Fréttablaðið - 12.09.2012, Blaðsíða 38
12. september 2012 MIÐVIKUDAGUR22 22
menning@frettabladid.is
Tónlist ★★★ ★★
Upphaf Norræns kirkjulistarmóts
Ýmsir flytjendur
Hallgrímskirkja, 6. september
Maður hefði haldið að undir kirkjutónlist flokkaðist
eingöngu músík sem hefði trúarlega skírskotun. Svo
þarf ekki að vera. Áður en Salurinn í Kópavogi, og
síðar Harpan, kom til sögunnar, fór stór hluti tónlistar-
lífs þjóðarinnar fram í kirkjum. Þar hafa verið flutt
alls konar verk, bæði trúarleg og veraldleg.
Þetta endurspeglaðist í dagskrá opnunartónleika
Norræns kirkjutónlistarmóts. Hún var sett á fimmtu-
dagskvöldið í Hallgrímskirkju. Trúarleg verk voru á
dagskránni, eftir Jón Nordal, Þorkel Sigurbjörnsson
og Mist dóttur hans. En einnig var fluttur orgelkons-
ert eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Hann virtist í fljótu
bragði ekki hafa mikla trúarlega skírskotun. Nema
auðvitað að vera fyrir orgel.
Ég er reyndar ekki alveg viss um að hann hefði átt
að vera á dagskránni yfir höfuð. Konsertinn hljómaði
jú eins og hann væri haganlega gerður, hann var
gæddur innra samræmi, þótt lokakaflinn væri óneitan-
lega dálítið snubbóttur. Verra var hversu endurtekn-
ingarsamur hann var. Einhvers konar tónlistarleg
ekkólalía sveif yfir vötnunum í fyrstu tveimur köfl-
unum af þremur. Þrástefjun getur auðvitað verið mjög
áhrifarík, en hér var hún eins og maður sem segir allt
tvisvar. Fyrir bragðið vantaði flæðið í tónlistina. Hún
var of fyrirsjáanleg.
Konsertinn var samt vel fluttur. Einleikari var
Guðný Einarsdóttir. Hún spilaði skýrt og af krafti.
Túlkun hennar var stílhrein og hnitmiðuð. Og hljóm-
sveitin spilaði fallega undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Sömu sögu er ekki að segja um verk Mistar Þorkels-
dóttur. Það bar nafnið Hugleiðingar um síðustu stundir
Kolbeins Tumasonar. Kolbeinn (1173 - 1208) orti sálm-
inn Heyr himna smiður skömmu áður en hann lét lífið
í Víðinesbardaga. Hugleiðing Mistar er um sálminn,
sem faðir hennar tónsetti (og var sunginn á tónleik-
unum). Verkið er fyrir strengjasveit og rörklukkur, og
var alls ekki nógu vel spilað. Strengjaleikararnir úr
Sinfóníuhljómsveit Íslands voru ósamtaka, leikurinn
var loðinn og ómarkviss. Tónlistin sjálf er líka fremur
sviplaus. Flutningurinn þarf að vera sérstaklega vand-
aður til að fábrotnar línurnar hverfi ekki með öllu.
Langtilkomumestir voru Óttusöngvar á vori eftir
Jón Nordal. Þeir voru samdir árið 1993, en voru hér
frumfluttir í hljómsveitarbúningi. Einsöngvarar voru
þau Þóra Einarsdóttir sópran og kontratenórinn Tobias
Nilsson. Einnig sungu Mótettukór Hallgrímskirkju og
Hljómeyki. Textinn er bæði hin klassísku Kyrie, Sanc-
tus og Agnus Dei, en líka Sólhjartarljóð eftir Matthías
Johannessen.
Verkið var hástemmt, þungbúið, hrífandi ljóðrænt og
skreytt ákaflega fallegum laglínum. Flutningurinn var
glæsilegur, Nilsson söng prýðilega og Þóra var einfald-
lega frábær. Það var hreinn unaður að hlusta á hana
syngja. Röddin var tær og hljómmikil, lag línurnar
fagur lega mótaðar. Kórinn söng líka vel og hljóm-
sveitin var mun betri en í verkinu eftir Mist. Jónas Sen
Niðurstaða: Nokkuð misjafnir tónleikar; upp úr stendur
einstaklega fallegt verk eftir Jón Nordal.
Listdans, myndlist, tónlist
og ljós leggjast á eitt í verk-
inu Dúnn eftir dans dúettinn
Litlar og nettar sem frum-
sýnt verður í Tjarnarbíó
á föstudag. Í verkinu er
ekki lítið undir, sjálf tilvist
mannsins og sólin.
Dúettinn Litlar og nettar skipa
þær Berglind Pétursdóttir og
Ásrún Magnúsdóttir sem útskrif-
uðust af listdansbraut Listaháskóla
Íslands í fyrra. Berglind og Ásrún
höfðu unnið mikið saman í LHÍ
og voru staðfastar í að halda sam-
starfinu áfram að lokinni útskrift.
Í mars síðastliðnum settust þær
niður og hófu hugmyndavinnu að
nýju verki og ákváðu að ráðast
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur heldur fjalla um tilvist
mannsins og sólina. „Þetta tvennt
tengist traustum böndum,“ segir
Berglind, „þegar við byrjuðum að
fjalla um tilvistina gátum við ekki
látið sólina afskipta.“
Eftir um mánaðarvinnu fengu
þær Berglind og Ásrún þrjá aðra
listamenn af ólíkum sviðum
til liðs við sig: Ásu Dýradóttur
myndlistarkonu, Áka Ásgeirs-
son tónlistarmann og Jóhann
Bjarna Pálmason ljósameistara,
sem lögðu öll sitthvað til verks-
ins. „Þetta er allt fólk sem við
þekktum úr einni eða annarri
átt,“ segir Berglind. „Áki kenndi
okkur til dæmis í LHÍ og við
þekktum Ásu og Snorra líka. Þau
tóku vel í þessa hugmynd þegar
við bárum hana undir þau og það
varð til þessi klíka.“
Útkoman er sýning sem Berg-
lind og Ásrún lýsa sem allt í senn
dansverki, gjörningi, ljósverki og
leikriti.
„Dúnn er sjónarspil,“ segir
Berglind. „Við unnum þetta mjög
abstrakt; þetta byggir mikið á
hreyfitjáningu, eðli málsins sam-
kvæmt, en líka á myndum, vídeó-
verkum, tónlist og fleiri miðlum.
Við höfum verið að prófa okkur
mikið áfram á meðan undirbún-
ingur stóð.“
Dúnn verður sem fyrr segir
frumsýnt á föstudag. Verk-
ið verður sýnt alls sex sinnum.
Verkið var unnið með styrk frá
mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu sem veitti 2,8 milljónir
króna til verksins. Nánari upp-
lýsingar um verkið má finna á
heimasíðu þess, http://dunn2012.
tumblr.com/. bergsteinn@frettabladid.is
Dansað um tilvist mannsins
DÚNN Berglind og Ásrún unnu grunngerð verksins saman en fengu síðar Ásu
Dýradóttur, Áka Ásgeirsson og Jóhann Bjarna Pálmason til liðs við sig.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tónlistarleg ekkólalía
93% barna sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi þekkja gerandann*
Almenningsvitund er sterkasta vopnið gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum
Upplýstir foreldrar vernda börn
ÞÚ TREYSTIR HONUM
EN GÆTI VERIÐ AÐ BARNIÐ ÞITT ÞEKKI HANN BETUR EN ÞÚ?
www.blattafram.is
*U
pp
lý
si
ng
ar
á
w
w
w
.b
la
tt
af
ra
m
.is
í
bæ
kl
in
gn
um
: 7
s
kr
ef
ti
l v
er
nd
ar
b
ör
nu
m
.
Allar upplýsingar á skrifstofu
Félags íslenskra bókaútgefenda.
Net fang: baekur@simnet . is
Til bókaútgefenda:
Bókatíðindi 2012
Skráning nýrra bóka í Bókatíðindi
2012 er hafin.
Útgefendur eru hvattir til að skrá bækur
sínar sem allra fyrst en lokaskil vegna
kynninga og auglýsinga er 19. október.
Bókatíðindum verður sem fyrr
dreift á öll heimili á Íslandi.
Frestur til að leggja fram bækur vegna
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
2012 er til 8. október nk.
www.bokautgafa. is
Íslensku
bókmenntaverðlaunin
HVERNIG ER
VEÐRIÐ Í DAG?
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
SÍÐUSTU HÁDEGISTÓNLEIKARNIR Kammerkórinn Schola cantorum syngur íslenska og erlenda kirkjutón-
list í Hallgrímskirkju klukkan 12 í dag. Kórinn hefur haldið tónleika vikulega í allt sumar og eru þetta síðustu tónleikarnir
á þessu hausti. Á efnisskrá tónleikanna í dag eru meðal annars verk af nýútkomnum geisladiski Schola Cantorum,
Foldarskarti. Miðaverð er 1.500 krónur en listvinir Hallgrímskirkju fá tuttugu prósenta afslátt.