Fréttablaðið - 24.07.2012, Blaðsíða 10
24. júlí 2012 ÞRIÐJUDAGUR
Smellugas Olís
einfalt og þægilegt
Smellugas
– fyrir grillið, útileguna og heimilið
á næstu Olís-stöð og hjá umboðsmönnum um allt land.
PI
PA
R\
TB
W
A
S
ÍA
5 kg
11 kg
10 kg
Ármúla 7 | 108 Reykjavík | 5 500 600 | www.icelandexpress.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
London / Edinborg / Köln verð frá:
Þrusu
þrenna!
*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
Takmarkað sætaframboð og valdar dagsetningar.
Ferðatímabil: 25. júlí til 30. september 2012
14.900 kr.*
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
12 TÍMA TILBOÐ
!
frá hádegi til m
iðnættis
*
ÚT MEÐ
HÓPINN!
Sendu okkur línu á hopar@icelandexpress.is
og fáðu tilboð fyrir
hópinn þinn.
200.000 h
ótel í 165
löndum / 8
00.000 bíla
r
í 125 löndu
m
HÓTEL OG
BÍLBÓKA
ÐU
MANNLÍF Þegar komið er í Kerl-
ingarskarð á Snæfellsnesi blas-
ir þar Kerling ein við á toppi
Kerlingar fjalls og þó hún hafi
hægt um sig hefur hún eflaust
verið hin mesta ögrun fyrir hug-
djarfa klifurmenn. Þó er aðeins
vitað um einn sem farið hefur upp
á Kerlinguna, ef svo mætti að orði
komast, en það er eldhuginn Ágúst
Bjartmars frá Stykkishólmi.
„Það var árið 1939 en þá vorum
við skátarnir
þarna í grennd-
inni og það
þurft i nát t-
ú r u l e g a a ð
finna sér eitt-
hvað að gera,“
segir Ágúst
sem þykir ekki
mikið til afreks
síns koma. „Ég
var með snæri og reyndi nokkrum
sinnum að kasta lykkjunni yfir
hausinn og svo þegar það tókst
þá var ekkert annað að gera en að
koma sér upp.“ Kerlingin er tutt-
ugu og einn meter á hæð og þver-
hnípt svo það er kannski ekkert að
undra þó að mönnum fallist hendur
undir pilsfaldi hennar.
„Menn voru alltaf uppi í fjöllum
á þessum tíma svo þetta þótti nú
ekkert svakalegt,“ segir Ágúst
hógvær.
En hann atti ekki aðeins kappi
við Kerlinguna því hann er
einnig fimmfaldur Íslandsmeist-
ari í badminton. Höfuðborgarbú-
um þótti það mikil hneisa þegar
Hólmari kom í bæinn og vann
Íslandsmeistaratitilinn árið 1958.
Þá lagði hann Wagner Walbom
að velli en sá danski hafði verið
Jótlands meistari. „Menn tóku
þetta óstinnt upp og það var skor-
að á mig að spila við hann aftur því
menn voru sannfærðir um að þetta
færi á annan veg ef við spiluðum
aftur,“ segir Ágúst. „Ég sagði
bara allt í lagi en þið verðið þá að
koma hingað vestur og við spilum
í Stykkishólmi.“
Leikar þessir fóru hins vegar
á versta veg á Hólminum því
Walbom fékk fyrir hjartað og var
hætt kominn.
„Þetta var vænn maður, hann tók
öllu eins og góður íþrótta maður en
það voru menn í Reykjavík sem öttu
honum fram í þetta, í þá daga þótti
mörgum það sárt að einhver utan af
landi færi sigurför í bæinn.“
Ágúst er nú áttatíu og átta ára
að aldri en ennþá ólgar blóð í
æðum. Hann á helminginn af
Bíldey og siglir þangað reglulega
á trillunni sinni.
„Ég er nú stundum skammaður
fyrir að vera að fara þetta einn
en þá vingsa ég bara farsímanum
og svara því til að ég hringi bara
ef mér þykir ástæða til,“ segir
hann.
jse@frettabladid.is
Karlinn sem klifið
hefur Kerlinguna
Móbergsdranginn Kerlingin er ekki árennilegur. Þó er vitað um einn mann
sem náði lykkju utan um haus hennar og kleif þar upp. Það er Ágúst Bjartmars
en hann er einnig badmintonmeistari og siglir enn trillu sinni þó 88 ára sé.
ÁGÚST BJARTMARS
KERLINGIN Móbergsdranginn er ekki árennilegur enda er ekki vitað um nema
einn sem hefur klifið hann, þá fimmtán ára. MYND/HARALDUR SIGURÐSSON
Ýmsar þjóðsögur eru til sem eiga að útskýra tilurð Kerlingarinnar. Haraldur
Sigurðsson eldfjallafræðingur sagði Fréttablaðinu eina slíka.
„Tröllkerling ein var á silungsveiðum í Baulárvallavatni og bar vel í veiði,“
segir Haraldur. „En henni var örðug leiðin heim enda með þunga silungs-
kippu á bakinu og sólin farin að gægjast við sjóndeildarhringinn. Þegar
kerlingin er komin upp á háfjallið ná fyrstu sólargeislarnir á hana svo hún
dagar þar uppi.“
Dagaði uppi eftir veiðar