frá Land- búnaðarráðuneytinu em á leiðinni lög á tölvutæku formi og þau verða sett í handbókina strax og þau berast. Gott væri að fá að vita hvaða fleiri reglugerðir þurfa að vera í hand- bókinni. • Eyðublöð: Einhver eyðublöð verða sett inn í þetta kerfi, gott væri að fá ábendingar um eyðublöð það ættu helst að vera. •Skrá yfir sæðingardýr: Skrá yfir naut, hrúta og stóðhesta ásamt ein- kunnum þeirra verða sett inn í kerfið. Eitthvað er komið inn í kerfið. •Búvélaprófanir: Nýjustu bú- vélaprófanir sem hafa verið birtar munu verða settar inn í kerfið. Margt fleira efni verður í handbókinni en gott væri að fá ábendingar frá sem flestum. Maríanna Hugrún Helgadóttir Cilawrap Silawrap rúlluplastið er fáanlegt á eftirtöldum stöðum: Vélar og þjónusta hf Járnhálsi 2 Reykjavík S. 587-6500 Vélar og þjónusta hf Óseyri 1A Akureyri s. 461-4040 Guðmundur Ólafsson Núpi Öxarfirði s. 465-2309 Vélaval-Varmahlíð hf Varmahlíö Skagafirði s. 453-8888 Benedikt Ragnarsson Barkarstöðum V-Húnavatnssýslu S. 451-2636 Kristján Sigfússon Húnstöðum A-Húnavatnssýslu s. 452-4285 Jóhannes Eyberg Ragnarsson Hraunhálsi Snæfellsnesi S. 438-1558 Stefán Ármannsson búvélaverkstæði Skipanesi Borgarfjarðarsýslu s. 433-8894 Þráinn B. Jónsson Miklholti Biskupstungum s. 486-8980 Eiríkur Þórkelsson Vorsabæ Skeiðum s. 486-5596 Höfn-Þríhyrningur hf Pakkhúsi Selfossi s.482-1501 Höfn -Þríhyrningur hf Pakkhúsi Hellu s. 487-5886 Baldur Þ. Bjarnason Múlakoti V-Skaftafellssýslu S. 487-4761 Björn Sigfússon Brunnavöllum A-Skaftafellssýslu s. 478-1056 Bílasalan Fell Lagarbraut 4C Egilsstöðum S. 471-1479 VELAR& PJ©NUSTA hf Jámhálsi 2, Reykjavík, sími 587-6500, fax 567 4274 Útibú á Akureyri, sími 461 4040, Óseyri 1a Silawrap rúlluplastið er fáaniegt bæði í hvítum og Ijósgrænum lit. Fyrirtæki sem selja vörur fyrir landbúnaö Vegna vinnslu Handbókar ráðunauta verður haft samband við fyrirtæki og þau beðin um verðlista. Þau fyrirtæki sem ekki er í þessum hópi og hafa hafa áhuga á að vera með verðlista inni í þessari Handbók er bent á að senda verðlista til: Bændasamtök íslands, b/t Maríannu H. Helgadóttur Bændahöllinni, pósthólf 7080,127 Reykjavík Drive 655 AS múgavél, tveggja stjörnu, dragtengd, vökvalyft. Vbr. 6,55 m. Hentar litlum dráttarvélum. Verð kr. 665.000 án vsk. Járnhálsi 2, Reykjavík, sími 587-6500, fax 567 4274 Útibú á Akureyri, sími 461 4040, Óseyri 1a Leitið upplýsinga um afslátt og greiðslukjör. VÉLAR& PJwNUSTAhf Heyvinnuvélar fyrirliggjandi Þýsk gæðavara Bændur athugið! Síðsumarsafsláttur frá 15. júlí R-1400S múgavél, vökvastýrð - tveggja stjörnu. Rakar í einn garða til vinstri eða tvo garða til hægri. Vbr. 6,20 m. Verð kr. 834.000 án vsk. SPEED680 A tætla, dragtengd, vökvaiyft. Vbr. 6,80 m. Hentar litlum dráttarvélum. Verð kr. 583.000 án vsk. Stjörnumúgavélar Léttar en öflugar, lyftutengdar múga- vélar sem henta fyrir litlar dráttarvélar. R 320 S, vinnslubr. 3.15 m (270 kg). Verð kr. 179.000 án vsk. R 335 DS, vinnslubr. 3,35 m (325 kg). Verð kr. 215.000 án vsk. R 415 DS vinnslubr. 4.15 m (440 kg). Verð kr. 260.000 án vsk. Heyþyrlur Vinnslubreidd 5,50 m Léttbyggðar en öflugar. Henta litlum dráttarvélum. Z 550 AS dragtengd kr. 299.000 án vsk. Z 550 DN lyftutengd kr. 294.000 án vsk.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.