Fréttablaðið - 15.09.2012, Page 50

Fréttablaðið - 15.09.2012, Page 50
15. september 2012 LAUGARDAGUR8 Framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík Laust er til umsóknar starf framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík. Ráðningartími er frá 1. desember 2012, eða fyrr eftir samkomulagi. Starfið er fólgið í fjölþættum undirbúningi hverrar hátíðar og öðrum þeim verkefnum sem unnin eru á vegum Listahátíðar. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur og stjórn fjármála Listahátíðar í umboði stjórnar og listræns stjórnanda Listahátíðar, vinnur að fjáröflun og samningagerð, gerð fjárhagsáætlunar og uppgjörs. Umsækjandi hafi háskólamenntun sem nýtist í starfi sem og reynslu af rekstri, fjármála- og verkefnastjórnun. Umsóknum fylgi upplýsingar um menntun og starfsreynslu. Frekari upplýsingar veitir formaður stjórnar, Kjartan Örn Ólafsson (olafsson@gmail.com). Umsóknarfrestur er til 1. október 2012. Umsóknir berist til formanns stjórnar Listahátíðar í Reykjavík í pósthólf 88, 121 Reykjavík. Við leitum að Microsoft meistara Hýsingar- og rekstrardeild á fyrirtækjasviði Símans leitar að reynslumiklu starfsfólki með sterka ábyrgðarkennd og framtíðarstarf í huga. Starfið felst í rekstri miðlægra upplýsingakerfa Símans, bæði innra kerfis og hýsingarumhverfis. Að auki felur starfið í sér samskipti og samvinnu bæði við aðrar deildir Símans og við viðskiptavini fyrirtækisins. Þekking og reynsla: · Mjög góð þekking á MS stýrikerfum er nauðsynleg · Þriggja til fimm ára reynsla af rekstri, hönnun og uppsetningu tölvukerfa · Microsoft vottun er æskileg, t.d. MCSE eða MCITP: Enterprise Administrator · Góð þekking á Lync, Sharepoint, Exchange eða SCCM er æskileg, ásamt góðri þekkingu á daglegum rekstri tölvukerfa Umsóknarfrestur er til og með 29. september 2012 Fyrirspurnir berist til Rögnu Margrétar Norðdahl (ragnam@skipti.is). Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum www.siminn.is. Við höfum gildi Símans að leiðarljósi í störfum okkar og erum skapandi, áreiðanleg og lipur. Einar Ágúst, Microsoft sérfræðingur Skannaðu hérna til að sækja B arcode Scanner Hvað segir Símafólkið? Skoðaðu viðtöl með því að skanna kóðann. E N N E M M / S ÍA / N M 5 4 2 2 6 Hæfniskröfur: · Afbragðs þjónustulund · Samskiptalipurð og hæfni til að vinna einn eða í hópi · Kraftur og frumkvæði · Sjálfstæð og öguð vinnubrögð · Sveigjanleiki og góð aðlögunarhæfni Óskum eftir að ráða starfsmann á verkstæði okkar. Leitum að vandvirkum og samviskusömun einstakling sem getur hafið störf sem fyrst. Upplýsingar í síma 567 7722 eða á e-maili: breytir@breytir.is. Jeppaþjónustan Breytir ehf Stórhöfða 35 Reykjavík sími 567 7722 Helstu verkefni eru: · Daglegt utanumhald og áætlanagerð varðandi viðhald og þróun upplýsingakerfa ÁTVR. · Umsjón með tæknilegri hlið innri og ytri vefs ÁTVR. · Samþætting upplýsingakerfa ÁTVR. · Önnur tilfallandi verkefni. · Helstu kerfi sem um ræðir eru: Microsoft Dynamics Nav, AGR Innkaup, Cognos, GoProNet, sérlausnir byggðar á Microsoft SQL Server og Orri, mannauðskerfi ríkisins. Hæfniskröfur · Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. verkfræði- eða tölvunarfræði. · Reynsla af verkefnastjórnun og rekstri upplýsingakerfa. · Þekking á Microsoft Dynamics Nav og Microsoft SQL Server. · Þekking á uppbyggingu vefkerfa. · Góð þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum. · Öguð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri. · Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Stefna ÁTVR er að vera framúrskarandi þjónustufyrirtæki og þekkt fyrir samfélagslega ábyrgð. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur þar sem þjónusta og samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð. vinbudin.is Sérfræðingur á sviði upplýsingatækni Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir að ráða sérfræðing í upplýsingamálum til starfa á rekstrarsviði. Rekstrarsvið ÁTVR hefur umsjón með tölvu- og upplýsingamálum, fasteignamálum og öryggismálum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Gildi ÁTVR eru LIPURÐ - ÞEKKING - ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu munu taka mið af þessum gildum. Nánari upplýsingar veita: Elísabet Sverrisdóttir, elisabet@hagvangur.is Kristín Guðmundsdóttir, kristin@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 30. september nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.vinbudin.is ÁTVR rekur 47 vínbúðir á landinu ásamt því að sjá um heildsöludreifingu tóbaks. Í þessu felst stjórnun innkaupa, dreifingar og sölu og eru upplýsingakerfi og samþætting þeirra æ mikilvægari þáttur í starfseminni. Um er að ræða nýtt starf sem starfsmaðurinn tekur þátt í að móta.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.