blaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 2
GTS 200 Stærðir: 34-38 Hjól: 64mm Legur: UrethaneAbec 1 Stækkanlegur Sensor xt Stærðir: 32,5-39 Hjól: 72mm Legur: LabedaAbec 5 MTX 360 Stærðir: 34-36,5 Hjól: 70mm Legur: UrethaneAbec 3 Stækkanlegur Europa Stærðir: 38-43 Hjól: 76mm Legur: LabedaAbec 3 RTX 770 Stærðir: 40-46,5 Hjól: 76mm Legur: LabedaAbec 5 Victor Stærðir: 38-43 Hjól: 84mm Legur: LabedaAbec 7 Corr ATA-700 Freestyle skauti Stæroir: 38-46 Hjól: 56 mm Labeda Legur: ABEC 3 Externo Fury Street hockey skauti Stærðir: 38-46 80 mm Labeda Dynasty Legur: ABEC 7 Tour Red Max Street hockey skauti Stærðir: 39-46 Hjól: 56 mm Labeda Vapor Legur: BEV0 ABEC-3 Hné og olnbogahlífai FERÐA- OG ÚTIVISTARVERSLUN Skeifunni 6 ■ Simi 533 4450 ■ www.everest.is Auglýsingadeild 510-3744 föstudagur 6. maí 2005 I blaðið Hreyfing á máli Arons Pálma - Bobby Fischer genginn til liðs við RJF-hópinn „Eftir að við gáfum til kynna að við myndum beita okkur af fullum þunga fyrir lausn Arons Pálma hefur komist hreyfing á málið,“ segir Einar S. Ein- arsson, talsmaður RJF-hópsins sem vinnur að lausn Arons Pálma Ágústs- sonar sem hefur setið í refsivist í Tex- as í átta ár. „Fyrir nokkrum dögum fékk Aron heimsókn frá eftirlitsmanni sínum og síðan fékk hann heimsókn írá tveim- ur fulltrúum ríkisstjóraembættisins. Þeir menn voru með pappíra þar sem farið var fram á að Aron samþykkti að vera sendur til íslands eftir að hann væri búinn að afplána dóm sinn, en hann á eftir rúm tvö ár. Að beiðni þessara manna ítrekaði Aron skrif- lega ósk sína um að fara til íslands sem fyrst og ljúka afplánun hér. Það að þeir skuli hafa farið fram á það vek- ur óneitanlega vonir um lausn máls- ins,“ segir Einar. Einar segir þá Guðmund G. Þórar- insson hafa rætt óformlega við utan- ríkisráðuneytið hér á landi. „Ljóst er að þar munu menn aðstoða okkur á allan hátt, þótt þeir hafi ekki frum- kvæði að málinu," segir Einar. Hópurinn ætlar sér að vinna að krafti að máli Arons, skrifa greinar í blöð, erlend og íslensk, og á netsíður. Blaðakona frá New York Times hef- ur ítrekað hringt í Einar sem hyggst senda henni greinar um málið. Er- lendir blaðamenn, aðallega bandarísk- ir, hafa einnig haft samband við Guð- mund. „Við íhugum einnig að fara til Bandaríkjanna og ræða við menn um málið, þar á meðal viljum við ræða við ríkisstjórann í Texas,“ segir Einar. RJF-hópurinn var upphaflega stofh- aður til að vinna að frelsun Bobby Fischer úr japönsku fangelsi. Skák- snillingurinn hefur nú gengið til liðs við hópinn og er sagður öflugur liðs- maður, hugmyndaríkur og ákveðinn. „Fischer finnst Aron hafa verið beitt- ur óþolandi óréttlæti og það verði að ná honum út strax. Hann er á því að það þýði ekkert að tala við lögreglu- yfirvöld í Texas með kurteisisorðum, hann segir þá menn enga virðingu bera fyrir kurteisishjali. Fischer seg- ir að menn verði að vera ákveðnir og harðir í horn að taka ætli þeir sér að fá Aron lausan," segir Einar. „Menn eru síhringjandi frá 60 mínútum, vilja hitta Robert Fischer ogfjalla um hans mál. Við ætlum að nýta það mál til að beina sjónum þeirra að máli Arons.“ Bauhaus fyrlr bi? ‘ftmnmimnia Enn bólar ekkert á stórverslun þýsku byggingavörukeðjunnar Bauhaus, sem fregnir hermdu að risi innan skamms í Lindahverfi í Kópavogi. Að sögn lóðarhafans þar er hugmyndin um stórverslun Bauhaus þar dottin upp fyrir. „Ég veit ekki um frekari fyrirætlanir Bauhaus á íslandi en á sínum tíma var ekkert frágengið um að þeir myndu byggja þarna,“ segir Bjami Már Bjamason, framkvæmda- stjóri JB byggingarfélags. „Sannast sagna komu þessar fréttir á sínum tíma okkur nokkuð á óvart, við nán- ast lásum um það í blöðunum að þeir ætluðu að byggja á lóðinni okkar.“ Að sögn kunnugra í bygginga- vörugeiranum er talið ólíklegt að úr innrás Bauhaus til íslands verði úr þessu. Það hafi verið Danmerkurdeild fyrirtækisins sem kannað hafi málið en byggingavara á þeim markaði sé síst lægra verðlögð en gerist hér. Fyr- irtækið hafi vissulega kannað vaxtar- möguleika í ýmsum löndum en minna orðið úr en til hafi staðið. Eins kynni að hafa skipt máli að á sama tíma og áhugi Bauhaus virtist vera mestur vom nokkrar hræringar á bygginga- vörumarkaði hér á landi. í febrúar var frá því greint í Morg- unblaðinu að Bauhaus áformaði að opna risavaxna 22.000 m2 bygginga- vömverslun vorið 2006, sem myndi veita BYKO og Húsasmiðjunni harða verðsamkeppni. Út af fyrir sig hefðu það verið nokkur tíðindi á þeim mark- aði en hitt þótti ekki minna merkilegt að með því myndi stór erlend verslun- arkeðja í fyrsta sinn ryðja sér til rúms á íslenskum markaði. Fram að þessu hafa erlendar verslunarkeðjur ekki ómakað sig við að sinna þessum litla, einangraða markaði og hafa neytenda- frömuðir talið það ýta undir fákeppni hér. ■ Banaslys við Norðlingaholt Stúlka á tuttugasta ári beið bana þegar hún ók bíl sínum út af Breiðholtsbraut í Reykjavík í gær- morgun. Stúlkan var á leið norður Breiðholtsbraut í Víðidal, skammt undan Norðlingaholti, þegar hún fór út af veginum með þeim afleið- ingum að bíllinn valt. Hún var ein í bílnum og er talið að hún hafi látist samstundis. Að sögn lög- reglunnar í Reykjavík voru engin vitni að slysinu og enn óvíst um nánari tildrög þess. Tilkynnt var um slysið kl. níu að morgni upp- stigningardags. Enn kraftur á fasteigna- markaðnum Fasteignasalar segja að þó að enn sé mikill kraftur í markaðn- um hafi aðeins slaknað á en ekki mikið. Bjöm Þorri Viktorsson, for- maður Félags fasteignasala, telur að verð eigi ekki eftir að lækka. „Markaðurinn leitar jafnvægis um þessar mundir og svipað hús- næði og seldist á einum degi tekur nú viku til tíu daga að selja.” Spurður að því hvert fólk flytji helst nefnir Magnús Leopoldsson fasteignasali að svæðið vestan Elliðaáa seljist mjög vel og nefnir póstnúmerin 101,107,104,105 og 108 sem dæmi en bætir við að Suð- vesturhomið sé allt eftirsótt, allt austur að Hveragerði og Selfossi. Bjöm Þorri varar fólk við því að leggja of mikla merkingu í svokall- að meðalfermetraverð Fasteigna- matsins. Hann segir það geta leitt til rangrar verðlagningar og spyr hvað meðaleign sé. Nýtt ókeypis dagblað gefið út - Upplag 80 þúsund eintök, dreift á öll heimili og fyrirtæki á Stór-Reykja- víkursvæðinu Nýtt dagblað, Blaðið, kom í fyrsta skipti út í morgun en því er dreift án endurgjalds til lesenda. Blaðið verður gefið út alla virka daga. Prentsmiðja Morgunblaðs- ins sér um prentun og íslandspóst- ur um dreifingu til tæplega 80 þús- und einstaklinga og fyrirtækja á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Ekk- ert dagblað hefur áður náð slíkri dreifingu frá fyrsta degi. Lögð er áhersla á trausta og áreiðanlega blaðamennsku. Stuttar og hnit- miðaðar fréttir einkenna blaðið, þar sem allir eiga að geta fund- ið eitthvað við sitt hæfi. Lögð er áhersla á daglegt líf og áhugamál fólks. Nýja blaðið er frjálst og óháð. Útgefandi er fjölmiðlafyrirtækið Ár og dagur ehf., sem er í eigu nokkurra einstaklinga og lögað- ila. Meirihlutaeigendur em Karl Garðarsson, sem er útgefandi blaðsins, Sigurður G. Guðjónsson, stjórnarformaður Árs og dags, Steinn Kári Ragnarsson og Erling Adolf Ágústsson. Starfsmenn em tæplega 30 og er búist við að þeim flölgi hratt á næstunni.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.