Milli mála - 26.04.2009, Page 165
3.4.1 Líkanmyndanir (þ. Modellbildungen)
Föst orðasambönd sem eru mynduð eftir mynstri eða formúlu
mætti e.t.v. nefna líkanmyndanir á íslensku. Mjög oft koma fyrir
endurtekningar orðanna sem í hlut eiga eins og dæmin sýna. Ekki
verður breyting á merkingu orðanna í þessum orðasamböndum.
Dæmi:
• x um x: Glas um Glas (‘hvert glasið á fætur öðru’)
• x für x: Jahr für Jahr (‘ár eftir ár’), Woche für Woche (‘viku eftir
viku’), Tag für Tag (‘dag eftir dag’)
• x eftir x: dag eftir dag, ár eftir ár, viku eftir viku, skipti eftir skipti
3.4.2 Orðapör37 (þ. Zwillingsformeln, Paarformeln, Wortpaare)
Orðapör eru tvö orð í sama orðflokki sem tengd eru með samteng-
ingu og koma fyrir í ákveðinni röð sem ekki er unnt að breyta, þ.e.
festan er alger. Í þessum flokki getur verið um yfirfærða merkingu
að ræða og einnig geta komið fyrir stakyrði. Dæmi: gang und gäbe
sein (‘vera mjög algengur’), klipp und klar (‘hreint út’), fix und fertig
(‘búinn að vera’); vera klappað og klárt, gegnum þykkt og þunnt, eftir
dúk og disk, í húð og hár.
Í orðapörum er oft að finna stuðlasetningu eða innrím.
3.4.3 Fastar líkingar (þ. komparative Phraseologismen, Vergleiche)
Í föstum líkingum koma fyrir líkingar myndaðar með wie á þýsku
og eins og á íslensku sem bundnar eru ákveðinni sögn til að efla
merkingu hennar. Dæmi: wie Gott in Frankreich leben, (‘lifa eins og
blóm í eggi’), frieren wie ein Schneider (‘vera mjög kalt’), es zieht wie
Hechtsuppe (‘það er mikill dragsúgur hérna’); sofa eins og steinn, horfa
eins og naut á nývirki, vera eins og álfur út úr hól.
3.4.4 Hreyfiyrði (þ. Kinegramme)
Hreyfiyrði er það nefnt þegar tjáning með líkamshreyfingum er
færð í orð sem mynda fast orðasamband. Í merkingu hreyfiyrðisins
felst bæði hreyfingin og sú afstaða eða viðbrögð sem hún undir-
strikar. Dæmi: die Achseln zucken (‘yppa öxlum’), die Nase rümpfen
ODDNÝ G. SVERRISDÓTTIR
165
37 Jón G. Friðjónsson nefnir þennan flokk „samstæður“. Sjá Rætur málsins, Reykjavík: Íslenska
bókaútgáfan 1997, bls. x.
Milli mála 26.4.2010 14:23 Page 165