Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1952, Blaðsíða 29

Læknablaðið - 01.04.1952, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ 133 síðari árum. Hún er fram- kvæmd í augnablikssvæfingu á eftirfarandi hátt. Með vísifingri á fremri gómboga er tonsill- unni þrýst inn í hringmyndað gat í Sluders-áhaldi. Síðan er bitlausum hringhníf skotið fvr- ir gatið og klemmt fast að kirt- ilrótunum. Með snöggu átaki er kirtillinn svo rifinn út. Með nokkurri æfingu tekst að ná tonsillunum burtu í heilu lagi á þennan hátt, jafnvel úr ungl- ingum eða fullorðnum, ef þær eru ekki of fastgrónar (adhær- ent) við umhverfið. Annars tíðkast talsvert, einkum í enskumælandi löndum, að framkvæma t. ect. chir. á full- orðnum í svæfingu, liggjandi með höfuðið hangandi aftur á bak. Mér skilst þó að þessi að- ferð sé nú óðum að vikja fyrir t. ect. i deyfingu, á sjúklingi sitjandi eða hálfliggjandi. Það var algengt áður, að tek- inn var aðeins annar hálskirt- illinn, sá, sem venjulega bólgn- aði. En reynslan kenndi mönn- um að það var gagnslítið, þvi þá byrjuðu bara bólgur í hin- um, sem eftir var, og nú er þetta víst sjaldan gert. Kontraindication fyrir t. ect. er fyrst og fremst hæmophilia, en auk þess mikið blóðleysi, hár blóðþrýstingur og lélegt al- mennt ástand sjúklings. Töluvert hefir verið um það deilt, hvort rétt sé að taka háls- kirtla úr berklasjúklingum. Sumir telja að það geti haft góð áhrif á gang sjúkdómsins, en aðrir að það kunni að ýfa hann upp (aktivera). Sjálfsagt fer þetta mikið eftir því á hvaða stigi sjúkdómurinn er. Ég hefi nokkrum sinnum gert t. ect. á berklasjúklingum, sumum með smit, og hefir það alltaf farið vel. Siðustu árin hefir nokkuð verið rætt og ritað um það, að varhugavert sé að framkvæma aðgerðir i hálsi og nefkoki þeg- ar poliomyelitis er á ferðinni. Þessi kenning var upprunalega hyggð á einstökum lömunar- veikistilfellum, sem konm fyr- ir i fólki, sem slikar aðgerðir höfðu nýlega verið gerðar á. Nú hafa verið gerðar nokkrar skipulagðar athuganir á fjölda manna til þess að reyna að komast að raun um hvað hæft er í þessu. Árið 1947 birtist skýrsla um athuganir á ibúum San Francisco og nágrennis (2,5 millj.) er mikill mænu- veikisfaraldur hafði gevsað þar (árið 1943). Niðurstöður athugananna voru, að álika margir af þúsundi tóku veik- ina af þeim, sem háls- eða nef- kokskirtlar höfðu nýlega verið teknir úr (fvrir 2 mánuðum eða minna) og annarra íhúa þar. í fyrra var birtur árang- ur af athugunum, sem gerðar voru 1949 í Los Angeles og héruðunum þar í grennd, á hugsanlegu sambandi milli

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.