Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 33

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1929, Page 33
Stefnir] Milli fátæktar og bjargálna. 31 menningu," nútímans, sem sumir þeir tala háðulega um, sem minst skyn bera á það, hve stórfeldum umbótum á lífskjörum almenn- ings hún hefir þegar áorkað, og á þó eftir að gera betur. Allar þessar umbætur fela það í sér, að stofnfé fyrirtækjanna þarf að vera miklu meira móts við hvern verkamann, en áður var. Þar með hefir líka viðhalds og fyrn- ingarkostnaður stofnfjárins og vaxtagreiðslur af andvirði þess vaxið stórum. En langmest hafa þó vaxið útgjöldin til þriðja liðs- ins, sem áður var nefdur endur- bætur og aukning stofnfjármun- ■anna. 1 vel reknum fyrirtækjum í Bandaríkjunum er það nú orðin venja, að sérhverri vinnuvél er fleygt í bræðsluofnana tafarlaust þegar fullkomnari gerð er fáan- leg, heilar verksmiðjur endur- bygðar, ef mönnum hefir hug- kvæmst betri tilhögun. Það eru óhemju fjárhæðir, sem fara í um- bætur og aukningu stofnfjár- munanna, en framleiðslan á mann er líka miklu meiri hjá þeim en nokkur dæmi eru til áður eða annarsstaðar, og fullnæging neyzluþarfanna komin lengra á veg hjá þeim en nokkurri annari þjóð. 3. Stjórn. Tilhögunin á stjóm atvinnutækja getur verið með tvennu móti. Annaðhvort er stjórnin í höndum eiganda sjálfs, eða í höndum manna (ráðsmanna, forstjóra), sem eru ráðnir og launaðir til þess að hafa stjórn- ina á hendi. Með síðari tilhög- uninni verður greiðslan fyrir stjórnarstörfin mikið til sama eðlis og hver önnur vinnulaun. Og í rauninni er líka rétt að skoða endurgjald það, sem eig- andi tekur fyrir að stjóma sjálf- ur sínu eigin fyrirtæki, sem borg- un fyrir vinnu. En hér við bæt- ist svo áh'ættan. Sérhvert fyrirtæki, verður að búast við því, að tapa öðru hvoru, í erfiðum árum. Til þess að slík töp verði fyrirtækinu ekki að fótakefli, neyði það til að selja nokkuð af stofnfjármunum sín- um, fækka mönnum og minka framleiðslu sína, eða hætta al- veg, er alveg nauðsynlegt að stjórna því þannig, að í góðum árum safnist nokkur tekjuaf- gangur, eða gróði, sem kallað er. Þegar eigandi stjórnar fyrirtæki sjálfur, er þessari áhættuþókn- un venjulega ekki haldið að- greindri frá öðrum tekjum hans af fyrirtækinu, en í hlutafélög- um er venjulega hafður reikn- ingslegur varasjóður til þess að

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.