Fréttablaðið - 16.02.2012, Blaðsíða 12
16. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR12 12
hagur heimilanna
Neytendastofa hefur sektað þrjár
raftækjaverslanir fyrir að brjóta gegn
lögum sem gilda um sölu þar sem
selt er á lækkuðu verði. Verslanirnar
eru Sjónvarpsmiðstöðin, Heimilistæki
og Rafha, sem allar höfðu kynnt vörur
á tilboðsverði. Sjónvarpsmiðstöðin
og Heimilistæki fengu stjórnvalds-
sekt sem nemur 150.000 krónum og
Rafha 100.000 krónum.
Fram kemur á vef samtakanna að
fyrirtækin gátu ekki sýnt fram á að
ákveðnar vörur hafi verið seldar á því
verði sem tilgreint var sem fyrra verð.
Tilboðsverð megi einungis auglýsa
þegar um raunverulegt tilboð er að
ræða og þarf að koma fram hvert sé
fyrra verð vörunnar. Varan þarf að
hafa verið á því verði sem tilgreint er
sem fyrra verð og þarf það að vera
verðið sem varan var seld á áður en
varan er kynnt á tilboðsverði.
■ Sektir
Brutu lög um útsölu
Grunur leikur á að bændur
noti merki um vottaða vist-
væna framleiðslu án þess
að nokkurt eftirlit sé með
því. Neytendasamtökin vilja
að bændur hætti að nota
merkið.
Að mati sérfræðinga er vottunin
„Vistvæn landbúnaðarafurð“ orðin
marklaus og barn síns tíma. Eftir-
lit með framleiðslu vara undir
merkinu er í flestum tilvikum
í molum og leikur grunur á að
bændur séu að nota merkið án
þess að uppfylla þau skilyrði sem
fylgir því.
Nýjustu breytingarnar á reglu-
gerðinni um vistvæna ræktun
voru gerðar árið 1998, nokkru
áður en lífræn ræktun ruddi sér
til rúms hér á landi.
Ólafur Dýrmundsson, lands-
ráðunautur Bændasamtakanna
í lífrænum búskap, segir eftirlit
með vistvænni landbúnaðarfram-
leiðslu í molum. Um sé að ræða
umhverfistengda gæðastýringu
sem þekkist víða í nágrannalönd-
unum, en á síðustu árum hafi eftir-
lit með henni flust á milli aðila og
verið sinnt illa eða ekkert. Sam-
kvæmt reglugerðinni er eftirlitið
í höndum sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytisins og búnað-
arsamtaka.
„Það er mikið að og það verð-
ur að fara ofan í þau mál,“ segir
Ólafur. „Það verður að vera óháður
aðili sem sér um eftirlitið.“
Ólafur segir það ljóst að hópur
bænda sé að nota merkið, þá sér í
lagi eggja-, kartöflu-, agúrku- og
tómatbændur, þrátt fyrir að eftir-
litið sé ekki nægilega öruggt.
Gæðastýring sem neytendur
geta treyst þurfi að skila sér til
neytenda, líkt og með lífræna
vottun þar sem strangar reglur
gilda og eftirlit er virkt.
„Það gengur ekki upp. En það
segir þó ekki að forsendur fyrir
vottuninni séu ekki fyrir hendi,“
segir hann. „En við erum samt
hrædd við að það sé
verið að misnota
miðana í ein-
hverjum tilvik-
um.“
Brynhildur
Pétursdóttir,
fulltrúi Neyt-
endasamtak-
anna, segir
að bændur og
framleiðendur
ættu að hætta að
nota merkið.
„Það veit enginn lengur hvaða
kröfur það eru sem þarf að upp-
fylla,“ segir hún. „Það er svo mikið
til af merkjum sem tákna ýmislegt
og í þeim felast mikilvæg skilaboð
til neytenda. Við viljum ekki hafa
nein merki sem gera ekkert annað
en að rugla fólk.“
Ólafur Friðriksson, skrifstofu-
stjóri hjá sjávarútvegs- og land-
búnaðar ráðu neytinu, tekur undir
að eftir liti með notkun merkisins
sé að mörgu leyti ábóta vant.
Það sé þó mis munandi eftir
Gæðastimpill á vöru án eftirlits
Lífrænn búskapur byggist á lífrænni ræktun og tekur til allra búgreina.
Farið er eftir alþjóðlegum reglum. Búskaparhættirnir eru gæðavottaðir og
afurðirnar merktar sérstökum vörumerkjum.
Vistvænn búskapur er í raun hefðbundinn, gæðastýrður landbúnaður. Þar
eru notuð hefðbundin eiturefni, lyf og tilbúinn áburður, upp að leyfilegum
mörkum. Þó er hafður hemill á notkun eiturefna, takmörkun á notkun
tilbúins áburðar og meðferð á búfé er betri.
Mikill munur á lífrænu og vistvænu
VISTVÆN RÆKTUN? Fulltrúar frá landbúnaðarráðuneyti, Bændasamtökunum
og Neytendasamtökunum telja að merkið fyrir vistvæna landbúnaðarafurð
sé úrelt. NORDICPHOTOS/GETTY
búnaðar samtökum, og nefnir að
Búnaðarsamband Eyjafjarðar hafi
ætíð sinnt eftirliti sínu vel.
„Það er þó örugglega brotalöm
í eftirlitinu í mörgum tilvikum,“
segir hann. „Það má alveg velta
upp þeirri spurningu hvort þetta
sé ekki bara úrelt. Það þyrfti að
fara fram umræða og skoðana-
skipti um það hvort menn eigi
að viðhalda þessari reglugerð og
þessu merki.“ sunna@frettabladid.is
KRÓNUR voru meðalútgjöld hverrar íslenskrar fjölskyldu í tómstundir og
menningarstörf árið 2010 samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands. Árið 2006 voru
meðalútgjöldin 46.508 krónur, og hafa því hækkað um 13,6 prósent á fimm árum.
52.824
sumaráætlun 2012
Básaskersbryggju | 900 Vestmannaeyjar | Sími 481 2800 | Fax 481 2991 | www.herjolfur.is
Fí
to
n
/
SÍ
A
ég veit þú kemur...
Kl. Kl. Kl. Kl. Kl.
Frá Vestmannaeyjum 08:30
Frá Landeyjahöfn
11:30 14:30 20:3017:30
10:00 13:00 19:00 22:0016:00
Fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag verða fimm ferðir:
Kl. Kl. Kl. Kl.
Frá Vestmannaeyjum 08:30
Frá Landeyjahöfn
11:30 17:30 20:30
10:00 13:00 19:00 22:00
Mánudag, þriðjudag og miðvikudag verða fjórar ferðir:
Sumaráætlun Herjólfs gildir frá 15. maí til 14. september. *
Upplýsingar um bókanir í ferðir Herjólfs er að finna á heimasíðu skipsins, herjolfur.is
Sala ferða með Herjólfi í sumar hefst þriðjudaginn 21. febrúar nk. kl. 9.
* Sala ferða Þjóðhátíðarvikuna 1.–8. ágúst 2012 er undanskilin og verður sett í sölu í mars.