Fréttablaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 29.11.2012, Blaðsíða 40
KYNNING − AUGLÝSINGNámskeið í jólapakkann FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 20122 Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar www.hnlfi.is og í síma 483 0300 Gjafabréf með upphæð að eigin vali Gjafabréfin er hægt að nýta sem innborgun fyrir dvöl í læknisfræðilega endurhæfingu, heilsudvöl, námskeið eða stakar meðferðir. Gjafabréf fyrir heilsudvöl Hentar vel fyrir þá sem vilja gefa t.d. heilsudvöl, helgardvöl, námskeið, 5 daga heilsudvöl og heilsuviku. Gjafabréf á Heilsustofnun er góður kostur fyrir þá sem vilja styðja við sína nánustu sem koma til dvalar á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði til lengri eða skemmri tíma. – heilsusamleg og góð gjöf Berum ábyrgð á eigin heilsu Gjafabréf á Heilsustofnun Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Ná mskeiði n er u hvor t tveggja; skemmtilegt frí-stundagaman f yrir þá sem hafa áhuga á að syngja og einnig mjög góður undirbúning- ur fyrir frekara söngnám,“ segir Ásrún Davíðsdóttir, aðstoðar- skólastjóri Söngskólans í Reykja- vík. „Oft hefur svona gjafabréf orðið kveikjan að farsælu söng- námi eða hvatning til þess að fólk, sem hefur haft áhuga á að fara í kór en ekki haft sig í það, gengur til liðs við kór að nám- skeiði loknu,“ bætir hún við. Ná mskeið Söngskóla ns í Reykjavík fara fram utan venju- legs vinnutíma og eru ætluð fólki á öllum aldri. Námskeiðin samanstanda af söng, tónfræði og nótnalestri og farið er í rétta raddbeitingu og túlkun. Lagaval á námskeiðinu er sett saman eftir óskum hvers og eins. Í litlum hópum er svo kennd tónfræði og undirstöðuatriði nótnalesturs. „Það er mikill fengur fyrir fólk sem syngur í kór. Fólki finnst heill heimur ljúkast upp fyrir því þegar það áttar sig á því hvað nót- urnar þýða,“ segir Ásrún. „Tvisv- ar á hverju námskeiði hittast svo allir með píanóleikara og kenn- ara og þjálfast í því að syngja fyrir framan áhorfendur.“ Hvert námskeið stendur í sjö vikur og hefst næsta námskeið mánudaginn 14. janúar. Hægt er að skrá sig á vefsíðuskólans www. songskolinn.is Gjafakort á námskeiðin eru til sölu á skrifstofu skólans, Snorra- braut 54, sími 552 7366. Söngnám í jólagjöf Söngskólinn í Reykjavík hefur undanfarin ár gefið kost á gjafabréfum á söngnámskeið. Gjafabréfin eru vinsæl jólagjöf og verða gjarnan kveikja að farsælu söngnámi eða gefandi kórstarfi. Hvert námskeið stendur í sjö vikur. Ásrún Davíðsdóttir, aðstoðarskólastjóri Söngskólans í Reykjavík, segir gjafabréf á söng- námskeið oft verða kveikjuna að farsælu söngnámi. MYND/PJETUR Með tilkomu bókarinnar Fimmtíu gráir skuggar virðist hafa opn- ast flóðgátt fyrir erótískar bókmenntir. Bókaútgefendur á Íslandi hafa ýjað að því að jólin 2013 muni verða erótísk jól í íslenskri bókaútgáfu. Það er því ekki úr vegi fyrir rithöfunda að byrja að æfa sig. Vefsíðan www.wade-erotic.co.uk býður upp á kennslu í ritun eró- tískra bókmennta. Þar kemur fram að ekki sé nóg að lýsa hversdags- lífi og ímynduðum hugarheimi sínum, heldur þurfi að skapa og skýra persónur þannig að þær þróist í gegnum söguna, sem þurfi líka að þróa. Enn fremur segir að fólk sem sé með ensku sem annað tungumál skrifi jafnvel betur, þar sem stíllinn verði beittari, frásögnin skýrari og flækjur og flúr í texta minni. Námskeiðið fer fram á netinu og byggist upp á fyrirlestrum og verk- efnum sem lögð eru fyrir nemendur í framhaldi. Þá er einnig hægt að fá einkakennslu samhliða námskeiðinu og í nokkra mánuði eftir að því lýkur. Námskeiðið tekur um hálft ár og er stefnt að því að hver nemandi klári í það minnsta eina sögu og fái hana útgefna einhvers staðar. Til þess að ná þessum markmiðum er líka kennsla í því hvern- ig skuli nálgast útgefendur, upplýsingar um höfundarétt og lagatækni- leg mál. Erótíkin selur vel KÖRFUBOLTI Í BANDARÍKJUNUM Mekka körfuboltans er í Bandaríkjunum. Þangað hafa margir íslenskir körfuboltamenn og félög farið undanfarna áratugi og sótt körfubolta- námskeið og æfingabúðir. Mörg lið í bandarísku atvinnumannadeildinni, NBA, bjóða upp á æfingabúðir fyrir börn og unglinga yfir sumartímann auk þess sem ótal æfingabúðir eru skipulagðar í háskólum landsins á sama tíma. Æfingabúðir NBA-félaganna eru yfirleitt haldnar í heimaborg liðsins, til dæmis New York, Boston og Los Angeles, og ýmist haldnar á æfingasvæði félagsins eða á keppnisleikvangi liðsins. Bæði þjálfarar úr þjálfarateymi félaganna og leikmenn félagsins sjá um þjálfun og leiðsögn á slíkum æfingabúðum sem börnum og unglingum þykir ekki leiðinlegt. Bandaríska háskóladeildin í körfubolta er ein sú sterkasta í heimi. Flestir háskólar landsins bjóða upp á æfinga- búðir yfir sumartím- ann sem eru í umsjón þjálfara skólanna. Leikmenn háskólalið- anna aðstoða iðulega við æfingabúðirnar og algengt er að gamlar körfuboltakempur úr viðkomandi háskóla kíki í heimsókn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.