Fréttablaðið - 03.12.2012, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 03.12.2012, Blaðsíða 48
3. desember 2012 MÁNUDAGUR| SPORT | 24 SKEMMTUN SEM SKIPTIR MÁLI Í OPINNI DAGSKRÁ Á STÖÐ 2 HÉR FÆRÐU RAUÐU NEFIN: Hagkaup, Bónus, Te og Kaffi, MP banki, Domino’s. www.unicef.is Á R N A S Y N IR util if. is SKÍÐAPAKKAR 20% AFSLÁTTUR ÞEGAR KEYPT ERU SKÍÐI, BINDINGAR OG SKÍÐASKÓR. HANDBOLTI Eftir þriggja marka tap gegn Tékkum á föstudags- kvöldið unnu íslensku stelpurnar 30-23 sigur í viðureign þjóðanna á laugardag. Stórskyttan Ramune Pekarskyte og hornamaðurinn Dagný Skúladóttir hvíldu í síðari leiknum. Dagný sneri sig á ökkla í föstudagsleiknum en Ramune er með flensu. „Samkvæmt sjúkraþjálfurunum verður Dagný klár á þriðjudaginn. Hún á að byrja að æfa á morgun (í dag) þegar við æfum í keppnishöll- inni. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að hún verði klár á þriðjudaginn,“ sagði Ágúst Jóhannsson landsliðs- þjálfari í samtali við Fréttablaðið í gær. Ágúst vonaðist til þess að Ramune gæti tekið einhvern þátt í lokuðum æfingaleik gegn Serbum sem leikinn var í gærkvöldi. „Ramune er búin að vera í ein- angrun en fór á pensilínkúr í gær og getur vel verið að hún geti aðeins verið með í dag. Við sjáum til,“ sagði Ágúst. Kærkomin endurkoma Karenar Þrátt fyrir fjarveru lykilmann- anna vannst sjö marka sigur á Tékkum eftir þriggja marka tap í fyrri leiknum. Ágúst hefur ekki áhyggjur af tíu marka sveiflunni á milli leikjanna. „Dómgæslan var vægast sagt skrautleg í fyrri leiknum. Dómar- arnir voru tékkneskir en auk þess vorum við ekki að spila okkar besta leik. Svolítið slen yfir mann- skapnum og þreyta eftir langt ferðalag daginn á undan,“ sagði Ágúst sem var afar ánægður með leik liðsins í gær. Ellefu af tólf úti- leikmönnum liðsins skiptu mörk- unum þrjátíu „Það er mjög jákvætt. Við höfum enga sérstaka stjörnu í liðinu held- ur byggjum á liðsheildinni og sam- vinnu. Það endurspeglast í dreifðri markaskorun. Ef við ætlum okkur að komast upp úr riðlinum þurf- um við gríðarlega sterka liðsheild bæði í vörn og sókn,“ sagði Ágúst, sem gat fagnað endurkomu Kar- enar Knútsdóttur sem glímt hefur við erfið meiðsli. Leikstjórnandinn hvíldi í fyrri leiknum gegn Tékk- um en spilaði þrjátíu mínútur í þeim síðari. „Hún stýrði sóknarleiknum mjög vel og leit vel út,“ sagði Ágúst um Karenu sem skoraði fjögur mörk. Ágúst reiknar með að Karen verði klár í slaginn annað kvöld. Verður erfiðara en í Brasilíu Íslensku stelpurnar stóðu sig frá- bærlega á heimsmeistaramótinu í Brasilíu fyrir ári. Liðið kom öllum á óvart með góðum leik í riðla- keppninni en féll út gegn Rússum í 16-liða úrslitum. Ágúst segir ljóst að andstæðingar Íslands muni taka liðinu af meiri alvöru en í Brasilíu. „Aftur á móti eru komin örlítið meiri gæði og stöðugleiki í okkar lið og sjálfstraust í hópinn. Ég geri mér grein fyrir að þetta verð- ur erfitt, hugsanlega erfiðara en í Brasilíu. En liðið er einbeitt, vel undirbúið og leikmenn sem hafa átt í smávægilegum meiðslum að skríða saman,“ segir Ágúst. Hann mun leggja mesta áherslu á að undirbúa vörnina fyrir leikinn gegn Svartfellingum. „Lykill okkar að árangri er góð vörn og markvarsla. Það hefur fleytt okkur langt og við þurfum að hafa góða stjórn á því. Sóknar- leikurinn var fínn gegn Tékkum í gær (fyrradag). Við skoruðum 30 mörk sem er mjög jákvætt og við þurfum að halda andstæðingunum í kringum 20 mörk til þess að ná í góð úrslit.“ kolbeinntumi@365.is Bjartsýni þrátt fyrir skakkaföll Íslenska kvennalandsliðið í handbolta er mætt til Serbíu eft ir tvo æfi ngaleiki gegn Tékkum. Lykilmenn glíma við veikindi og meiðsli en vonir standa til að þeir verði klárir fyrir fyrsta leik gegn Svartfj allalandi. LYKILMAÐUR Dagný Skúladóttir gegnir lykilhlutverki hjá landsliðinu og mikilvægt að hún verði klár fyrir leikinn gegn Svartfellingum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR FÓTBOLTI Íslenskir landsliðs- menn í knattspyrnu voru iðnir við kolann í Evrópuboltan- um um helgina. Íslensk mörk litu dagsins ljós á Englandi, Ítalíu, Hollandi og Danmörku. Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson skoraði eitt mark og lagði upp annað í 4-1 útisigri Wolves á Bristol City í b-deild ensku knatt- spyrnunnar. Björn hlaut mikið lof fyrir frammistöðuna. Alfreð Finnbogason skoraði mark Heerenveen í 3-1 tapi gegn botnliði Willem II í efstu deild hol- lenska boltans. Alfreð hefur skor- að ellefu mörk í deildinni og er næstmarkahæstur. Birkir Bjarnason skoraði skalla- mark Pescara sem steinlá 5-1 á útivelli gegn Napólí í efstu deild á Ítalíu. Birkir minnkaði mun- inn í 2-1 áður en heimamenn tóku völdin. Nýr stjóri Pescara virðist hafa tröllatrú á Birki sem þakkaði traustið með flottum leik. Þá skoraði miðvörðurinn Ragnar Sigurðsson fyrir FC Kaupmanna- höfn í 2-0 sigri á Randers í dönsku úrvalsdeildinni. Kaupmannahafn- arliðið hefur gott forskot á toppi deildarinnar. - ktd Íslendingar skoruðu um alla Evrópu Alfreð Finnbogason, Birkir Bjarnason, Björn Bergmann Sigurðarson og Ragnar Sigurðsson voru allir á skotskónum með félagsliðum sínum um helgina. Í NETINU Birkir stangar boltann fallega í fjærhornið. NORDICPHOTOS/GETTY SÍMABIKARINN Í HANDBOLTA KARLA 16 liða úrslit HK 22 FH 24 HK - Mörk: Bjarki Már Elísson 8, Bjarki Már Gunn- arsson 5, Leó Snær Pétursson 4, Tryggvi Þór Tryggva- son 2, Leifur Jóhannesson 1, Atli Karl Bachmann 1, Garðar Svansson 1. Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 15 (39, 38%). FH - Mörk : Sigurður Ágústsson 6, Andri Berg Haraldsson 4, Þorkell Magnússon 3, Ísak Rafnsson 3, Ragnar Jóhannsson 3, Ari Magnús Þorgeirsson 1, Einar Rafn Eiðsson 1, Magnús Óli Magnússon 1, Logi Geirsson 1, Ásbjörn Friðriksson 1. Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 20 (42/3, 48%). AFTURELDING 20 AKUREYRI 25 Afturelding - Mörk: Jóhann Jóhannsson 6, Örn Ingi Bjarkason 4, Sverrir Hermannsson 3, Hilmar Stefánsson 2, Þrándur Gíslason Roth 2, Benedikt Reynir Kristinsson 1, Hrafn Ingvarsson 1, Kristinn Hrannar Bjarkason 1. Akureyri - Mörk: Guðmundur Hólmar Helgason 8, Geir Guðmundsson 6, Bjarni Fritzson 5, Bergvin Þór Gíslason 4, Andri Snær Stefánsson 1, Friðrik Svavarsson 1. ÞRÓTTUR 22 FJÖLNIR 18 VÖLSUNGUR 19 STJARNAN 37 FYLKIR 2 24 ÍR 35 FYRIRTÆKJABIKAR KARLA Í KÖRFU- BOLTA 32 liða úrslit KR 71 KEFLAVÍK 77 KR: Brynjar Þór Björnsson 19, Martin Hermannsson 14/5 fráköst/9 stoðsendingar, Helgi Már Magnússon 13/6 fráköst/5 stolnir. Keflavík: Magnús Þór Gunnarsson 27/4 fráköst, Michael Craion 16/9 fráköst/4 varin skot, Darrel Keith Lewis 11/8 fráköst, Valur Orri Valsson 11/5 stoðsendingar, Snorri Hrafnkelsson 4/5 fráköst STJARNAN 84 SKALLAGRÍMUR 78 Stjarnan: Marvin Valdimarsson 18/8 fráköst, Brian Mills 17/6 fráköst, Jovan Zdravevski 16/5 stoðsend- ingar, Justin Shouse 15/6 fráköst/7 stoðsendingar, Skallagrímur: Carlos Medlock 28/9 fráköst, Haminn Quaintance 28/10 fráköst. TINDASTÓLL 67 SNÆFELL 82 FSU 80 HAUKAR 105 SPORT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.