Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 11

Fjarðarpósturinn - 29.09.1983, Blaðsíða 11
FJARÐARPÓSTURINN 11 Verslunin Emhlfí Strandgötu 29 5RBRINR kjólar. PETRI pils og blússur. /H/Cffl prjónakjólar. Hreinn bær I vor keypti Hafnarfjarðarbær bíl sem annast gatnahreinsun í bænum. Bærinn hefur tekið mikl- um stakkaskiptum með þessum kaupum og er það mál flestra að óvíða í öðrum bæjum séu götur snyrtilegri en hér. Jón V. Tryggva- son hefur aðallega verið með þennan mikilvirka „sóp“. Fjarðar- pósturinn hitti Jón að störfum og spurði hann nánar út í hreinsunar- málin. „Malbikaðar eða steyptar götur bæjarins eru allar hreinsaðar reglulega. Því miður fínnst mér sem sumir vilji ekki fyrir nokkurn mun hafa hreint í kringum sig. Iðulega sé ég til bílstjóra sem láta sig hafa það að hvolfa úr fullum öskubökk- um á götuna að ekki sé nú talað um glerbrotin eftir helgarnar. Það verður að gera eitthvað í þessum fiöskumálum, t.d. hækka verð á tómum glerjum, þannig að unglingarnir selji flöskurnar aftur en brjóti þær ekki í mél“. ^***************************^ í Höfum til útleigu ; *“• * * * * * * * * * * * M * * * * * ♦ * * * * * * * glæsilegan veitingasal að Trönuhrauni 8. * * « ♦ « « « « « « fyrir fundahöld, árshátíðar og einkasamkvæmi, * Augnlæknastofan í Hafnarfirði JENS ÞÓRISSON augnlæknir er kominn til starfa viö augnlæknastofuna í Hafnarfirði, Strangötu 34. Tímapantanir í síma 54556 kl 13 -15 mánud. - fimmtud. umferðarvi'ka 3.-8. okt. Dagana 3. — 8. október n.k. mun Umferðarnefnd Hafnarfjarð- ar standa fyrir umferðaröryggis- viku í bænum. Nefndin hefur undanfarið unnið að undirbúningi og skipulagningu vikunnar í sam- ráði við skóla, fyrirtæki, félög og félagasamtök í bænum. Gefinn verður út bæklingur þar sem fjallað er um umferðarmál. Teikni- og ritgerðarsamkeppni verður í skólum bæjarins. Þá verð- ur almenn samkeppni um þekkingu fólks á umferðarreglum og um- ferðarmerkjum. Fundur verður með öldruðum og þar rædd mál- efni aldraðra í umferðinni. Endur- skinsmerki verða gerð í tilefni vik- unna og þau boðin bæjarbúum. JC mun annast dreifingu og sölu merkjanna. Sparisjóður Hafnar- fjarðar hefur ákveðið að gefa öll- um skóla- og dagskólabörnum endurskinsmerki með merki nor- ræna umferðaröryggisársins. Fjöldi aðila tekur þátt í þessari umfangsmiklu kynningu og um- ræðu, sem umferðarnefnd stendur fyrir. Margt fleira er á döfinni hjá nefndinni og mun það kynnt síðar. Fjarðarpósturinn hvetur bæjar- búa til viðtækrar þátttöku í dag- skrá umferðaröryggisvikunnar og til varkárni og aðgæsiu í umferð- inni.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.