Bændablaðið - 27.05.2003, Blaðsíða 1
10. tölublað 9. árgangur
Þriðjudagur 27. maí 2003
ISSN 1025-5621
Loðskinn helur náð að
skapa sér sérstöðn é
markaðnum
„Við erum mjög ánægðir með
okkar sölumál en við erum hins
vegar ekki jafn ánægðir með
gengisþróunina hér á landi og
eins og er óttumst við þá þróun
meira en annað varðandi rekst-
urinn," sagði Gunnsteinn
Björnsson, rekstrarstjóri Loð-
skinns ehf. á Sauðárkróki en af-
koma fyrirtækisins hefur batnað
til muna. A liðnu ári var af-
koman réttu megin við núllið og
Loðskinn skilaði dálitlum
hagnaði.
Á tískuvörumarkadinn
Nokkur breyting hefur verið
gerð á framleiðsluvörum fyrir-
tækisins. Gunnsteinn segir að nú
sé lögð áhersla á að vera með sér-
stakt útlit og reyna að fylgja tísku-
markaðnum í stað þess að vera
með hefðbundna framleiðslu.
„Við megum ekki gleyma þvi að
íslensku skinnin eru örfá á heims-
vísu jafnvel þótt við fengjum allar
þær gærur sem falla til á Islandi
og þess vegna er hægt að leggja
áherslu á sérstöðuna," segir
Gunnsteinn.
Sérstaða islensku ullarinnar
Loðskinn ehf. ffamleiðir
mokkaskinn en er með það í
öðruvísi útgáfu en aðrir.
Gunnsteinn segir að þeir séu að
leika sér dálítið með íslensku
ullina í þessari ffamleiðslu með
því að kalla ffam þær náttúrulegu
krullur sem í henni eru og þá í
hinum ýmsu ullarlengdum. Þetta
segir hann að hafi gengið vel og
líkað mun betur en þegar verið var
að reyna að líkja eftir spænsku
Mereno-ullinni sem er alveg slétt.
Gunnsteinn segir að helstu
markaðir fyrir íslenskt mokka-
skinn séu í Evrópu en upp á síð-
kastið hafi náðst mjög góður
árangur í Asíu. I fyrra keypti
Loðskinn ehf. allar þær gærur sem
fyrirtækið gat fengið hér á landi
en Gunnsteinn segir að nokkuð
hafi verið flutt út. Og Gunnsteinn
bætir því við að Loðskinn hefði
keypt meira af gærum í fyrra ef
þær hefðu verið fáanlegar og greitt
fyrir þær heimsmarkaðsverð.
Loðskinn ehf. er 40 manna
vinnustaður sem er ekki lítið í
kaupstað á stærð við Sauðárkrók.
Nýja Hvanneyrarfjósið:
Tilboð undir kostnaðaráætlun
Tilboö í nýja fjósiö á Hvanneyri voru opnuö 19. maí sl. í viðtali við Bændablaöiö
lýsti Torti Jóhannesson hjá LBH mikilli ánægju meö framkvæmd útboösins. “Þaö er
gaman aö sjá hversu margir aðilar hafa áhuga á þessari framkvæmd og hafa áhuga
á aö koma aö uppbyggingunni hór á Hvanneyri. Alls bárust 12 tilboð í
framkvæmdina og þar af voru sjö undir kostnaöaráætlun og fimm yfir. Þetta sýnir
aö kostnaðaráætlun var vei unnin og þar ber aöþakka aöalhönnuöi fjóssins -
Magnúsi Sigsteinssyni hjá Byggingarþjónustu Bl og Guömundi Pálssyni hjá
Framkvæmdasýslu ríkisins, auk þess sem Leifur Benediktsson, verktræöingur veitti
ómetanlega aöstoö viö gerö útboösgagna."
Torfi segir aö tilboöin séu nú í yfirlestri hjá Framkvæmdasýslu rikisins en
niöurstaöa eigi aö fást í vikunni. “Þaö var fyrirtækið Sólfeli ehf. sem var meö
lægsta almenna tilboöiö (80,8 mill.) en Sólfell var þar aö auki meö frávikstilboö
sem var enn iægra (78,6 mill.). Kostnaöaráætlun hljóöaöi upp á 91,6 milljónir
þannig aö lægsta almenna tilboð var upp á rúm 88% af kostnaöaráætlun." Nánari
upplýsingar eru á heimasíöu Landbúnaöarháskóians: www.hvanneyri.is
Gaf jörðinni fjfigur tnnn aí
áburði á 40 ára
búskaparafmælinu!
Kristján bóndi Finnsson á
Grjóteyri í Kjós var
kampakátur þegar hann steig
út úr landgræðsluflugvélinni
Páli Sveinssyni eftir að hafa
flogið með Tómasi Degi
Helgasyni, flugstjóra, yfir
land Grjóteyrar og dreift
fjórum tonnum af áburði á
það í síðustu viku. Kristján
og kona hans, Hildur
Axelsdóttir, hafa búið að
Grjóteyri í 40 ár og “þetta
var búskaparafmælisgjöf,”
sagði Kristján. “Við höfum
raunar dreift áburði á landið
úr lofti í mörg ár enda er
jörðin orðin allt önnur. Ég
hef notað dráttarvélar til að
bera á landið en það er ólíkt
þægilegra að fljúga yflr það!
Auk þess kemst ég hærra í
brekkurnar án þess að konan
verði hrædd.”
í sumar verður dreift 110 -
120 tonnum af áburði og 8
tonnum af fræi með Páli
Sveinssyni. Stærsta verkefni
sumarsins með landgræðslu-
flugvélinni verður uppgræðsla
meðfram væntanlegu
vegarstæði Suðurlandsvegar.
Þetta er þrítugasta árið sem
sem hin 60 ára gamla DC-3
flugvél er að landbótastörfum.
Þá er þess að minnast að í ár
eru 45 ár liðin frá því að land-
græðsluflug hófst á íslandi.
“Þetta er því mikið
afmælisár,”sagði Sveinn
Runólfsson, landgræðslustjóri, í
samtali við Bændablaðið. Þess
skal getið að Áburðar-
verksmiðjan gaf 27 tonn af
áburði sem verður dreift á
Reykjanesi.
Afar kunna vel að meta þegar afa-
dæturnar koma í heimsókn. Stúlk-
an heitir Ásta Katrín en afinn er
Guðmundur Albertsson, Heggs-
stöðum i Kolbeinsstaðahreppi.
Kýrin heitir Rauðka.
isfandsbanki færði Hvann-
eyringum Hantfbnk bænda að gjðf
Laugardaginn 24. maí
14.00 var brautskráning
nemenda frá Landbún-
aðarháskólanum á
Hvanneyri með hátíðlegri
og Ijölmennri athöfn í
mötuneyti skólans. Við
skólann er boðið upp á
háskólanám á þremur
námsbrautum, land-
nýtingar-,
umhverfisskipulags - og
búvísindabraut. Að þessu sinni
brautskráðust níu nemendur af
búvísindabraut og þrír af land-
nýtingarbraut auk 23 nemenda
sem útskrifuðust með
búfræðipróf úr
Bændadeild. Af þeim
voru 2 fjarnemar.
Ekki brautskráðust
nemendur af um-
hverfisskipulagsbraut
að þessu sinni því hún
var fyrst starfrækt við
skólann haustið 2001.
Hæstu einkunn á
háskólaprófi hlaut Gunnfríður
Elín Hreiðarsdóttir. Hún
stundaði nám á búvísindabraut
og fékk einkunnina 8,78. Á
landnýtingarbraut var hæsta
einkunn 8,30, en hana hlaut
Cathrine Helene Fodstad.
Hæstu einkunn á búfræðiprófi
hlaut svo Sigurbjörg
Sigurbjörnsdóttir, með
einkunnina 8,64.
Þetta er í fyrsta sinn sem
nemendur útskrifast eftir að
hafa stundað allt sitt
háskólanám við LBH eftir að
skólinn var formlega gerður að
háskóla með lögum árið 1999.
Þess má geta að
íslandsbanki keypti Handbók
bænda af Bændasamtökum
íslands og færði nemendum á
Hvanneyri að gjöf.
Sjá leiðara blaðsins á bls. 6.