Milli mála - 26.04.2009, Page 14
málið til tjáskipta og að þeir fengju innsýn í menningu Rómverja
enda voru málfræði og klassískar bókmenntir í hávegum hafðar. Í
kirkjuskipaninni er að finna skrá yfir námsefni hvers bekkjar og
enda þótt hún sé ekki talin vera bein heimild um það efni sem
notað var í reynd er vitað að hluti þess var notaður í Skálholti og
á Hólum.9 Heimilt var að kenna undirstöðuatriði í grísku svo
fremi að kennslan kæmi ekki niður á latínukunnáttunni. Auk
latínunnar átti uppistaðan í náminu að vera mælskufræði og rök-
fræði.10
Áður en piltar hófu nám í latínuskólunum höfðu þeir þegar lært
skrift og lestur og fengið nokkra undirstöðu í latínu. Þýðingar voru
snar þáttur í náminu. Skólapiltar þurftu sjálfir að kljást við að skilja
latneska texta en kennarar vöktu athygli þeirra á málfarslegum
atriðum og upplýstu þá um notkun orða og orðatiltækja.11 Skóla-
piltar lærðu málshætti og orðtök um góðar dyggðir og hagnýta lífs-
speki sem duga máttu í siðferðilegu tilliti. Lestur sígildra bók-
mennta var í öndvegi og kennarar fjölluðu um efni verkanna og
höfunda þeirra svo sem glöggt má sjá á eftirfarandi lýsingu á latínu-
kennslunni á Hólum upp úr miðri átjándu öld:
En þegar kom í efra bekk, var af alvöru horfið að hinum sígildu
latnesku höfundum. Var venjulega byrjað á Cornelius Nepos eða
Suetonius, síðan lesnar nokkrar bækur úr Justinusi, svo og úr
Æneasar-drápu Virgils, og Metamorphosis eftir Ovidius. Þeir sem
lengst voru komnir eða bezt voru að sér, lásu einatt „utan hjá“ aðra
latneska fornhöfunda, t. d. bréf og ræður Ciceros, bréf og kvæði
Hórazar o. fl. Nú var einnig farið að kenna latneska bragliðafræði
(prosodia) og að æfa pilta, er lengst voru komnir, í latneskri versa-
gjörð.12
Samkvæmt sömu heimild var áhersla lögð á að kenna skólasveinum
grundvallaratriði latneskrar málfræði. Tveimur dögum milli
FRÁ FORNUM MÁLUM TIL NÝRRA
14
9 Guðlaugur R. Guðmundsson, Skólalíf. Starf og siðir í latínuskólunum á Íslandi, Reykjavík: Iðnú,
2000, bls. 133–134.
10 Sama rit, bls. 133–135.
11 Sama rit, bls. 137.
12 Jón Helgason, Meistari Hálfdán. Æfi- og aldarfarslýsing frá 18. öld, Reykjavík: E. P. Briem,
1935, bls. 61.
Milli mála 26.4.2010 14:23 Page 14