Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Blaðsíða 30

Sveitarstjórnarmál - 01.05.2003, Blaðsíða 30
Kópavogsbær Miðbæjarsvæði yfir Gjána Hafnar eru framkvæmdir við yfirbyggingu Gjárinnar í Kópavogi þar sem Hafnarfjarðarvegurinn liggur í gegnum bæinn. Ætlunin er að byggja yfir á áttunda hundrað fermetra svæði í þremur áföngum og reisa tvö hús, hvort við sinn enda þess. Aðstæður í Kópavogi bjóða upp á slík mannvirki og kalla raunar á þau þar sem þjóðvegurinn frá Reykjavík til Hafnarfjarð- ar og Suðurnesja liggur í niðurgrafinni gjá í gegnum bæinn og skilur meðal annars að einn meginþjónustukjarna hans og menningarmiðstöð. Austan gjárinnar eru margar þjónustustofnanir, einkum í opin- bera geiranum og einnig bankar. Vestan gjárinnar eru Gerðarsafn, Salurinn, Bóka- safn Kópavogs, Náttúrufræðistofa og Kópavogskirkja. Byggt yfir nyröri brúna Benjamín Magnússon, arkitekt í Kópavogi, hefur unnið að hönnun þessara mann- virkja en þau eru byggð á verðlaunatillögu hans um skipulag svæðisins. Hann segir svæðið sem byggja á yfir í framtíðinni ná á milli brúnna tveggja, sem nú eru yfir gjána og tengja annars vegar hluta Hamraborgarinnar austan og vestan gjár- innar og hins vegar Borgarholtsbraut og Digranesveg. í fyrsta áfanga þessara fram- kvæmda verður byggt yfir þar sem nyrðri brúin stendur og verður byggt 45 metra breitt belti yfir gjána, sem ná á fimm metra til suðurs frá húsvegg. í öðrum áfanga er ætlunin að byggja við syðri brúna og lokaáfanginn felst í yfirbyggingu svæðisins á milli þeirra. Ætlunin er að Ijúka fyrsta áfanganum á þessu ári en tímasetningar varðandi annan og þriðja áfanga liggja ekki fyrir. Byggt verður tveggja hæða hús, um eitt þúsund fermetrar hvor hæð, og nær húsið yfir gjána þar sem nyrðri brúin stendur nú og með því verður hægt að ganga innan veggja á milli bæjarhlutanna. Benjamín seg- ir ékki að fullu ákveðið hvaða starf- semi verði í húsinu en þar verði þó þjónustustarfsemi af einhverjum toga þar sem húsið sé öðrum þræði hann- að með þarfir heilsugæslustöðvar að leiðarljósi og einnig verslunarstarf- semi. Það hús sem fyrirhugað er að byggja í öðrum áfanga, þar sem syðri brúin er nú, verður nokkru minna og gert ráð fyrir að það muni með- al annars hýsa verslunar- og aðra þjón- ustustarfsemi þótt hugmyndir um það séu ekki að fullu mótaðar. Á svæðinu á milli hinna nýju húsa er fyrirhugað að byggja útivistarsvæði sem verður sérstaklega hannað fyrir útisamkomur, með stóru bak sviði sem meðal annars getur virkað sem bakmynd tónleikssviðs og mun sviðið snúa á móti vestri gegnt menningarmið- stöðinni á vestari gjábakkanum. Miðbæjar- og þjónustusvæöi Ýmsar breytingar verða á umferðarmann- virkjum í miðbæ Kópavogs í tengslum við Benjamín Magnússon arkitekt horfir af svölum vinnustofu sinnar yfir byggingarsvæðið við nyrðri brúna yfir Kópavogs- gjána. þessar framkvæmdir. Vegagerð ríkisins tók þá ákvörðun að breikka þjóðveginn í gegnum bæinn úr fjórum akreinum í sex vegna vaxandi umferðar. Þá er ætlunin að koma upp nýrri aðstöðu fyrir strætisvagna og leigubíla og bílastæðahús verður hluti þessara framkvæmda. Með þeim er brotið blað í sögu skipulags og byggingarfram- kvæmda hér á landi þar sem byggð hefur ekki fyrr verið skipulögð með þessum hætti. Benjamín segir aðstæður mjög góð- ar. Gjáin aðskilji bæjarhluta Kópavogs en með þessum framkvæmdum myndist heildstætt miðbæjar- og þjónustusvæði þar sem tillit verði tekið til umferðar al- mennings- og einstaklingsfarartækja. Danir kynntu sér rafræna stjórnsýslu Á milli 30 og 40 danskir sveitarstjórnamenn heimsóttu Samband íslenskra sveitarfélaga í byrjun maí. Erindi þeirra var meðal annars að kynna sér rafræna stjórnsýslu hjá íslenskum sveitarfélögum og hvernig þau beita rafrænni tækni til að auðvelda ýmsa þætti hennar. Meðal annars fluttu þau Anna G. Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunarsviðs, og Gunn- laugur Júlíusson, sviðsstjóri hag- og upplýsinga- sviðs, erindi fyrir gestina og einnig Jón Pálmi Páls- son, bæjarritari á Akranesi, Þórir Sveinsson, sviðs- stjóri fjármálasviðs ísafjarðarbæjar, og Stefán Ómar Jónsson, bæjarritari í Mosfellsbæ. 30

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.