Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.12.2002, Blaðsíða 15

Fjarðarpósturinn - 12.12.2002, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 12. desember 2002 www.fjardarposturinn.is 15 Vörabflastöðin í nýtt húsnæði Þriðji staðurinn frá upphafi Bjami Sigurðsson formaður á tali við einn gestarma. Vörubílastöðin tók í notkun nýtt og glæsilegt húsnæði við Hringhellu sl. laugardag. Að- staðan batnar til mikilla muna og verkstæðisaðstaðan er hin glæsilegasta. Bjami Sigurðsson er formaður Vörubflastöðvarinnar g og hefur hann borið hitann og 1 þungann af samskiptum við J verktaka. Boðið var til móttöku á opn- f unardaginn og sett var upp glæsileg sýning á vörubflum og vinnutækjum í samstarfi við innflytjendur. Fjölmargir nýttu sér að kíkja á ný tæki og menn rifjuðu upp gamla tíma þegar bflamir vom ekki eins veglegir og nú. Syngjandl jólastemmning Yfir 900 flytjendur í Hafnarborg um síðustu helgi Eitt af því fjölmarga sem í boði var um síðustu helgi var árlegt kóramót í Hafnarborg. Tuttugu og fjórir kórar komu fram. 1 minnsta kómum vom 5 manns og í þeim fjölmennasta um 100 manns. Þama mátti sjá leikskólaböm, skólakóra, kóra eldri borgara, kammerkór, söngsveit og í raun allar gerðir kóra. Kór eldri borgara glœsilegur hér að ofan og ekki síður Kvennakór Hafnarfjarðar og Flensborgarkórinn neðst til vinstri. Skátakórinn var jólalegur og hress að vanda. Stöðugur straumur gesta var í með mótinu hafði Egill Frið- Hafnarborg og fólk kom víða að leifsson. enda mikil kóraveisla. Umsjón Merkjasaumur með nýja vél Hann Hjörtur í Merkjasaumi sem völ er á til að merkja fatnað. sem starfar í samstarfi við Fagföt Nýja vélin býður upp á mikla að Dalshrauni 11, hefur fjárfest í möguleika, er nákvæm og einni fullkomnustu saumavél hraðvirk. Úr dagbók lögreglunnar Innbrot og fíkniefnaneysla fimmtán ára unglinga. I tengslum við rannsókn á innbroti og þjófnaði er átti sér stað mánudaginn 2. desember síðastliðinn, var frmmtán ára piltur handtekinn á skólalóð í Hafnarfirði á leið úr skóla. Reyndist hann vera með eina Ecstasy töflu innanklæða og viðurkenndi sölu á tæplega þrjátíu slflcum töflum, þó ekki til skólafélaga sinna heldur til eldri einstaklinga. Framhaldsrannsókn málsins leiddi til handtöku fjögurra fimmtán ára pilta sem allir eru í neyslu fikniefna og hafa ítrekað komið við sögu lögreglu. Rann- sóknin hefur og leitt til þess að ijögur innbrot hafa verið upplýst, þar af eitt í heimahús, auk nokk- urra skemmdarverka sem piltar þessir hafa staðið að með einum eða öðrum hætti. Rannsókn stendur enn yfn. Helgin var hefðbundin í um- dæmi lögreglunnar í Hafnarfnði, Garðabæ og Bessastaðahreppi. Rólegt var hvað varðar útköll vegna ölvunar og óspekta en umferðinni gefrn því meiri at- hygli. Mikil umferð var alla helgina og virtist fólk nota sér lengri opnunartíma verslana og einnig voru víða samkomur og skemmtanir vegna komandi jóla- hátíðar. A föstudagskvöldið og aðfar- amótt laugardags stöðvuðu lög- reglumenn fjölda ökumanna, bæði á Hafnarfjarðarvegi og innanbæjar í þéttbýlinu og á laugardagskvöld og aðfaramótt sunnudags vom enn fleiri öku- menn stöðvaðir, en þá kom umferðardeild ríkislögreglustjór- ans til samstarfs. Samtals vom 50 ökumenn kærðir vegna brota á umferðarlögum, þar af 3 vegna gmns um ölvun við akstur og 11 vegna hraðaksturs. Um helgina vom fimmtán um- ferðaróhöpp tilkynnt til lögreglu, flest slysalaus. Þó var piltur flutt- ur á slysadeild á sunnudags- morgun, er bifreið hans ók á ljósastaur í Hafharfirði. Meiðsli hans munu ekki alvarleg. Regnbogabörn Skráöu þig í síma 575 1550

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.