Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.07.2011, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 08.07.2011, Qupperneq 14
O f spennt til að geta sofið. Er milli-lent í Boston og verð komin til San Diego þann 7. júlí. Gerðu það góði heimur að biðja fyrir litla englinum mínum. Hann er bara 7 ára gamall. Við viljum fá Johnny heim sem fyrst.“ Þetta er meðal þess sem Ana Lily Hernandez skrifaði á Facebook-síðuna, Johnny Back Home, á mánudaginn. Hún hefur barist örvænt- ingarfullri baráttu síðustu mánuði fyrir því að fá Johnny, son sinn, heim en faðir hans neitar að skila barninu eftir að hafa fengið drenginn í heimsókn yfir jólin. Þess í stað hefur hann leitað til dómstóla og krefst fulls forræðis yfir drengnum. Lily flaug utan á sunnudaginn til þess að vera viðstödd réttharhaldið í San Diego en það var á dagskrá í gær, fimmtudag. Þegar Fréttatíminn heyrði í Snorra Krist- jánssyni, íslenskum stjúpföður Johnnys, var eiginkona hans á leið til San Diego og var vongóð um að fá að hitta drenginn sinn í fyrsta sinn í rúmt hálft ár á fimmtudeg- inum. „Föðurnum er uppálagt að mæta fyrir réttinn með Johnny og vegabréfið hans, “ segir Snorri. Niðurstaða var ekki komin í málið þegar blaðið fór í prentun en Snorri og Lily gerðu sér góðar vonir um að réttarhald gærdagsins myndi leiða málið til lykta og að Lily fengi að taka drenginn með sér úr dómsalnum og gæti flogið með hann heim til Íslands. Baráttan fyrir því að endurheimta Johnny hefur kostað fjölskylduna umtalsverða fjár- muni og þau leita allra leiða til þess að safna fé. „Við þurftum að greiða bandaríska lög- manninum 350.000 krónur fyrirfram, flug Lilyar út kostar um 150.000 krónur og þá er gisting og uppihald eftir. Við höfum þurft að fá lánaða peninga hjá ættingjum og vinum,“ segir Snorri, vongóður um að þessi erfiða deila, sem tekið hefur á fjölskylduna, fái farsælan endi á næstu dögum. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  Móðir JOhnnys litla Viðstödd réttarhald í san diegO Vonast til að Lily geti tekið drenginn með sér heim Við höfum þurft að fá lánaða peninga hjá ætt- ingjum og vinum. Fjölskylda Johnnys var með fjáröflun í Kolaportinu um síðustu helgi og Snorri segir að framhald verði á slíku. Auk þess sem söfnunar- reikningur er opinn í Lands- bankanum undir kennitölunni 290775-2649 og númeri 0101 05 261299. Aflandskrónukaup Seðlabankans Seðlabankinn hefur stigið viðbótar- skref í afléttingu gjaldeyrishafta. Felast þau í tveimur samstæðum útboðum á næstu vikum, þar sem bankinn hefur milligöngu um að selja útlendingum gjaldeyri í eign líf- eyrissjóða í skiptum fyrir verðtryggð ríkisbréf á hagstæðum kjörum. 12. júlí verður haldið útboð þar sem erlendum aflandskrónueigendum, ásamt þeim Íslendingum sem hafa átt krónur hjá erlendum bönkum samfellt undanfarin þrjú ár, býðst að selja þær krónur fyrir erlendan gjaldeyri. Skilmálar útboðsins eru þeir sömu og í fyrsta útboðinu af þessum toga, sem haldið var fyrir mánuði. Í boði verða 15 milljarðar króna en Seðlabankinn áskilur sér rétt til að hækka eða lækka þá fjár- hæð að vild. Þriðja tilboðið verður í september. - jh 123 misstu vinnuna í hópuppsögnum Fjórar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í júní. Þar var sagt upp 123 manns. Um er að ræða uppsagnir í ýmsum atvinnugreinum á borð við verslun, fiskvinnslu, fræðslustarfsemi og menningar- og tómstunda- starfsemi. Aðeins er þó um að ræða hreinar uppsagnir í einu tilviki. Í tveimur er um að ræða endurskipulagningu. Líklegt er því að stórum hluta starfsmanna verði boðin endurráðning. Í einu tilviki er um að ræða sölu fyrirtækis úr þrotabúi og er reiknað með að starfsmenn verði endurráðnir. Í júní í fyrra misstu töluvert fleiri starfsmenn vinnuna í hópuppsögnum en nú þegar Vinnumálastofnun bárust alls fimm til- kynningar þar sem sagt var upp 177 manns. Mun fleiri hafa misst vinnuna á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra. Vinnumála- stofnun hafa borist þrettán tilkynningar um hópuppsagnir á þessu ári þar sem sagt hefur verið upp 500 manns, en á sama tímabili í fyrra höfðu borist alls sautján tilkynningar sem náðu til 360 manns. - jh 20,6% AUKning á FJöLdA FerðAMAnnA Júní 2010 – Júní 2011 Talning Ferðamálastofu Metmánuður í ferðamennsku Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 65.606 erlend- ir ferðamenn frá landinu um Leifsstöð í júní síðastliðnum eða ríflega 11 þúsund fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Aukningin nemur 20,6% milli ára og hafa ferðamenn aldrei verið fleiri í júnímánuði. Ef litið er til einstakra markaðs- svæða má sjá 50,4% aukningu frá n-Ameríku, 17% aukningu frá norðurlöndunum, 15,7% frá Mið- og Suður Evrópu og 7,6% frá Bretlandi. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júní frá Bandaríkjunum (17,7%) og Þýskalandi (14,6%) en þar á eftir fylgdu ferðamenn frá Noregi (8,1%), Danmörku (6,9%), Bretlandi (6,6%), Svíþjóð (6,1%) og Frakklandi (6,0%). Alls hafa 206.886 erlendir ferðamenn farið frá landinu það sem af er ári eða 35.636 fleiri en á sama tímabili í fyrra. Brottförum Íslendinga fjölgaði um fimmtung í júní frá því í fyrra, voru 37.438 í ár en 30.736 í fyrra. -jh Skráning er hafin á marathon.is Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður að morgni Menningarnætur, 20. ágúst. Vegalengdir við allra hæfi, allt frá Latabæjarhlaupi fyrir börnin og upp í heilt maraþon. Boðhlaup – hlauptu maraþon með félögum þínum Gerðu Reykjavíkurmaraþonið þitt enn skemmtilegra. Í boðhlaupi taka 2-4 sig saman og skipta heilu maraþoni á milli sín. Nánar á marathon.is. Hlaupastyrkur – hlaupum til góðs Þú getur látið gott af þér leiða með hlaupinu. Á hlaupastyrkur.is getur þú safnað áheitum til stuðnings góðgerðarfélagi að eigin vali með því að fá vini og vandamenn til að heita á þig. - Stoltur bakhjarl hlaupsins síðan 1997 ALLIR SAMAN NÚ TIL GÓÐS HLAUPUM ... og ef við hlaupum fjórir saman ... Það er lítið mál að hlaupa tíu kílómetra ... ... þá náum við heilu maraþoni ... ... og söfnum fyrir Barnaspítala Hringsins á meðan H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 1 1 -0 7 3 3 14 fréttir Helgin 8.-10. júlí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.