Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Page 22

Sveitarstjórnarmál - 01.04.1994, Page 22
STJÓRNSÝSLA á milli umdæma framkvæmdavaldsins og umdæma sveitarfélaganna og það skiptir því sköpum um meðferð og úrlausn rnála hvora leiðina löggjafinn kýs til vald- dreifingar. Ef mismunandi eiginleikum þessara tveggja kerfa er ekki haldið aðgreindum verður öll verkaskipt- ing flókin og ríkisvaldið freistast þá til með frant- kvæmdavaldi sínu að stýra með laga- og reglugerða- flóði stjórnvaldi, sem á í raun að vera nokkuð frjálst. Meginhlutverk sveitarfélaga er að vera lýðræðislegur ákvörðunarvettvangur þeirra mála, sem löggjafarvaldið ætlar eingöngu að ákveða almennt en vísar aftur til þjóðarinnar (þ.e. eigin umbjóðenda) í sveitum til nánari útfærslu. Því þrengra sem svigrúnt sveitanna er til sjálfstæðra ákvarðana þeim mun rninna verður sjálfræði þeirra. Með auknu reglugerðavaldi framkvæmdavalds- ins ná ráðuneyti og ríkisstofnanir oft að setja sveitarfé- lögunum rnjög þröngar reglur um efnislega afgreiðslu mála. Alþingi 2. mynd. Svigrúm sveitarfélaga til stefnumörkunar á aö vera rýmra í umdæmisstjórnsýslu framkvæmdavatdsins. Stór verkefni og málaflokkar, þar sem lágmarks- kröfur og þjónustustig er í aðalatriðum ákvarðað mið- lægt, ganga í berhögg við sjálfræði sveitarfélaganna, þar sern þau eru þá fjárhagslega ábyrg fyrir verkefnum, sem þau ráða litlu um nema sem eins konar rekstrar- stjórn. Sveitarfélögin eru því kornin í spor lestarstjór- ans. Lýðræðislega kjörið stjórnvald íbúanna, sveitar- stjórnin, er þá orðið að stjórntæki frantkvæmdavaldsins en ekki íbúanna. Ef ákvörðun urn framkvæmd mála liggur í raun fyrir þá eru sveitarstjórnarkosningar í raun tilgangslausar hvað snertir lýðræðislega stefnumörkun viðkomandi málaflokks. Hversu rúmt þetta svigrúm sveitarfélaganna á að vera verður því eilíft matsatriði, sem löggjafinn á almennt að ákveða sjálfur í stað þess að framselja slíkar ákvarðanir til handhafa frain- kvæntdavalds, þar sem sveitarfélögin sjálf eru í eðli sínu eins konar ígildi reglugerðavalds. Meginreglan er því sú að verkefni skulu færð niður eftir umdæmisskipan frantkvæmdavaldsins, ef rfkið leggur áherslu á að allir landsmenn skuli njóta sömu þjónustu eins og framast er kostur án tillits til búsetu. Ríkisvaldið jafnar þvf út mismunandi kostnað umdæma og beitir stjórnvaldi sínu í héraði til að tryggja viðun- andi þjónustu með sem mestum jöfnuði. Lítið svigrúm er gefið til staðbundinnar stefnumörkunar og því er ekki ástæða til að kjósa í almennum staðbundnum kosning- um utn framkvæmd slfkra mála. Slík verkefni eiga því að vera í höndurn embættismanna í héraði, sent lúta beinni yfirstjórn framkvæmdavaldsins. Verkefni án stefnulegs svigrúms kunna að auka rekstrarlegt untfang stjórnsýslu sveitarstjórnanna en styrkja ekki sveitarfélögin sem sjálfstætt staðbundið stjórnvald. Þeim á því almennt að vísa til umdæma framkvæmdavaldsins. I einstökum tilvikum getur hins vegar verið rétt að fela stjórnsýslu sveitarfélaganna einstök minni háttar rekstrarverkefni, sem falla vel að stjórnsýslu þeirra og starfsmannahaldi. Er sterkt ríkisvald samhlida sterkri héraósstjórn ósamrýmanlegt? Miðskipað lýðræðislegt ríkisvald er eitt af megin- einkennum flestra nútíma ríkja. Oft má heyra þá skoðun að sterkt rfkisvald sé hagsmunum almennings fjand- samlegt en jafnoft er fundið að ríkisvaldi, sem er of veikt til að samhæfa heildarhagsmuni og beina fram- kvæmdamætti ríkisins í markvissan farveg. Styrkleiki lýðræðislegs og ntiðskipaðs ríkisvalds felst hvorki í gjörræðislegri drottnun né ntikilli miðstýringu daglegra stjórnarathafna heldur miklu frekar í getu til að skapa samstöðu og samhæfa ólík sjónarmið með markvissri stefnumótun og hrinda síðan í framkvæntd markaðri stefnu í dreifskipuðu stjórnkerfi. Algeng grunnregla í skipulagi ríkja er að ákvarðanir, sem tengjast megin- markmiðum, eru teknar miðlægt til að tryggja sam- ræmda stefnu þjóðarmarkmiða en útfærsla og fram- kvæmd mála er færð eins langt niður eftir stjómkerfinu og framast er kostur og hagkvæmt þykir hverju sinni. Það gefur ntiðskipuðu stjórnvaldi nteiri tíma til að helga sig meginhlutverki sínu, sem er mótun heildarstefnu og tryggja samræmingu opinberra aðgerða. Gott skipulag opinberrar stjórnsýslu og skýr verka- skipting rnilli stofnana og stjórnstiga er því forsenda fyrir árangursríkri valddreifingu. Ef neðri stjórnstig eru tiltölulega óbundin markmiðum æðri stjórnvalda, þá eru ákvarðanir ríkisvaldsins, þ.e. almennings sem heildar, í raun og veru gerðar að engu. Það er því mik- ilvægt að málefnaleg og svæðisbundin verkaskipting sé í vel skipulögðunt og rökréttum farvegi, því að inn- byrðis togstreita og ósamræmi í starfsháttum og skipu- lagi stofnanakerfisins dregur mjög úr afköstum þess. Tilgangur skipulags innan opinberrar stjórnsýslu er því að ákvarða starfssvið og verkaskiptingu en einnig 84

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.