Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.02.2013, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 22.02.2013, Blaðsíða 36
36 heilsa Helgin 22.-24. febrúar 2013  Heilsa Polefitness fyrir konur og karla Álíka erótískt og fimleikar Ástarkaka á konudaginn Konudagurinn er núna á sunnudaginn og bændur ættu að vera farnir að huga að leiðum til að gleðja sínar konur. Ein leið til að dekra við frúna er að bjóða upp á dýrindis ástarköku með jarðar- berjum sem nú er seld annað árið í röð. „Ostakökurnar frá MS hafa notið mikilla vinsælda í gegnum árin ásamt því að árstíðar- vörurnar okkar hafa hlotið góðar viðtökur meðal neytenda,“ segir Guðný Steinsdóttir, markaðs- stjóri hjá MS. „Konudags ástarkakan kom fyrst á markað á konudeginum í fyrra og fékk hún frábærar viðtökur og fannst okkur því vel við hæfi að bjóða aftur upp á hana í tilefni dagsins.“ Ástarkaka með jarðarberjum er óneitanlega girnileg. Jón Baldur Bogason er eini karlkennarinn í súlufitness hér á landi. Alls eru þeir karlmenn sem stunda íþróttina af kappi aðeins þrír, en Jón segir að það komi von- andi til með að breytast. Hann hafnar tengingu íþróttarinnar við erótík. Jón Baldur er ungur íþrótta- kennari. Íþróttin sem hann fæst við er þó nokkuð umdeild og fáir karlar sem stunda hana af einhverju kappi. Hann kennir og stundar svokall- að „pole–fitness“ eða súlufitness og hafnar því alfarið að slíkt sé á nokkurn hátt erótískt. Þ etta gerðist óvart og var eiginlega bara smá flipp. Frænka mín er í þessu og hún manaði mig áfram því mig langaði að prófa en þorði ekki að taka skrefið,“ segir Jón Baldur Bogason, kennari í súlufitness. Hann er eini karlkyns kennarinn í sportinu hér á landi en samkvæmt upplýsingum Jóns Baldurs eru þeir karlar sem stunda íþróttina reglulega aðeins þrír á landinu öllu og einn sem leggur stund á svokallað „arial hoops“ sem er svipað súlufiminni en framkvæmt á stórum hring sem hangir niður úr loftinu. „Ég held að strákar séu oft hræddir, eins og ég var sjálfur fyrst. En um leið og þeir koma og prófa þá elska þeir þetta. Þetta er svo ógeðs- lega gaman og alveg fáránlega erfitt, því þú vinnur bara með að lyfta þinni eigin líkamsvigt. Þetta er æðisleg líkamsrækt.“ Jón Baldur hefur verið kennari hjá Pole sport í rúmt ár en athygli vekur að hann byrjaði að stunda sportið fyrir aðeins tveimur árum. Það verður því að teljast mjög góður árangur á stuttum tíma. Jón Baldur fagnar aukinni umræðu um sportið sem hann segir alls ekki tengjast erótík á neinn hátt. „Mér finnst það bara fáfræði þegar fólk heldur slíku fram. Þetta eru bara fimleikar, ég held að upphaf- lega sé þetta komið frá Indlandi og Kína og alls ekki tengt erótík. Það mætti þannig alveg eins færa rök fyrir því að fimleikastelpur væru erótískar í fimleikabolunum sínum.“ Hann segir að á sportinu sé vaxandi áhugi og þá einnig á meðal stráka. Þó sé ekki mikið um keppnir hér á landi, nema innanhúss en það komi vonandi til með að breytast með tímanum. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is 15% afsláttur Gildir út febrúar 499kr.pk. Verð áður 1 299 kr. pk. VIP bleiur, nr . 2 og 3 * * Meðan birg ðir endast 60%afsláttur FYRSTA SÆTI Í FLOKKI MATVÖRUVERSLANA 2012 SÆTI 1. MATVÖRUVERSLANIR ÍSLENSKA ÁNÆGJUVOGIN KONUDAGURINN ER Á SUNNUDAG! Dekrum við konurnar okkar, kíkið við í Borgartúni Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Berlín í vor! 18.-21. APRÍL veRð fRá: á mann m.v. 2 fullorðana í tvíbýli á hótel NH-Mitte með morgunmat. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. 78.900 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.