Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 26
Paris Hilton i fangelsi? Glamúrgellan Paris Hilton gæti átt von á 90 daga fangelsisvist eftir brot á skilorði. Paris hlaut skilorðsbund- inn dóm eftir að hafa verið tekin við ölvunarakstur í september í fyrra og missti í kjölfarið ökuleyfið sitt. Hún lét það þó ekki stoppa sig frá því að keyra en það fór ekki betur en svo að lög- reglan stöðvaði hana. Skömmu síðar var greyið stúlkan aftur stöðvuð fyrir að keyra um á ljóslausum bíl. Réttar- höld munu fara fram 17.apríl því það er jú stranglega bannað að keyra án ökuleyfis, jafnvel þó maður sé Paris Hilton. Ricky Gervais hefur sannfært John Travolta um að koma fram í sérstökum jólaþætti Extras en hafði áður neitað Kemur fram í jólaþætti Extras n Kertaljósatónleikar Harðar Torfa í Borgarleikhúsinu kl 20.00 n Barnabókahöfundar les úr verkum sínum í Borgarbóka- safninu Grófarhúsi kl 15.30 í tilefni alþjóðlega barnabóka- dagsins. n Landnám- sýningin Reykjavík 871 ±2 í Aðalstræti 16 er opin alla daga frá kl. 10-17 n Yfirlitssýningar á verkum listamannanna Jóhanns Briem og Jóns Engil- berts í Lista- safni Íslands Hvað er að gerast? Mánudagur 2. apríl Endurgerð Mortal Kombat Fyrirhugað er að endurgera Mortal Kombat kvikmyndina sem var fyrst gerð árið 1995. Mortal Kombat er bardagatölvuleikur sem naut gríð- arlegra vinsælda á sínum tíma og er oft talað um að kvikmyndin sem gerð var fyrir 12 árum sé ein af fáum tölvuleikjamyndum sem hafi heppn- ast vel. Midway, fyrirtækið sem þró- aði tölvuleikinn segir að handritið sé í vinnslu og þeir lofi stórum nöfnum í aðalhlutverk myndarinnar en fyrri myndin skartaði Christopher Lamb- ert í aðalhlutverki. Kynlíf í kvikmyndum er vandmeðfar- ið. Oftast er það klippt burt og látið lifa sínu eigin sjálfstæða lífi í vand- ræðalegum ræmum skotnum á digi- tal í Warsjá. Þegar almennar kvik- myndir taka á erótík þá endar það í hálfsadómasókísku rugli, þar sem ofbeldi er oft í sömu hlutföllum. Eða að myndirnar eru svo fókuseraðar á kynlíf að allt annað er gert illa. Verst- ar eru þó hinar dæmigerðu „eró- tísku“ myndir, þar sem olíusmurðir menn blása í saxafón niðri á strönd og svo detta inn nærmyndir af hnjám nuddast saman. Þessi mynd er gerð eftir klassískri sögu D.H. Lawrence sem á sínum tíma þótti rót- tæk í siðferði og stjórnmál- um. Margir hafa reynt að gera sögunni skil á hvítu tjaldi og sjónvarpsskjá en þessi út- koma er langsamlega best. Hástéttarkonan Lafði Chatt- erlay lifir fábreyttu lífi með eiginmanni sínum Clifford. Hann hefur örkumlast og er andlega og líkamlega getu- laus. Samskiptaleysi og ein- angrun hefur slæm áhrif á hana. Í tilraun til að veikjast ekki af leiðindum kynnist hún Parkin veiðiverði húsbóndans. Við sjáum hvernig hún uppgötvar líf- ið á ný og náttúran er henni hugleik- in. Marina Hands leikur Chatterlay svo stórkostlega vel og er tilgerðar- laus með öllu. Maður skynjar tóm- lætið í fyrstu og seinna hamingjuna. Sér hvernig hún endurheimtir til- finningu fyrir heiminum og spenn- an nær til manns. Hún skynjar nú allt hið fallega en líka ranglæti þjóð- félagsskipunarinnar. Þar ber eigin- maður hennar mikla ábyrgð enda forríkur atvinnurekandi í námuiðn- aði,sem vill banna verkamönnum að fara í verkföll. Stéttskiptingin er henni hugleikin og maður skynjar tilfinn- ingahita hennar yfir fegurð jafnt sem grimmd umhverfisins. Eðlileg feg- urð birtist án þess að keyra á klisjum og stíliseringum. Sparlega er farið með tón- list og maður þekkir ekki leikarana sem hjálpar bara til. Einhverjum kann að finnast myndin of löng og það má sennilega til sanns vegar færa. En hver mínúta er þess virði. Gæti trúað að þetta sé myndin sem loks- ins leyfir D.H. Lawrence að hvíla í friði áhyggjulausan yfir meðferð kvikmynda á sögum hans. Bíódómur Lady ChatterLay Raunsæ og hrífandi ást- arsaga af bestu sort. Ástin fær að njóta sín fyrir það sem hún er og öllum klisj- um er sleppt. Aðalhlutverk: Marina Hands, Jean-Louis Coulloc‘h, Hippolyte Girardot, Hélène Alexandridis og Hélène Filli- ères. Leikstjóri: Pascale Ferran Niðurstaða: HHHHH Fallegt Framhjáhald Spennandi Tilfinninghitinn nær til manns í gegnum hvíta tjaldið. Marina Hands Stendur sig stórkostlega í myndinni. Lady Chatterlay Hrífandi kvikmynd gerð eftir sögu D.H. Lawrence. Gamanleikarinn Ricky Gervais hef- ur nú sannfært ofurtöffarann John Travolta um að koma fram í sérstakri jólaútgáfu af gamanþættinum Ex- tras. John Travolta hafði áður sagt að hann kæmi ekki til með að leika í þættinum þar sem hann væri mjög upptekinn þessa dagana við undir- búning á hlutverki sínu í nýrri Dall- as mynd. Gervais tókst hinsvegar að heilla Travolta þegar þeir komu saman fram í breska spjallþættinum Fridaynight with Jonathan Ross sem sýndur var síðastliðinn föstudag. „Ég myndi líklega gera allt sem Ricky biður mig um“ var haft eftir Travolta. Tvíeykið innsiglaði svo end- anlega samninginn með því að bjóða áhorfendum upp á danssýningu þar sem Ricky fór að kostum með Dav- id Brent dansinum sínum úr Office þáttunum og að sjálfsögðu tók Tra- volta gömlu góðu Saturday Night Fe- ver sporin sín. Travolta er sem kunn- ugt er mjög heitur á dansgólfinu og þar að leiðandi mjög eftirsóttur dans- félagi en nýlega sagði hann frá því að sjálfur Sir Sean Connery hefði beðið hann að taka einn dans með sér þar sem þeir voru staddir í samkvæmi. Að sjálfsögðu neitaði Travolta ekki boði um að dansa við sjálfan Bond og mátti sjá þá félaga í góðri sveiflu úti á dansgólfinu. John Travolta Sannfærði Travolta að taka hlutverkið í beinni útsendingu. Mun leika í síðasta þættinum af Extras Ricky Gervais gaf diskóljóninu sjálfu ekkert eftir á dansgólfinu. FEITASTA GRÍNMYND ÁRSINS Sýnd í Háskólabíói Rómantísk gamanmynd sem fær þig til að grenja úr hlátri. kvikmyndaupplifun ársins StærSta opnun árSinS „FYNDNASTA SPENNUMYND áRSINS” - GQ Ný GRíMYND FRá SömU OG GERðu SHAUN OF THE DEAD. og þú sem hélst að þín fjölskylda væri skrítin... Stærsta grínmyndin í Bandaríkjunum á þessu áriSýnd í Háskólabíói Renée Zellweger / kringlunni / keflavík/ álfabakka / akureyri DigiTal Wild HOGs kl. 6 - 8 - 10 Leyfð mEET THE ... M/- ÍSL TAL kl. 6 Leyfð 300 kl. 8 - 10 B.i. 16 mEET THE rOBinsOns kl. 5:50 Leyfð sCHOOl fOr sCOu... kl. 8 - 10:10 Leyfð Wild HOGs kl. 8 - 10:10 Leyfð HOT fuZZ kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 HOT fuZZ VIP kl. 8 - 10:30 rOBinsOn f...M/- ÍSL TAL kl. 3:40 - 5:50 - 8 Leyfð rOBinsOn f... VIP kl. 3:40 - 5:50 Wild HOGs kl 3:40 - 5:50 - 8 -10:20 b.i 7 rOBinsOn...M/- ÍSL TAL kl. 6 Leyfð mEET THE... M/- ENSKU Tali kl. 8:10 - 10:20 Leyfð 300. kl. 8 - 10:30 B.i.16 Wild HOGs kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i.7 nOrBiT kl. 5:50 Leyfð Sannsöguleg mynd um Beatrix Potter einn ástsælasta barnabókahöfund Breta fyrr og síðar. Skráðu þig á SAMbio.is Háskólabíó 300. kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 musiC & lyriCs kl. 5:50 - 8 - 10:20 Leyfð smOkin aCEs kl. 10:30 B.i.16 BridGE TO TErEBiTHia kl. 3:40 Leyfð skOlaÐ Í BurTu M/- Ísl tal. kl. 3:40 Leyfð lady CHaTTErlEy kl. 5:40 - 9 TEll nO OnE kl. 8 HOrs dE prix kl.10:20 paris, jE T’aimE kl 5:40 mrs pOTTEr kl. 5:40 - 8 - 10:20 Leyfð rOBinsOn f... ÍSL TAL kl. 7 Leyfð THE GOOd GErman kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.16 300. kl. 9 B.i.16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.