Sagnir - 01.06.1994, Blaðsíða 43

Sagnir - 01.06.1994, Blaðsíða 43
Krístján IV Danakonungur. komu á land, oc sióvíkingar ætludu at ræna Dani á Vatneyri, rédust hinir ensku menn á þá, oc urpu þeim í sjóinn oc drápu marga, enn tóku tvo fyrirlida oc fóru á brott sídann.“51 Ef Englendingarnir voru fangar ræn- ingjanna á Vestfjörðum er ekki að furða að þeir skyldu síðar taka þátt í að yfir- buga þá. Eftir Spánverjavígin koniust þeir spænsku sjómenn sem eftir lifðu úr landi á enskri duggu sem þær rændu vor- ið 1616 og virðast þar að auki hafa rænt annað enskt skip í leiðinni.'’2 Erfitt er að leysa úr þessari flækju út frá þeim heim- ildum sem eru fyrir hendi en hún sýnir að minnsta kosti að það hefur verið allt morandi í útlendingum á Islandi á þess- um árum, sem höguðu sér misjafnlega friðsamlega og áttu landsmenn erfitt með að greina hveijir voru hvað. Þrátt fyrir Vestmannaeyjaránið virðast Englendingar ekki hafa að jafnaði farið með ófriði og tóku jafnvel þátt í að yfir- buga ofbeldismenn, eins og sagan af ræn- ingjunum á Patreksfirði sýnir. Arið 1616 greinir Skarðsárannáll frá því að Eng- landskonungur hafi sent herskip til lands- ins til að veija enskar fiskiduggur gegn sjóræningjum frá Spáni og fleiri löndum. Ef til vill voru ofangreindir atburðir or- sökin. Tóku þau skip „tvö reyfaraskip fýrir Garði suður.“53 Fleiri dæmi eru um að Englendingum hafi þótt vissara að senda herskip til að veija duggur sínar. Arið 1626 „komu 2 varnarskip frá Englandi og lögðu inn í kaupstaðinn Djúpavog, og ætluðu að taka kaupskipið, sem þar lá fýrir, en þá þeir sáu kongsins pass, gerðu þeir því engan skaða. Þeir höfðu tekið 5 ræningjaskip í höfunum og sent þau til Englands."34 Ari síðar höfðu enskar duggur „2 vamarskip, sem tóku franskt hvalfangaraskip fýrir Vest- fjörðum við Látrabjarg."53 Að sögn Jóns Indíafara hétu skipstjóramir á þessum skipum „kapteinn Húuk og kapteinn Tril“ og var tilgangur þeirra „að taka franska hér við land eður hvar annars staðar í sjóum hvar þá hittu.“ Ur þessu varð milliríkjamál þar sem Kristjáni IV. mislíkaði að Englendingar skyldu taka franska skipið svo nálægt landi þó að það hefði danskan passa. A sama tíma var Isak Brommet, kunningi Jóns Indíafara, hér við land við veiðar. Hugðist Holgeir Rosenkrantz hirðstjóri fá aðstoð þessara Englendinga til að beijast við Tyrki.56 Nærvera hinna ensku herskipa við Vest- firði olli því að Tyrkimir þorðu ekki þangað.’7 Þegar Tyrkir rændu Vest- mannaeyjar árið 1627 var ensk dugga tekin við eyjarnar og af henni níu menn. Voru þeir látnir visa Tyrkjaskipunum að höfninni. Einn af þessum níu var Islend- ingur og var hann Tyrkjunum einna hjálplegastur.55 Olafur Egilsson nefnir einnig enska menn í liði Tyrkja.3'7 Arið 1628 „voru við landið varnarskip, bæði dönsk og engelsk."6" Næstu áratugi segir minna af enskum herskipum hér við landið en Englend- ingar eiga þó þátt í ofbeldisaðgerðum hér á landi. Arið 1638 var dæmt „í milli Johans Mumms hollendska, oc Jasonar West enska, kærdi Jóhan at Jason hefdi skorit sig i andlitit, enn Jason at Johan hefdi slegit bréf prinsins úr hendi sér oc trodit. . ,“61 Jasonar Wests er einnig getið við deilumál ári áður,62 en um efni þess er minna vitað. Hann kvæntist íslenskri konu og farnaðist afkomendum hans vel. Um aldamótin 1700 var Guðmundur, sonur hans, kominn í hóp ríkustu manna landsins/3 Ef litið er fram hjá slagsmálum þeirra Rysiardssons og Wests eru hernaðarað- gerðir Englendinga hér við land bundnar SAGNIR 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Sagnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.