Kjarninn - 13.02.2014, Page 55

Kjarninn - 13.02.2014, Page 55
05/07 pistill innréttaðar með barnadóti en vinsælast er þó að fara í sundlauga garða og sóla sig á grasfleti. Þá er alltaf sport að fara í dýragarð, bæði til að skoða dýrin og læra um vistkerfið. Svo ekki sé nú minnst á fjölskyldu hátíðir sem setja reglulega svip á hverfin, þá blása trúðar risasápukúlur, tónlistarpedagógar skemmta og bændalegir afar sjóða krakkate með ávaxtabragði. Í stórmörkuðum er gríðarlegt magn af krakka tímaritum sem taka mið af ólíkum áhugamálum barna. Margar bóka- búðir hafa sérstaka barnadeild með æðisgengnu úrvali af barnabókum, oft mikil fróðleiksrit fyrir börn (og fávísa foreldra). Barnatímar í sjónvarpinu eru líka lúmskt fræð- andi og fallegir. Í diskabúðum má svo finna gott úrval af krakka tónlist, bæði klassísk verk og barnasöngva. Í borginni eru líka barnaleikhús með verk fyrir börn á ólíkum aldurs- skeiðum. Svona má lengi upp telja. Í Berlín heyrði ég í fyrsta skipti menntaðan pedagóg tala um lýðræði barnanna! nú segir einhver að … … það sé fáránlegt að bera stórborg saman við Reykjavík. Auðvitað er munur á umfangi og þar með framboði þessara borga en ég held að það skipti ekki öllu máli. Ég held að barnamenning sé nokkuð sem borgarbúar þrói meðvitað. Reyndar hefur Reykjavík upp á sitthvað að bjóða, eins og til dæmis: Húsdýragarðinn, Nauthólsvík (sirka fimm daga á ári), góðar sundlaugar, leikkjallarann í Laundromat, blöðru- sala í Kolaportinu, furðu fjölbreytt úrval íslenskra barnabóka í niðurgröfnum kjöllurum bókabúðanna (af hverju eru flestar barnabækur geymdar í kjöllurum í bókmenntaborginni Reykjavík?) og barnadeildina á Borgarbókasafninu, svo ég nefni helstu viðkomustaði okkar mæðgina síðasta sumar. En það þarf meira til … … svo að Reykjavík geti kallað sig barnamenningarborg. Sumt er vel heppnað, eins og Húsdýragarðurinn, en enginn nennir að fara þangað öllum stundum, fyrir nú utan að þar mætti ota einhverju heilnæmara að börnunum en pylsum, gosi og

x

Kjarninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.