Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 39

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 39
37 TABLE 2. CARCINOMA OF THE LUNG IN ICELAND WOHEN ANNUAL INCIDENCE PER 100,000 IN BRACKET AGE: 1955 - 1969 1965 - 1979 20 - 29 0 ( 0) 0 ( 0) 25 - 29 0 ( 0) 1 ( 2) 30 - 39 0 ( 0) 0 ( 0) 35 - 39 1 ( 2) 2 ( 9) 90 - 99 0 ( 0) 9 ( 7) 95 - 99 9 ( 9) 9 ( 8) 50 - 59 1 ( 3) 15 (33) 55 - 59 7 (20) 20 (98) 60 - 69 7 (22) 15 (91) 65 - 69 7 (26) 13 (91) 70 - 79 5 (25) 19 (52) 75 - 79 10 (78) 8 (90) 80 - 89 7 (79) 7 (60) 85 AND OVER 1 (16) 9 (59) TOTAL 50 ( 6) 107 (11) TABLE 3. CARCINOHA OF THE LUNG IN ICELAND HEN ANNUAL INCIDENCE PER 100.000 IN BRACKET AGE: 1955 - 1969 1965 - 1979 20 - 29 1 ( 2) 0 ( 0) 25 - 29 1 ( 2) 1 ( 2) 30 - 39 0 ( 0) 0 ( 0) 35 - 39 2 ( 9) 1 ( 2) 90 - 99 9 ( 8) 3 ( 5) 95 - 99 9 (20) 12 (23) 50 - 59 18 (95) 29 (52) 55 - 59 22 (62) 21 (52) 60 - 69 15 (99) 33 (93) 65 - 69 15 (61) 25 (86) 1 O 79 8 (96) 23 (99) 75 - 79 7 (69) 15 (79) 80 - 89 2 (33) 10 (116) oo v_n AND OVER 2 (59) 1 (29) TOTAl 106 (12) 167 (16) Sviss þrjátíu og tvöfaldaðist tíðni sjúkdóms- ins frá 1900—1952.3 1 Englandi og Wales voru 390 sjúklingar skráðir dánir af völdum lungnakrabba árið 1910, 1920 dóu þar 500, árið 1930 1489 sjúk- lingar, en 1962 töldust 23.799 dánir þar af völdum þessa sjúkdóms. Þá höfðu dauðsföll karla aukist um 11.5% frá 1959, en dauðs- föll kvenna um 21.3%, en sjúkdómurinn var þá sex sinnum algengari meðal karla en kvenna í Englandi og Wales.4 Víðast erlendis hefur hlutfallið milli karla og kvenna með lungnakrabbamein haldist nokkuð stöðugt, enda þótt reykingar hafi aukist hraðar og meir hjá konum.5 Vera má að í þeim skýrslum, sem fjalla um þetta, hafi ekki verið tekið nægjanlegt tillit til ára- fjöldans, sem sjúklingar hafa reykt. Hér á landi hefur tíðnin aukist meira hjá konum en körlum (sbr. töflu 1 og mynd 2). Vera má að konur hér á landi hafi aukið reykingar sínar fyrr eða reykt þeim mun á- kafar heldur en stallsystur þeirra erlendis. Tíðnin meðal kvenna hefur verið mun meiri hér í þéttbýli en í sveitum, þar sem á ára- bilinu 1955—1964 fundust helmingi fleiri konur með lungnakrabbamein í þéttbýli heldur en í sveitum, en meðal karla var fjöldi sjúklinga sá sami í þéttbýli og sveit- um.° 1 þessari grein er ekki unnt að fjalla um ýmsar þekktar orsakir lungnakrabbameins, en þar sem nú er talið að vindlingareyking- ar séu algengasta orsökin, verða þeim gerð nokkur skil. Langt er síðan menn létu sér detta í hug að orsakasamband kynni að vera milli reyk- inga og lungnakrabba. Wynder og Graham í Ameríku og Doll og Hill í Englandi sýndu fram á mun hærri tíðni meðal þeirra, sem reyktu mikið af vindlingum en hinna, sem reyktu lítið eða ekki.7 Það var argentíski læknirinn Roffo, sem sýndi fram á að í vind- lingum er efni, sem getur framkallað krabba- mein ef þvi er dælt í rottur.8 Ýmis önnur efni eru þekkt, sem geta orsakað lungna- krabba, svo sem uranium, arsen, krómsölt, nikkel, kopar, tjara, ýmsar geislavirkar loft- tegundir, steinolia og asfalt. Síðustu rannsóknir hér á landi sýna að meðal unglinga hafa daglegar reykingar farið mjög i vöxt hjá báðum kynjum, t.d. hjá sautján ára reykjandi piltum úr 25.8%

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.