Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.03.2012, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 29. MARS 2012 Íþróttir mbl.is Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Franska handknattleiksfélagið Nantes hefur gert samning við Gunnar Stein Jónsson, leik- stjórnanda hjá Drott í Svíþjóð, um að ganga til liðs við félagið að þessu keppnistímabili loknu. Nantes tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í gærkvöld og boðaði að hann yrði formlega kynntur til sögunnar í dag. „Koma Gunnars er hluti af uppbyggingu okkar fyrir næsta tímabil þar sem nokkrir leikmenn fara frá okkur að þessu tímabili loknu,“ sagði Thierry Anti, þjálfari liðsins, á heimasíðunni. Gunnar Steinn er 24 ára gamall og lék áður með HK en hann hefur verið í stóru hlutverki hjá Drott í sænsku úrvalsdeildinni síðustu ár. Hann var á meðal áhorfenda í gærkvöld þegar Nantes gerði jafntefli við Montpellier og varð þar með fyrsta liðið til að ná stigi af stjörnum prýddu meistaraliðinu í vetur. Montpellier hafði unnið alla 19 leiki sína. Nantes er í 5. sæti frönsku 1. deildarinnar þegar 20 umferðir hafa verið leiknar af 26, á eftir Montpellier, Chambéry, Saint Raphael og Dunkerque. Tveir aðrir Íslendingar hafa samið við franskt félag fyrir næsta tímabil en þeir Ró- bert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson verða þá liðsmenn París Handball. Gunnar Steinn samdi við franska liðið Nantes  Fer til félagsins frá Drott eftir þetta tímabil HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Ég hlakka til að takast á við nýja áskorun eftir að hafa verið í níu ár þjálfari meistaraflokks karla hjá Val,“ sagði Óskar Bjarni Óskarsson í gærkvöldi en þá hafði nokkru áður verið formlega tilkynnt að hann tæki við þjálfun karlaliðs danska úrvals- deildarliðsins Viborg á Jótlandi. Óskar hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið en lið þess hafnaði í 7. sæti dönsku úrvalsdeild- arinnar sem lauk fyrir skömmu. Auk þess að þjálfa karlalið fé- lagsins á Óskar að hafa umsjón með 17 og 19 ára karlaliði félagsins og hafa umsjón með þjálfun yngri flokka félagsins en einn liðurinn í ráðningu Óskars til félagsins er sá að styrkja þjálfun barna og ung- linga. „Forráðamenn Viborg hafa horft til þess að starfs sem ég hef verið að vinna með yngri flokka Vals síðustu ár og ég er stoltur af því að þeir skuli hafa horft til þess þegar þeir óskuðu eftir starfskröftum mín- um,“ sagði Óskar sem flytur út í júlí með eiginkonu og fjögur börn. „Það er gott að breyta til og kom- ast í þjálfun hjá góðu félagi í einu af fjórum bestu deildum Evrópu.“ Undanfarin ár hefur Óskar verið aðstoðarmaður Guðmundar Þ. Guð- mundssonar landsliðsþjálfara. Ósk- ar segir forráðamenn Viborg hafa samþykkt að hann haldi sínu starfi áfram út samningstíma Guðmundar við HSÍ fram yfir Ólympíuleikana í sumar, komist liðið á leikana.  Myndskeið með viðtali við Ósk- ar er finna á mbl.is. „Gott að breyta til“  Eftir 9 ár með meistaraflokk Vals fer Óskar til Viborg  Með landsliðinu fram yfir Ólympíuleikana í London Óskar Bjarni Óskarsson Bayern München er komið með annan fótinn í undanúrslit Meist- aradeildar Evrópu í knattspyrnu eftir 2:0 sigur á Marseille í Frakk- landi í gærkvöld. Mario Gomez og Arjen Robben skoruðu mörkin. Stórveldin AC Milan og Barce- lona gerðu 0:0 jafntefli í Mílanó og þar er því allt í járnum. Barcelona var nær sigri en bæði lið fengu góð færi sem ekki nýttust og Katalón- íuliðið hefði átt að fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar Alexis Sánchez var felldur. Þetta voru fyrri leikir liðanna en öll þessi fjögur félög hafa orðið Evrópumeistarar og Barcelona er núverandi handhafi titilsins. Seinni leikirnir fara fram í næstu viku. vs@mbl.is AP Mark Arjen Robben fagnar ásamt félögum sínum eftir að hafa komið Bayern í 2:0 á Vélodrome í Marseille. Bayern er á leiðinni í undanúrslit Grindvíkingar tryggðu sér í gær- kvöld sæti í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik á ný eftir árs fjar- veru, með því að sigra KFÍ frá Ísa- firði í oddaleik liðanna í Grindavík, 50:47. Þessi lið urðu í tveimur efstu sætum 1. deildar og léku í fram- haldið af því til úrslita um hvort þeirra færi upp. Einvígið endaði þar með 2:1 fyrir Grindavík og spennan varði fram á síðustu sekúndurnar en þriggja stiga skot Vestfirðinga geigaði um leið og lokaflautið gall. Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði 13 stig fyrir Grindavík og tók 12 frá- köst. Sólveig Helga Gunnlaugsdóttir skoraði 17 stig fyrir KFÍ og tók 9 fráköst. Nánari tölfræði leikmanna er á bls. 2. vs@mbl.is Grindavík aftur í úr- valsdeildina Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í Kiel eru nánast búnir að tryggja sér þýska meistaratitilinn í handknatt- leik eftir öruggan sigur á Degi Sig- urðssyni og hans mönnum í Füchse Berlín, 36:28, í Kiel í gærkvöld. Stað- an var 21:15 í hálfleik, Füchse minnk- aði muninn í 23:20 en komst ekki nær og Kiel stakk af á lokakaflanum. Kiel vann þarna sinn 26. sigur í jafnmörgum leikjum í vetur og náði 10 stiga forskoti á Füchse sem er í öðru sætinu. Kiel er með 52 stig og Füchse 42 stig þegar átta umferðum er ólokið og úr þessu er nánast forms- atriði fyrir Kiel að koma titlinum í hús. Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Kiel í leiknum, það síðasta, en Filip Jicha gerði 10 mörk og Kim Andersson 9. Alexander Petersson var með 4 mörk fyrir Füchse en markahæstir voru Iker Romero og Mark Bult með 6 mörk hvor. vs@mbl.is Tíu stiga forysta Kiel og enn fullt hús stiga Ósigrandi Alfreð Gíslason er kom- inn með 26 sigurleiki í röð. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Tveir af lykilmönnum Íslands- og bikarmeist- ara KR í knattspyrnu, markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson og varnarmaðurinn Skúli Jón Friðgeirsson flugu til Noregs í gær. Hannes hefur verið lánaður til Brann næsta mánuðinn, til 1. maí, og Skúli Jón ræðir í dag við Sogndal um kaup og kjör en KR-ingar hafa samþykkt tilboð norska félagsins í hann. Rune Skarsfjord, þjálfari Brann, tilkynnti í gær að Hannes yrði í marki Brann á föstudag- inn þegar liðið tæki á móti Sandnes Ulf í ann- arri umferð úrvalsdeildarinnar. Markvörð- urinn Piotr Leciejewski meiddist í fyrsta leiknum, 3:1 ósigri gegn Rosenborg á sunnu- daginn. „Hannes er einn þeirra markvarða sem við vissum að væri góður, og eftir meiðslin hjá Piotr skoðuðum við þá 5-6 sem komu til greina,“ sagði Rolf-Magne Walstad hjá Brann við vef félagsins í gær. Skúli Jón gæti byrjað að spila með Sogndal strax um næstu helgi ef samningar takast. Liðið vann góðan útisigur, 4:0, á Odd Grenland í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar um síðustu helgi og tekur á móti Hönefoss, með Kristján Örn Sigurðsson og Arnór Svein Aðalsteinsson innanborðs, í 2. umferðinni á sunnudaginn. Tveir lykilmanna KR-inga flugu til Noregs í gær  Hannes til Brann  Skúli ræðir við Sogndal íþróttir Handbolti Valskonur eru stigi frá deildarmeistaratitlinum eftir sigur á erkifjendunum í Fram í gærkvöld. Þurfa stig gegn KA/Þór til að tryggja sér efsta sætið í lokaumferðinni 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.