blaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 6
blaöiö
6
FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 2007
j Hætt við Merck
Actavis hefur dregið sig út úr viðræðum um kaup á sam-
heitalyfjahluta þýska lyfjarísans Merck. Ástæðan er sú að
keppinautar hafa lagt inn hærri tilboð en Actavis er tilbúið
til að greiða. Forstjórinn segir að samruninn hefði getað
orðið góður kostur en fyrirtækið greiði ekki of hátt verð.
BOLUNGARVÍK
Fundur vegna fjöldauppsagna
í Bolungarvík hafa menn áhyggjur af fjöldaupp-
sögnum undanfarna mánuði og verður af þeim
sökum haldinn borgarafundur á sunnudaginn í
ráðhúsinu þar í bæ. Nýlega sagði Ratsjárstofnun upp
sextán á Bolungarvík og Bakkavík 52 starfsmönnum.
VORSKÝRSLA ASÍ
Ójafnvægi og ójöfnuður
Ójöfnuður hefur aukist þrátt fyrir verðmætaaukningu síðustu
ára. Þetta kemur fram í vorskýrslu hagdeildar ASÍ sem
nýlega kom út. Þar segir að ekki sé gert ráð fyrir harðri
lendingu hagkerfisins í lok stóriðjuframkvæmda. Þó sé
áhyggjuefni að ekkert augljóst jafnvægi sé i kortunum.
Bogi Jonsson og
Narumon Sawangj-
thaim kona hans
Segjast ekki fá atvinnu
leyfi fyrir starfsmann
sinn vegna hræðslu
Vinnumálastofnunar
við að játa mistök.
Fær ekki atvinnuleyfi:
Bogi hefur orðið
af sjö milljónum
Bogi Jónsson hefur reynt án ár-
angurs í heilt ár að fá starfsleyfi
fyrir Taílending sem hefur lært
taílenskt nudd. Hann hefur aug-
lýst eftir einstaklingi sem kann
umrætt nudd á íslandi og á EES-
svæðinu, en leitin hefur ekki
skilað árangri. Nú hefur spa-að-
staðan staðið tilbúin en ónotuð í
hálft ár og má reikna með að Bogi
hafi orðið af sjö og hálfri milljón
af þeim sökum.
„Mér sýnist aðalástæðan fyrir
því að Vinnumálastofnun veitir
ekki atvinnuleyfið vera sú að
þeir höfðu áður neitað konu um
leyfið sem hafði hlotið sömu
menntun. Vinnumálastofnun
sagði mér hins vegar að ég ætti
bara að fá íslending með mér til
Taílands og mennta hann þar.“
Hjá Vinnumálastofnun fengust
þær upplýsingar að ástæða þess
að konan fengi ekki atvinnuleyfi
væri líklega sú að hún teldist ekki
hafa sérþekkingu þar sem hún
hafi ekki hlotið menntun hjá við-
urkenndum háskóla.
Síbrotamaður dæmd
ur Maðurinn á langan
sakaferi! að baki.
Hæstiréttur staðfestir dóm héraðsdóms:
Síbrotamaður fær
fimm ára dóm
Hæstiréttur dæmdi í gær 42
ára karlmann, Garðar Garðars-
son, til fimm ára fangelsisvistar
vegna ýmissa brota og staðfesti
þar með dóm Héraðsdóms Reykja-
víkur. Hann var sakfelldur fyrir
nytjastuld, þjófnað, skjalafals,
fjársvik, umferðarlagabrot og
fíkniefnalagabrot.
í dómsorði segir að við
ákvörðun refsingar hafi meðal
annars verið litið til langs
sakaferils Garðars, ítrekunar,
langrar brotahrinu, einbeitts
brotavilja og þess að hann
reyndi eftir fremsta megni að
hylja slóð sína. Þá rauf hann
með brotum sínum skilyrði
reynslulausnar á eftirstöðvum
níu hundruð daga refsingar
samkvæmt eldri dómi og var
hún tekin upp og dæmd með.
Til frádráttar fimm ára dóm-
inum kemur gæsluvarðhald sem
hann hafði sætt, en hann var
einnig sviptur ökuréttindum ævi-
langt og gert að sæta upptöku
fíkniefna og greiða tveimur að-
ilum skaðabætur upp á samtals
430 þúsund krónur.
Auglýsingasíminn er
510 3744
blaði
Húsnæðislán í erlendri mynt
Hafa aukist u
150 prósent
Fela í sér töluverða áhættu Greiðslubyrði gæti hækkað mikið
„Ef krónan veikist skyndilega gætu
þeir sem eru með húsnæðislán
í erlendri mynt farið að skulda í
stað þess að eiga í húsnæðinu sínu,“
segir Már Mixa, sérfræðingur hjá
NordVest verðbréfum, en í grein
sem hann skrifar í Blaðið í dag
kemur fram að erlendar lántökur
heimilanna hafa aukist um 150
prósent á síðustu tólf mánuðum.
Langstærstur hluti þeirra lána eru
húsnæðislán.
Már segir helstu ástæður þess-
arar aukningar vera þær að krónan
hafi verið sterk nær samfellt í fimm
ár og það geri erlendar lántökur að
mörgu leyti hagstæðari.
Hann segir þó töluverða áhættu
fólgna í því að vera með húsnæðis-
lán í erlendum myntum, enda engar
tryggingar fyrir áframhaldandi
styrk krónunnar. „I dag er dollar-
Eftir Þórð Snæ Júliusson
thordur@bladid.net
inn 64 krónur. Ef hann færi aftur í
80 krónur líkt og hann gerði tíma-
bundið fyrir um ári þá myndi það
þýða 25 prósenta aukningu á höf-
uðstól láns í erlendri mynt. Þannig
getum við ímyndað okkur einhvern
sem kaupir húsnæði upp á 30 millj-
ónir króna og tekur 90 prósenta hús-
næðislán. Hann tekur helming láns-
ins, þrettán og hálfa milljón króna, í
erlendri mynt. Við þessa aukningu
á einu ári hefur höfuðstóll lánsins
hækkað um tæpar þrjár og hálfa
milljón króna. Ruðningsáhrifin
fara þá í hina áttina. Fólk virðist
gleyma því ansi rösklega."
Þórhallur Ásbjörnsson, sérfræð-
ingur hjá greiningardeild Kaup-
þings, segir helstu ástæðurnar fyrir
þessari auknu aðsókn í erlend lán
vera þær breytingar sem hafa orðið
á stöðu krónunnar á síðasta einu
og hálfa ári og þær lánaaðstæður
sem eru á íslenskum húsnæðismark-
aði. „Það skapaðist betra tækifæri
en áður til erlendrar lántöku þegar
krónan féll haustið 2006. Svo hafa
vaxtahækkanir Seðlabankans leitt
til þess að verðtryggðir vextir eru
komnir upp í um fimm prósent. Það
eru aðallega þannig lán sem fólk er
að taka í húsnæðislánum.“
Þórhallur segir erlendu mynt-
körfulánin þó ekki henta öllum.
„Þeir sem ráða til dæmis ekki við
um tuttugu prósenta hækkun á
greiðslubyrði sinni í einhvern tíma,
eiga kannski ekki að vera að taka
svona lán. Þeir sem hafa hins vegar
meira svigrúm og ráða betur við
sveiflur í greiðslubyrði, þeir geta
komið mjög vel út úr svona lánum.
Sérstaklega til lengri tíma litið. En
greiningardeild Kaupþings hefur
spáð því að krónan verði tiltölu-
lega sterk áfram á allra næstu mán-
uðum. Við teljum hins vegar að
hún gæti gefið svolítið eftir á næsta
ári og gæti þá veikst um allt að tíu
prósent."
Nýbyggingar Mikil
aukning hefur orðið
á húsnæðislántökum
íerlendri mynt á síð-
ustu tólf mánuðum.
Fronsku forsetakosnmgarnar:
Bayrou kýs ekki Sarkozy
Miðjumaðurinn Francois Ba-
yrou hefur sagt að hann ætli ekki
að kjósa hægrimanninn Nicolas
Sarkozy í síðari umferð frönsku
forsetakosninganna á sunnudag-
inn. Bayrou lét hafa þetta eftir sér
eftir sjónvarpskappræður Sarkozy
og Segolene Royal, forsetaefnis
sósíalista, á miðvikudagskvöld en
greindi þó ekki frá því hvort hann
hygðist kjósa Royal eða skila auðu.
Bæði Sarkozy og Royal segjast
hafa haft sigur í kappræðunum,
en talið er að rúmlega tuttugu
milljónir manna hafi fylgst með
þeim. Skoðanakönnun Opini-
onway leiddi þó í ljós að talsvert
fleirum hafi þótt Sarkozy meira
sannfærandi í málflutningi
sínum en Royal.
Síðustukosningafundirframbjóð-
endanna voru haldnir í gærkvöldi.
Kosningafundur Royal var haldinn
í borginni Lille, í norðurhluta lands-
ins, en Sarkozy hélt til Montpellier í
suðurhlutanum. Skoðanakannanir
benda til að Sarkozy hafi verið að
auka forskot á Royal. í nýrri skoð-
anakönnun Ipsos sem birtist í gær
sögðust 53,5 prósent aðspurðra ætla
að greiða Sarkozy atkvæði sitt, en
46,5 prósent Royal.
- )e-
Sarkozy og Royal Skoðanakannanir
benda til að Sarkozy hafi verið að
auka forskot sitt á Royal.