Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 33
32 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Matvælaöryggi er orð sem heyrist oftar og oftar og skal engan undra, því fólki fjölgar með ógnarhraða, ekki bara hér á landi heldur um allan heim. Því þarf stöðugt að fæða fleiri munna. Við Íslendingar flytjum gríðarlegt magn af mat til landsins. Áhugavert væri að sjá hvort sá matur sem fram- leiddur er hér á landi myndi duga til að fæða alla þjóðina. Á það gæti reynt ef heimsstyrjöld skellur á, eða þá ef eyjan Ísland einangrast af öðrum orsökum – til dæmis ef samgöngur á sjó og lofti til og frá landinu stöðvast. Tvær stéttir framleiða nánast allan mat hér á landi; bændur og sjómenn. Framleiðsla þessara stétta er algjörlega háð tiltekinni vöru: olíu. Til þess að veiða fisk þarf olíu á skip og til þess að flytja fiskinn til og frá höfnum þarf olíu. Hið sama gildir um okkur bændur. Heyskapur og aðföng eru fullkomlega háð olíu og sömuleiðis þurfum við að koma vörunni til og frá býli. Með öðrum orðum: Fæðuframboð hér á landi er háð olíu og innflutn- ingi á matvælum. Því er vart hægt að kalla okkur sjálfbæra þjóð. Olíuverð er í sögulegu hámarki og sumir vísindamenn spá því að olíulindir jarðar gangi til þurrðar áður en langt um líður. Hvar stönd- um við þá? Hvernig ætlum við að framleiða mat hér á landi ef við höfum ekki lengur efni á olíu, eða þá ef hún er einfaldlega ófáanleg? Þessum spurningum þurfum við ekki að svara ef við framleiðum okkar eigin orku. Og þar getur metan leikið lykilhlutverk. Bændur framleiða mikið af hrá- efni sem gæti nýst til framleiðslu á metani, svo sem búfjáráburð og hey, auk þess sem nota má grisjunarvið frá skógrækt sem stóreykst á komandi árum. Einnig fellur til mikið af hrá- efni frá þéttbýlissvæðum, til dæmis plöntuleifar og seyra sem er í flestum tilfellum urðað. Hvers vegna ekki að nýta það til fulls? Í fyrirlestri sem Jón Guðmundsson hjá Landbúnaðarháskóla Íslands hélt á ráðstefnu á Hótel Héraði í mars kom fram að framleiðsla á metani geti vel orðið arðbær fyrir íslenska bændur. Með því að byggja upp úrvinnslu- stöðvar á stöðum sem liggja vel við hráefnisöflun víða um land ætti þess ekki að vera langt að bíða að framleiðsla á metani verði almenn, en til að svo megi verða þarf að fá stjórnvöld til að leggja fjármagn í rannsóknir og uppbyggingu vinnslu- stöðva. Við bændur ættum að geta nýtt okkur metan sem eldsneyti, en einnig getum við nýtt hráefni frá búunum til vinnslunnar sem skilar til baka mjög góðum áburðarefnum. Þannig getum við bændur orðið þátt- takendur í að skapa innlendan orku- gjafa sem myndi skapa okkur mikið öryggi til framtíðar. Þar fyrir utan eru umhverfislegir kostir metans augljósir því með notkun á því minnkum við notkun á jarðefnaeldsneyti og drögum þar með úr losun á gróðurhúsaloft- tegundum. Til þess að auka matvælaöryggi okkar þurfum við að auka orkuöryggi okkar. Það getum við meðal annars gert með framleiðslu á metani. Margt bendir til þess að möguleikar á auk- inni metanframleiðslu á Íslandi séu umtalsverðir og að af henni geti verið verulegur ágóði. Stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnulífið eru hér með hvött til þess að hjálpa okkur við að láta þennan draum rætast. Metan og matvælaöryggi Raddir kúabænda - af naut.is Jóhann Gísli Jóhannsson Breiðavaði Hágæðamjólk úr mjaltaþjónum Bændum sem nota mjaltaþjóna er fullkunnugt um að framleiðsla á hágæðamjólk getur verið erfið. Að jafnaði er mjólk frá mjaltaþjónum með bæði hærri frumu- og líftölu en mjólk úr hefðbundnum mjalta- kerfum. Það er þó engin afsökun, fyrir því að vera með hærri frumu- eða líftölu, að vera með mjalta- þjón. Til eru bú hér á landi, sem og í nágrannalöndum okkar, sem framleiða að jafnaði mjólk með mjaltaþjónum, sem jafnast á við það besta sem gerist. En til þess að ná slíkum árangri þarf að leggja af mörkum vinnu og reglusemi. Mjaltaþjónar með hærri líftölu Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum afurðastöðva í mjólkur- iðnaði var beint meðaltal líftölu allra kúabúa á Íslandi 29,4 þúsund/ml. Þegar líftöluupplýsingar eru hinsvegar rýndar kemur í ljós að beint meðal- tal mjaltaþjónabúanna árið 2010 var 52,4 þúsund á meðan beint meðaltal annarra búa var 25,6 þúsund. Fimm lægstu mjaltaþjónabúin voru hins- vegar með 17,3 þúsund að jafnaði árið 2010 og besta búið með 12,9 þúsund að jafnaði. Bændurnir spurðir Af framangreindu má ráða að mikill breytileiki er á milli búa með mjalta- þjóna og því áhugavert að skoða hvað það er sem ábúendur á þessum bestu búum gera umfram aðra. Því var gerð úthringikönnun nú í vor meðal þessara bænda og safnað upplýsingum um vinnubrögð í fjósum þeirra. Kom í ljós að margt sameiginlegt var með vinnubrögðum á þessum kúabúum. Halda kúnum hreinum Grundvallaratriði er að halda kúnum hreinum og voru allir ábúendur með góða reglu á þeim hlutum sem að þrifum snýr. Þannig var júgrum allra kúa haldið hárlausum annað hvort með köldum bruna eða klippum og allir höfðu það fyrir reglu að gera þetta við burð og aftur reglulega eftir því sem leið á mjaltaskeiðið. Legubásar voru hreinsaðir þrisvar daglega og þeim haldið þurrum eftir þörfum með undirburði. Sérstaklega þarf að huga að staðsetningu bringuborðs í legu- básum enda er mun erfiðara að halda kúm hreinum liggi þær of ofarlega í básunum. Halda göngusvæðum hreinum Á öllum búunum var notuð sjálf- virkni til þess að halda gangsvæðum hreinum, bæði í fjósum með rimla- gólf og heil gólf. Gólfin eru skafin á klukkutíma fresti þar sem heil gólf eru en á tveggja tíma fresti þar sem rimlagólf eru. Þvergangar og önnur svæði sem sköfukerfi komast ekki að, hvort sem það er sköfuróbóti eða glus- sasköfukerfi, voru hreinsuð 2-3 á dag. Halda mjaltakerfinu hreinu Bændurnir fylgdu leiðbeiningum framleiðenda mjaltaþjónsins varð- andi kerfisþvott og því var hann alltaf þrisvar á dag og skol eftir frá- töku mjólkur. Mikilvægt atriði er að tryggja að þvottavatnið haldist heitt og hafa þarf fasta reglu á eftirliti með þvottaefnum bæði fyrir mjólkurtank og mjaltaþjón. Allir bændurnir skiptu einnig um spenagúmmí og mjólkur- slöngur í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda. Ennfremur var notkun á rörkælibúnaði á mjólkurlögninni fram í tank til staðar á þessum búum. Halda mjaltaþjóninum hreinum Á öllum búunum var augljóslega mikið lagt upp úr hreinlæti. Allir bændurnir lögðu áherslu á þrif á utanverðum mjaltaþjóninum og á nærsvæði hans svo óhreinindi væru hvergi nálægt mjaltahylkjunum og innsogsventlum lofts. Miða má við að þvo mjaltaþjóninn og gólfið á bið- svæði eða framan við mjaltaþjóninn amk. tvisvar á dag. Þá er kostur að skipta um burstasett (fyrir Lely) einu sinni til tvisvar í mánuði og leggja þá hitt settið í sótthreinsandi lög. Fáið aðstoð við að bæta gæði Þó svo að ekki sé hægt að fullyrða að líftalan haldist lág sé vinnubrögðum hagað í samræmi við niðurstöður þessarar athugunar, má telja fullvíst að líkurnar aukist verulega. Lýsingar á vinnubrögðunum voru í góðu sam- ræmi við upplýsingar frá öðrum lönd- um, þar sem bændur með mjaltaþjóna hafa einnig verið að ná góðum árangri í baráttunni við líftöluna. Umfram allt er þó hægt að fullyrða að sé líftalan fyrir ofan 20 þúsund að jafnaði þá eru til þekktar leiðir til þess að lækka hana eins og innlend reynsla sýnir. Hafið því samband við næsta mjólkureftir- litsmann (mjólkurgæðaráðunaut) og fáið aðstoð við að auka gæðin. Snorri Sigurðsson Auðlindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands Að jafnaði er mjólk frá mjaltaþjónum með bæði hærri frumu- og líftölu en mjólk úr hefðbundnum mjaltakerfum.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.