Fréttablaðið - 05.05.2012, Blaðsíða 52
5. maí 2012 LAUGARDAGUR8
Hjúkrunarfræðingur
VINNUVERND
vellíðan í vinnu
ehf
5 ára Vinnuvernd ehf. er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig á sviði vinnuverndar,heilsuverndar og heilsueflingar.
Á vegum Vinnuverndar ehf. starfa læknar, hjúkrunarfræðingar,
vinnuvistfræðingur, lýðheilsufræðingur, sjúkraþjálfari og vinnusálfræðingur.
Sjúkraþjálfari
Vinnuvernd ehf. auglýsir eftir sjúkraþjálfara til að sinna
verkefnum á sviði vinnuverndar, heilsuverndar og
heilsueflingar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf eigi síðar
en 1. september nk. Starfshlutfall eftir samkomulagi. Lögð
er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð auk hæfni í
samskiptum og samvinnu.
Nánari upplýsingar veitir Valdís Brá Þorsteinsdóttir,
sviðsstjóri Vinnuverndarsviðs í síma 578 0800.
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk. og skulu umsóknir
ásamt ferilskrá berast á netfangið valdis@vinnuvernd.is
Vinnuvernd ehf. er að ráða í eftirfarandi störf:
Stuðningsfjölskyldur
Fjölskylduþjónustan í Hafnarfirði óskar eftir að ráða stuðnings-
fjölskyldur fyrir fötluð börn, sem fyrst.
Tilgangur með stuðningsfjölskyldu er að draga úr álagi á
heimili barnanna, veita börnunum tilbreytingu og gefa þeim
kost á auknum félagslegum tengslum. Um er að ræða störf 1-2
helgar í mánuði þar sem börnin dvelja á heimili stuðningsfjöl-
skyldunnar.
Greiðslur til stuðningsfjölskyldu eru stigskiptar eftir fötlun og
umönnunarþörf. Þær eru verktakagreiðslur.
Upplýsingar um störfin veita Arnbjörg Jónsdóttir félagsráðgjafi
arnbjorgj@hafnarfjordur.is og Ásrún Jónsdóttir þroskaþjálfi
asrunj@hafnarfjordur.is
Umsóknum skal skilað í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar,
Strandgötu 6.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Aðalbókari
Nánari upplýsingar:
Elísabet Sverrisdóttir
elisabet@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 14. maí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.Securitas óskar eftir að ráða til sín aðalbókara. Viðkomandi starfar á fjármálasviði og
næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Helstu verkefni:
• Umsjón, eftirlit og ábyrgð á bókhaldi Securitas og dótturfélaga
• Umsjón með bókhaldskerfi Navision
• Skilagreinar, uppgjör, afstemmingar og áætlanagerð
• Yfirumsjón með launabókhaldi, útreikningur launa,
skil á tengdum gjöldum
• Innra eftirlit
• Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
• Víðtæk reynsla af sambærilegu starfi eða a.m.k.
3 ára reynsla af endurskoðunarskrifstofu
• Menntun í viðskiptafræði eða sambærileg menntun
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvæðni og góðir samstarfshæfileikar
• Nákvæmni og agi í vinnubrögðum
• Góð tölvukunnátta
Securitas er stærsta fyrirtæki landsins á öryggismarkaði og hefur um 400 starfsmenn.
Hjá Securitas starfar metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á að veita frábæra
þjónustu. Securitas rekur útibú og starfsstöðvar víða um land en höfuðstöðvarnar eru
í Skeifunni 8 í Reykjavík.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Kerfisstjóri Nánari upplýsingar:Elísabet Sverrisdóttir
elisabet@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 14. maí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www.hagvangur.is.
Kynnisferðir – Reykjavik Excursions óska eftir að ráða til sín kerfisstjóra sem hefur
áhuga á að ganga til liðs við ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki.
Helstu verkefni:
• Annast uppsetningu, viðhald, uppfærslur
og rekstur á netþjónum ásamt netumsjón
• Uppsetning og breytingar á vélbúnaði og
notendaaðstoð
• Eftirlit með rekstri og bilanagreining
• Greining og endurbætur á afköstum
• Áætlanagerð, kostnaðaráætlanir og
innleiðing ferla
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Menntun í kerfisfræði, tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu
• Reynsla af sambærilegu starfi nauðsynleg
• Reynsla af rekstri vefkerfa
• Reynsla af rekstri gagnagrunna
• Reynsla af rekstri netkerfa
• Mjög góð enskukunnátta
• Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulipurð
• Sjálfstæði í starfi og geta til að vinna undir álagi
• Reynsla og þekking af Windows Server 03 og 08, Microsoft CRM 4.0,
Microsoft Dynamics Nav, Microsoft Exchange 2003/2007, VOIP, POS kerfi.
Reykjavik Excursions hf. – Kynnisferðir var stofnað árið 1968. Fyrirtækið
starfrækir dagsferðir frá Reykjavík allt árið um kring auk þess að sjá um
Flugrútuna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, hvataferðir, einstaklings- og
hópferðir. Sameiginlegur starfsmannafjöldi er um 150 - 250 eftir árstíðum.