Prentarinn - 01.10.2001, Blaðsíða 24

Prentarinn - 01.10.2001, Blaðsíða 24
MENNTUN - OG MEIRA TIL Fræðslusjóði bókagerðarmanna er ætlað að stuðla að endur- og viðbótarmenntun félagsmanna, svo og námsgagnagerð og námskeiðahaldi. Sjóðurinn veitir styrki til náms, en sækja þarf um styrk áður en nám er hafið. Útborgun styrksins fer fram að námi loknu, að fenginni staðfestingu. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu FBM. Stjórn sjóðsins metur hverja umsókn og styrkir ákvarðast eftir lengd og kostnaði. SJUKRASJOÐUR FÉLAGS BÓKAGERÐARMANNA styrkir félagsmenn á ýmsan hátt Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér réttindi sín. Hér eru nokkur dæmi: Styrkhæft nám er m.a. eftirfarandi: NÁM INNANLANDS Nám sem er skilgreint til lengri tíma en hefðbundin námskeiö. NÁM ERLENDIS Veittur er styrkur uegna lengra náms. FAGNÁMSKEIÐ ERLENDIS Stutt afmörkuð námskeiö. TÓMSTUNDANÁM Námskeið í tungumálum eða almennt tómstundanám er styrkt sem nemur 50% af hluta sjóðfélaga þó að hámarki kr. 12.000 einu sinni á önn. Reykjavík, 17. september 2001. Stjórn Fræðslusjóðs bókagerðarmanna ATH: Skilyrdi fyrir styrkveitingu er ad umsókn berist áður en nám hefst. Stjórn sjódsins metur hverja umsókn. Styrkur er greiddur þegar námskeidi er iokid meó staðfestingu. HVERJIR EIGA RÉTT? Þeir sem greitt hafa í Fræðslusjóð síðastliöin tvö ár eiga rétt til styrkja úr sjóðnum. Þó hafa þeir sem greitt hafa í 6 mánuði rétt til styrkja vegna tómstundanáms. Umsóknir skulu berast fyrir eftirfarandi eindaga: 31. janúar, 30. apríl, 31. ágúst og 31. október ár hvert. Styrkur til líkamsræktar nemur 25% af kostnaöi félagsmanns. Hámarksstyrkur er kr. 8.000 á ári. Gleraugna- og heyrnartækjastyrkur Sjóðurinn greiðir 25% af kostnaði, þó að hámarki kr. 17.000 á 36 mánaða fresti. Umsókn um gleraugnastyrk fylgi afrit af augnvottorði. Sjúkraþjálfun - Endurhæfing Sjóðurinn greiðir 50% af hluta sjóðfélaga, vegna endurhæfingar, sjúkraþjálfunar eða sjúkranudds, að læknisráði. Hámarksstyrkur er kr. 17.000 á ári. Fæðingarstyrkur Sjóöfélagi fær styrk að uppfylltu því skilyrði aö hafa tekið fæðingarorlof hjá Tryggingastofnun ríkisins. Kr. 10.000 eftir 6 mánaða aðild, kr. 15.000 eftir 1 árs aðild, og kr. 30.000 eftir 2ja ára aðild. Veikindi barna Styrkur vegna veikinda barna greiðist í allt að 30 daga á hverju 12 mánaða tímabiii, enda hafi sjóðfélagi misst launatekjur vegna þeirra. Krabbameinsleit Kembileit hjá Krabbameinsfélagi íslands er styrkt að fullu. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að reikningur eða kvittun sé stíluð á umsækjanda, og að nafn og kennitala útgefanda komi fram.

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.